|
1. árgangur
2. árgangur
3. árgangur
4. árgangur
5. árgangur
6. árgangur
7. árgangur
Eldri greinar
Múrbrot
20.10.2008
Út er komin bókin Múrbrot - róttæk samfélagsrýni fyrir byrjendur og lengra komna.
Sjö ár í sólinni
31.5.2007
Allt er gott sem endar, sagði Megas. Og hafði trúlega rétt fyrir sér, eins og venjulega.
Frelsið
30.5.2007
Einstaklingur fæðist ekki frjáls undan náttúruöflunum eða þeim lögum sem samfélag manna hefur sett sér og eru afleiðing sögulegrar þróunar. Hann verður til á tilteknum tíma á tilteknum stað og í tilteknu samfélagi. Allt þetta skerðir frelsi hans. Besta leiðin til að hámarka frelsi einstaklingsins er hins vegar að búa í velferðarsamfélagi.
Rökrétt ríkisstjórn
29.5.2007
Hvernig sem hlutunum er snúið þá liggur fyrir að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks var eini rökrétti kosturinn eftir nýliðnar kosningar.
Heimsvaldastefnan mun tapa
28.5.2007
Frá því undir lok 20. aldarinnar hafa vinstrimenn, bæði róttækir og hófsamir, farið eins og stormsveipur um álfuna og unnið hvern stórsigurinn eftir annan í kosningum. Hvaða ályktanir má draga af því?
Fróðleikshorn um fagra menn snýr aftur
27.5.2007
Hvar finnur maður fagra menn? Ekki á pöllum Alþingis — en kannski í næsta húsi segir umsjónarmaður Fróðleikshorns um fagra menn sem er orðinn gamall og lúinn.
Róttækni er þörf
25.5.2007
Hvað felst í róttækni? Hvað er að vera róttækur vinstrisinni, femínisti, umhverfisverndarsinni eða friðarsinni?
Hvað gerir Samfylkingin í nýju ríkisstjórninni?
24.5.2007
Það er raunveruleg hætta á því að aðild Samfylkingarinnar að ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum valdi því að þjóðfélagið færist enn lengra til hægri en nokkurn tímann hefði orðið undir stjórn þeirra tveggja hægriflokka sem sátu við völd síðustu 12 árin.
Merkir Svíar XVI (og jafnframt Ártíðir merkismanna XL): Fall eldspýtnakóngsins
23.5.2007
Undur og stórmerki setja svip sinn á Múrinn þessar vikurnar. Gamlir greinaflokkar rísa upp úr gröfinni, súrari en nokkru sinni fyrr.
Glappaskot
22.5.2007
Hvernig er unnt að treysta dómgreind þeirra manna um málefni dagsins í dag, sem eru of stoltir til að viðurkenna jafnvel augljósustu glappaskot fortíðarinnar?
Umhverfissveifla
21.5.2007
8,9% sveifla gegn atvinnustefnu stjórnvalda eru mikil tíðindi meðal þjóðar sem er jafn íhaldssöm og Íslendingar og hefur lengi búið við góðæri.
Ráðist gegn náttúrulegum einræðistilburðum
20.5.2007
Sýn okkar á náttúruna virðist enn í grundvallaratriðum sú sama og þegar við héldum í fullri alvöru að maðurinn væri konungur sköpunarverksins og bæri skylda til að drottna yfir náttúrunni. Það er kominn tími til að viðurkenna að við eigum ekkert tilkall til náttúrunnar og hún þjónar okkur ekkert frekar en við henni.
Ný ríkisstjórn, sama stefna
19.5.2007
Stjórnarmyndunarleikritið er ein leiðinlegasta hefð íslensks stjórnmálalífs og fullorðnu fólki frekar til ömunar. Það sem skiptir raunverulega máli er hvað ný ríkisstjórn hefur í hyggju.
Ráðist gegn fjölbreytileikanum?
18.5.2007
Danska hægristjórnin herjar nú mjög á fríríkið Kristjaníu með það að markmiði að „normalísera“ hverfið. Að sama skapi sýndu baráttuaðferðir yfirvalda þegar Ungdómshúsið var rifið nýja og harða stefnu stjórnvalda. En hvað verður þá um frelsi og fjölbreytileika?
Hvað er netlögregla?
17.5.2007
Á síðastliðnum 15 mánuðum var 21 mál kært til lögreglu þar sem barnaníðingar tældu til sín börn í gegnum netið. Hvernig ber að bregðast við aukinni misnotkun netsins á þessu sviði?
Glæsilegur vinstrisigur, vandmeðfarin staða
13.5.2007
Kosningarnar um helgina voru ótvírætt skref í rétta átt en skrefið hefði þó mátt vera stærra og breytingaviljinn óbreyttari. Engin leið er að vita hvað tekur við.
Kjördagur er hátíðisdagur
12.5.2007
Af hverju?
Til hvers eru kosningar?
11.5.2007
Á morgun eiga kjósendur tækifæri sem kemur kannski ekki aftur í bráð. Ekki spillir að taka kjarkinn með sér á kjörstað.
Virkið Ísland
10.5.2007
Það fá ekki allir að dvelja í besta landi í heimi – síst af öllu harmonikkuleikarar frá Rúmeníu.
Viljum við Viðeyjarstjórn aftur?
9.5.2007
Ef kosningarnar á laugardaginn fara eins og flestar seinustu kannanir sýna blasir við stjórn sem gerir nokkrar málamynda lagfæringar í velferðarmálum, heldur áfram einkavæðingartilraunum í heilbrigðiskerfinu, heldur lífinu í skattastefnu Sjálfstæðisflokksins og hernaðarhyggju fráfarandi ríkisstjórnar.
Tímamótasigur hernaðarandstæðinga
8.5.2007
Um þessar mundir keppast ritstjórar tveggja stærstu dagblaða á Íslandi við að telja lesendum sínum trú um að hvergi á byggðu bóli finnist stjórnmálaflokkar sem séu andvígir NATO eða vogi sér að setja spurningamerki við heræfingar. Það ættu því að þykja talsverð tíðindi á þeim bæjum að fregna að sú sé einmitt stefnan hjá stærsta stjórnmálaflokknum í öflugu grannríki okkar og að sá hinn sami flokkur eigi góða möguleika á að leiða ríkisstjórn.
Hver er grænn í gegn?
7.5.2007
Í gær reyndi Sigurður Kári að ljúga því að sjónvarpsáhorfendum að Sjálfstæðisflokkurinn væri grænn í gegn.
Framtíðin
6.5.2007
Það er óvíst að kjósendur vilji að stjórnmálamenn bjóði þeim upp á skyndilausnir í atvinnumálum. Væntanlega vilja flestir bjarga sér sjálfir í þeim efnum og líta frekar til stjórnmálamanna um mál sem varða okkur öll og sameiginlega framtíð mannkyns.
Umhverfismálin aftur á dagskrá!
5.5.2007
Því björninn er ekki unninn enn
Jafnrétti í reynd?
4.5.2007
Einn flokkur uppfyllir skilyrði hinnar svokölluðu40/60-reglu ef úrslit verða eins og nýleg skoðanakönnun Fréttablaðsins bendir til.
Græn framtíð á heimsvísu
3.5.2007
Stóriðjustefnan hefur neikvæðar hnattrænar afleiðingar fyrir umhverfið. Hún veldur meiri mengun og meiri útblæstri, ekki aðeins á Íslandi, heldur í heiminum öllum. Það stendur hvergi til að reisa álver sem fengju rafmagnið frá kolabrennslu upp á gamla mátann.
Hverjir þjást af hugmyndafræðilegri blindu?
2.5.2007
Það er dálítið skondið að það eru sömu aðilar og tala hvað hæst um að aðrir séu forpokað afturhald sem eru fastastir í kreddunum, blindastir gagnvart staðreyndum og fljótastir til að láta hugmyndafræðina ráða för óháð reynslunni hverju sinni.
Hvað annað á að kalla þessa meðferð á fólki?
1.5.2007
Nú virðist sjálfur Múrinn vera farinn að birta auglýsingar ...
Hverju er fórnað með afnámi skólaskyldunnar?
30.4.2007
Á sama tíma og klifað er á auknu valfrelsi sem lausnarorði í skólamálum er því algjörlega ósvarað hverra frelsi er verið að auka eða um hvaða réttindi málið snýst hverju sinni.
Vondur samningur
28.4.2007
Samkomulag utanríkisráðuneytisins við Norðmenn „um samstarf á sviði öryggismála“ er sérkennilegur gjörningur í aðdraganda kosninga. Það er eins og ráðamenn séu að storka kjósendum með þessu; sýna að þeir hika ekki við að beita sama sleifarlaginu og gert var í aðdraganda Íraksstríðsins. Stjórnvöld hlæja upp í opið geðið á þjóðinni í trausti þess að hún muni áfram að kjósa að búa í bananalýðveldi.
Viðurkennum tungumál heyrnarlausra
27.4.2007
Þrisvar sinnum hefur um viðurkenningu íslenska táknmálsins dagað uppi í nefnd, þrátt fyrir yfirlýstan vilja þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum til að afgreiða frumvarpið nú í vor. Formaður nefndarinnar talar um að kostnaðaráætlun þurfi að liggja fyrir.
Hin málefnalega umræða
26.4.2007
Sjálfstæðismenn vilja forðast alla meðalmennsku. En vilja þeir bragða á eigin meðulum í kosningabaráttu?
Hvernig á að berja á umhverfiskommum?
25.4.2007
Mikilvægt er að hvetja alla andstæðinga Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs til að nota þessar klisjur oft og lengi þannig að kosningarnar árið 2007 snúist aðeins um stefnu VG.
Hver er maðurinn?
24.4.2007
Er hægt að ímynda sér aumari leiðtoga? Og var hægt að ímynda sér annað en hægrimenn um allan heim myndu lofsyngja hann sem aldrei fyrr, eftir andlátið?
V fyrir velferð
23.4.2007
Fátækt á ekki að líðast í íslensku samfélagi og við skulum hætta að biðja um velferð fyrir alla.
Hvort er Evrópusambandið grátt eða grænt?
22.4.2007
Íslensku ESB-flokkarnir virðast nú sækja ráð í smiðju Göbbels og reyna að koma svo miklum rangfærslum á flot að aðrir muni ekki hafa undan að leiðrétta vitleysuna.
Eftirsóknarverður stöðugleiki?
21.4.2007
Skuldir heimilanna á Íslandi eru einhverjar hinar mestu í heimi eða rúmlega 200% af ráðstöfunartekjum.
Er róttækur femínismi réttlátur?
20.4.2007
Úr því að konur eru í miklum minnihluta á Alþingi þá hlýtur ferlið sem leiðir til þess að konur komast ekki á þing að vera óréttlátt með einhverjum hætti.
Einfalt reikningsdæmi
19.4.2007
Hvað er í veginum fyrir því að ein lakasta tillagan af 38 um aðgerðir gegn byggðavanda Vestfjarða geti orðið að veruleika?
Að biðja nógu fallega
18.4.2007
Hingað til hefur ekki tekist að fá fyrirtæki og einstaklinga til að breyta framferði sínu gagnvart umhverfinu með öðrum ráðum en þeim að gera það dýrara að menga en ódýrara að vera umhverfisvænn. En hægrimenn vilja margir hverjir hafa annan háttinn á.
Umboð til áframhaldandi misréttis
17.4.2007
Geir Haarde er sérstakur vinur hinna fátæku um þessar mundir. En hann er úlfur í sauðargæru.
Gettu betur – Írak
16.4.2007
Í tilefni þess að bráðum koma kosningar á litla Íslandi er nokkrum fróðlegum staðreyndum um afleiðingar innrásarinnar í Írak miðlað til lesenda.
Vinstri – hægri
15.4.2007
Fyrir þá sem ekki hafa því einbeittari skoðanir, þá hlýtur hin taumlausa sjálfumgleði stjórnarherranna að birtast sem öryggi og yfirvegun sem þeir svo notfæra sér í slagnum þegar þeir hræða landslýð með óstjórn og hrikalegum afleiðingum vinstri stjórnar.
Mánuður til kosninga: Breytingar eða kyrrstaða?
14.4.2007
Sjálfstæðisflokkurinn vill engar breytingar. Og ef það eiga að verða breytingar á Íslandi, má Sjálfstæðisflokkurinn ekki bæta við sig fylgi svo að neinu nemi.
Andstaðan við andófið
13.4.2007
Ein tegund íhaldsseminnar lýsir sér oftast í því að menn leggja ofuráherslu á flísina í augum andófsfólks en sjá ekki bjálkann hjá valdhöfum. Andófsmennirnir eru oft sakaðir um ósamkvæmni eða öfgar á meðan valdhafar komast upp með nánast hvað sem er.
Hver borgar brúsann í skattalækkunarfylleríinu?
12.4.2007
Gallinn við að horfa aðeins á ráðstöfunartekjur er að auknar tekjur gagnast fátæku fólki lítið ef útgjöldin aukast á móti. Því miður er það staðreyndin sem blasir við fátæku og veiku fólki, barnafjölskyldum og einstæðum foreldrum að útgjöldin hafa aukist langt umfram hækkun ráðstöfunartekna.
Nýju fötin Framsóknar
11.4.2007
Því miður skiptir engu máli hvað Framsóknarflokkurinn kallar sig í aðdraganda kosninga. Það er sami flokkurinn og spurði hvorki þing né þjóð þegar hann ákvað að styðja árás Bandaríkjanna í Írak og sami flokkurinn og réðst í Kárahnjúkavirkjun.
Ungverjaland rúmum fimmtíu árum frá uppreisninni
10.4.2007
Mótmælafundir eru nú daglegt brauð í Búdapest og þótt þar séu fleiri lögreglumenn en mótmælendur þá eru Ungverjar afar reiðir ríkisstjórninni sem þeir veittu nýlega umboð til áframhaldandi setu að völdum. Flest bendir til að þar í landi treysti fólk engum stjórnmálamönnum lengur.
Eru Íslendingar virkilega „heimskir“?
9.4.2007
Fjölmiðlafólk sem stýrir kosningaþáttum ljósvakamiðlanna virðist oft hugsa eftir skrítnum brautum þegar kemur að þess háttar dagskrárgerð.
Alþjóðavæðing á eigin forsendum
8.4.2007
Núna líta margir fjárfestar hýru augu til Íslands og það er eðlilegt. En þeir munu ekki hætta því þótt við bætum samfélagið, þvert á móti.
Loforðapólitíkin gengur aftur
7.4.2007
Loforðapólitíkin snýst oftast um að gera allt í senn, ekki síst ósamrýmanlega hluti, og hún byggir á þeirri augljósu ranghugmynd að þeir sem lofa geti einir ráðið því hvað verður gert ef þeir komast í ríkisstjórn.
Velferð fyrir alla
6.4.2007
Íslenskar konur sem umgengust bandaríska hermenn á sínum tíma voru taldar hafa í för með sér óteljandi vandamál. Umræðan um ástandið í þá daga er furðulega lík málflutningi þeirra sem nú reyna að ala á tortryggni gagnvart innflytjendum.
Frjálslyndi íhaldsflokkurinn
5.4.2007
Ef Frjálslyndi flokkur fær yfir 5% fylgi og kemur mönnum á þing yfirleitt gætit baráttan um síðasta þingmann í Reykjavík norður staðið milli Pauls Nikolov og Jóns Magnússonar.
Vinnukonur frelsisins
3.4.2007
Ef marka má þróunina í Bandaríkjunum er ekkert sem bendir til þess að einkarekstur muni framkalla byltingu í launum kvenna heldur fyrst og fremst aukið launabil innan kennarastéttarinnar, segir Berglind Rós Magnúsdóttir í grein dagsins.
Íslendingar hafna kaupum á kynlífsþjónustu
2.4.2007
Margra ára umræða um vændi og viðskipti með fólk hefur skilað Íslendingum slíkri hugarfarsbreytingu að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki aðeins orðinn einangraður í málinu heldur hefur hann líka orðið viðskila við stóran hluta sinna kjósenda.
Sigur í Straumi
1.4.2007
Úrslit atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði eru bylting í íslenskum stjórnmálum og sýna stjórnmálamönnum framtíðarinnar að þeir geta ekki hunsað umhverfið og náttúruna.
Sögulegur þjösnaskapur
30.3.2007
Framkoma álrisans Alcan gagnvart almenningi í Hafnarfirði verður trúlega lengi í minnum höfð enda fátítt að fyrirtæki sem vaða kynningarfé í axlir gangi jafn klaufalega fram og raun ber vitni.
Getur Alcan keypt lýðræðið líka?
29.3.2007
Alcan á ekkert erindi í kosningabaráttu sem snýst um hagsmuni Hafnfirðinga (og reyndar fleiri Íslendinga) en ekki hagsmuni Alcans – ekki frekar en einstök fyrirtæki ættu að taka beinan þátt í kosningabaráttu stjórnmálaflokka.
Hvað er trúverðugleiki?
27.3.2007
Herferð framsóknarmanna gegn VG hefur gengið illa enda ráðast spunadvergarnir einkum á það sem þeir ekki skilja.
Til hamingju, Norðmenn
26.3.2007
Fyrir botni Miðjarðarhafs er verið að myrða heila þjóð á hægfara og kvalarfullan hátt.
Glundroði hægrimanna?
25.3.2007
Nýjasti flokkurinn til að blanda sér í slaginn er hinn svokallaði Íslandsflokkur. Forvígismenn hans komu fram á blaðamannafundi á dögunum og af samsetningu hans má ráða að þungamiðja flokksins er borgarstjórnarflokkur Frjálslynda flokksins í Reykjavík.
Athafnastjórnmál
24.3.2007
Athafnastjórnmálamennirnir hafa gert það að sérstakri dyggð að hugsa ekki – heldur framkvæma í blindni eftir gömlum uppskriftum á öllum sviðum.
Réttmætur launamunur?
23.3.2007
Heiðrún Lind Marteinsdóttir ritar grein um launamun kynjanna í vorhefti tímaritsins Þjóðmála. Ekki verður komist hjá því að gera nokkrar athugasemdir við þá röksemdafærslu sem þar er sett fram.
Hver vill búa á Caymaneyjum?
22.3.2007
Baráttan er háð af þeim sem vilja drastíska lækkun skatta á auðmenn og hátekjufólk (þeir eru kallaðir hófsemisöfl) og þeirra sem vilja halda sömu eða svipuðu heildarskatthlutfalli af þjóðarframleiðslu, en færa byrðina frá þeim hafa minnst til þeirra sem sem græða nú mest (þeir eru kallaðir öfgamenn).
Baugsmálið: Íslenska antíklímaxið
21.3.2007
Það Baugsmál sem nú fer fram fyrir rétti er of seint á ferð til að standa undir því að verða t.d. önnur réttarhöld yfir Michael Jackson. Aðalpersónurnar eru búnar að vera og Íslendingar eru teknir til við að ræða önnur mál og brýnni.
Davíð og Golíat
20.3.2007
Kosningar um deiluskipulag í Hafnarfirði eru teknar að snúast um yfirráð yfir Íslandi.
Einn, tveir, margir
19.3.2007
Kann Einar Kr. Guðfinnsson ekki að telja nema upp í tvo? Er hægt að slá fráfarandi ríkisstjórn við í glundroðanum?
Ertu laus annað kvöld?
18.3.2007
Allir sem vilja minna stjórnmálaflokkana á það í upphafi kosningabaráttu að hinn svívirðilegi stuðningur við stríðið sé geymdur en ekki gleymdur og eiga þess kost að líta inn í Austurbæ mánudagskvöldið 19. mars, ættu með því að leggja sitt af mörkum til að veita valdhöfum aðhald.
Meðvitaði mengunarvaldurinn
17.3.2007
Illugi Gunnarsson hefur opinberað byltingarkennda sýn á loftslagsvandann og lausnir hans eru jafn nýstárlegar og þær eru vitlausar.
Stjórnarskrárhoppið
16.3.2007
Vissulega fjarskylt kvótahoppinu en ekki alveg óskylt þó.
Eftir Sómalíu
15.3.2007
Augu fjölmiðlanna beinast að Íran og fáir taka eftir því þótt Bandaríkjastjórn sé í óða önn að undirbúa stórfellt hernám í annarri heimsálfu.
Eitt gott heilbrigðiskerfi fyrir alla
14.3.2007
Hér þarf að nást sátt um eitt gott heilbrigðiskerfi fyrir alla. Til þess þarf nýja velferðar-ríkisstjórn.
Ráð handa ráðvilltum flokki
13.3.2007
Sumir sem áður gagnrýndu Vinstri-Græn fyrir einstrengingslega afstöðu til stóriðjustefnunnar gagnrýna nú sama flokkinn fyrir að vera ekki samkvæmur sjálfum sér í þeim málaflokki. Það hlýtur að vera misheppnaðasta áróðursbragð seinni ára að geta ekki einu sinni verið samkvæmur sjálfum sér þegar aðrir eru sakaðir um ósamkvæmni.
Hver vegur að heiman ...
12.3.2007
Ef til er vegur er hann farinn og það gerir fólk í hópum í dag. Kjalvegur í núverandi mynd er umhverfisslys sem komið er á nokkurn rekspöl.
Sýndarveruleiki stjórnarherranna
11.3.2007
Hinn græni fálki Sjálfstæðisflokksins er í raun sami, gamli bláfálkinn – sem er grænn af öfund yfir því að atvinnustefna Vinstri-Grænna hefur meiri hljómgrunn en sovéskar áherslur nýfrjálshyggjuflokksins.
Einkaeignarréttarákvæði á náttúruauðlindum styrkt í sessi
10.3.2007
Enn og aftur lætur Framsóknarflokkurinn niðurlægja sig með frumvarpi ríkisstjórnarinnar til breytinga á stjórnskipunarlögum þar sem gengið er í þveröfuga átt við það sem sami flokkur heimtaði með hótun um stjórnarslit á dögunum.
Opinbert misrétti er slæmt fyrir starfsandann
9.3.2007
Vilhjálmur Egilsson er misréttissinni. Ríkt fólk og handlangarar þess eru það iðulega. Ekkert hatar það meira en tilhugsunina um jöfnuð og réttlæti.
Til umhugsunar á alþjóðlegum baráttudegi kvenna
8.3.2007
Hafa femínistar ástæðu til að vera reiðir?
Hvað er óviðeigandi orðalag?
6.3.2007
Geir H. Haarde telur að ríkisstjórnin muni komast yfir ágreininginn um auðlindaákvæðið en hann gagnrýnir reyndar ákveðna framsóknarmenn fyrir „óviðeigandi orðalag“ að undanförnu.
Veruleikinn knúði dyra
5.3.2007
Yfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri lagaleg forsenda til að meina klámþingsgestum að koma til landsins. Sömu yfirvöld og ofsóttu Falun Gong hér um árið. Slík er hræsnin í þessu samfélagi, af hverju var ekki talað meira um það?
Hringurinn þrengist um Uribe
4.3.2007
Afleiðingarnar af því að skilja fartölvuna sína eftir á glámbekk eru alla jafna í óskemmtilegri kantinum fyrir eigandann. Ef skrá ætti heimsmet af því tagi er klárt mál að sigurvegarinn kæmi frá Kólumbíu.
Spunó.blog.is
3.3.2007
Hver eru einkenni spunabloggsins? Á hverju þekkist það? Hverjir lesa það?
Áfellisdómur yfir NATO
2.3.2007
Fyrir þá sem löngu voru búnir að rétta yfir Serbum sem þjóð, dæma þá og útdeila refsingunni í formi loftárása, viðskiptabanns og hálfgerðrar útskúfunar á alþjóðavettvangi, hlýtur uppskeran af öllum tilraununum til að fá staðfestingu raunverulegra dómstóla að teljast heldur rýr.
Öryggið á oddinn – nema stundum
1.3.2007
Athyglisvert er svo að fylgjast með varaformanni Samfylkingarinnar halda því fram að þessi hagsmunagæsla fyrir gosdrykkjaframleiðendur sé gerð með hagsmuni neytenda í huga. Þetta er einfaldlega rangt: Það eru hagsmunir efnaminni heimila að verð á heilnæmum matvælum lækki, ekki að næringarlitlir gosdrykkir verði aukinn hluti af neyslunni.
Er flokkur með hálft kjörfylgi flokkur í sókn?
28.2.2007
Viðbrögð formanns Framsóknarflokksins við Fréttablaðskönnun á dögunum voru sérkennileg. Eða er vandi flokksins ef til vill svo mikill að þessi sömu viðbrögð hafi verið réttlætanleg?
Tvær bækur um Margréti
27.2.2007
Hvernig skyldi standa á því að bók Sverris Hermannssonar, Skuldaskil, er ekki tekin góð og gild sem óyggjandi vitnisburður fyrrum samverkamanns um heilindi og innræti manna á borð við Davíð Oddsson og Kjartan Gunnarsson?
Svifryksský yfir Reykjavík
26.2.2007
Þrátt fyrir mikinn fjölda barna, unglinga og eldri borgara er bílaeign á hvern íbúa hérlendis með því mesta sem gerist í heiminum. Þeir eru ofan í kaupið stórir, dýrir og eldsneytisfrekir þannig að við höfum búið okkur til ýmis vandamál sem verður að leysa.
Þegar Morgunblaðinu mistókst að mála Sjálfstæðisflokkinn grænan
25.2.2007
Ef Guðlaugur Þór Þórðarson og Illugi Gunnarsson eru grænustu stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokksins, eins og jafnan er haldið fram, þá hljóta aðrir flokksmenn að vera gráir eða jafnvel kolsvartir af umhverfissóðaskap.
Jafnréttis-Ísland: Hvenær kemur þú?
24.2.2007
Launaleynd er stjórntæki þeirra sem eru á tindinum. Þekking er vald en leynd takmarkar slíkt vald við fámennan hóp.
Frá sjónarhóli peninganna
23.2.2007
Peningar verða að hafa frelsi til að ferðast á milli bankareikninga – það er réttur þeirra sem peninga í frjálsu hagkerfi.
Ætlar Samfylkingin í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum?
22.2.2007
Ætlar Samfylkingin að eyðileggja möguleika félagshyggjufólks til að mynda ríkisstjórn eftir kosningar?
Höfnum heræfingum á Íslandi!
21.2.2007
Herskip og orrustuþotur Bandaríkjahers eru engir aufúsugestir í íslenskum höfnum eða lofthelgi og fráleitt að stjórnvöld hafi frumkvæði að því að fá slíkar óheillasendingar hingað til lands.
Hvers vegna blómstrar klámiðnaðurinn?
20.2.2007
Skyldi það vera að einhverju leyti MORFÍS-ræðukeppninni að kenna hvernig hvert einasta umræðuefni í samfélaginu pólast alltaf um leið í tvær andstæður, iðulega jafn fjarri því að kryfja rökrænt samhengi hlutanna?
Orð og athafnir í jafnréttismálum
19.2.2007
Til voru konur svo svikular og ófemíniskar að þær kusu ekki Margaret Thatcher í þau þrjú skipti sem hún leiddi Íhaldsflokkinn til sigurs í Bretlandi. Var ástæðan ef til vill bara kvenfyrirlitning?
Íran og Morgunblaðið
18.2.2007
Rétt eins og í aðdraganda innrásarinnar í Írak er fréttamat sumra fjölmiðla í umfjöllun um málefni Írans svo skekkt að erfitt er að sjá mun milli opinberrar stríðstefnu Bandaríkjastjórnar og „hlutlausrar” fréttamennsku.
Hvað þarf til að vera grænn?
17.2.2007
Flestir viðurkenna nú að umhverfið er eitthvað meira en auðlindirnar sem við getum kreist úr því, með virkjunum og veiðum, og heldur ekki ruslahaugur fyrir úrganginn sem mennirnir skilja eftir sig. En er það nóg?
Hver er hræddur við frjálsar ástir?
16.2.2007
Núna ríkir það einkennilega ástand að margt frjálslynt fólk er fast í bullandi eðlishyggju til að réttlæta það að fólk megi eiga þann maka sem því sýnist án þess að brotið sé gegn því.
Af pólitískum óförum
15.2.2007
Hvað getur valdið því að flokkur, sem nú hefur 11 þingmenn, fær aðeins tvo í nýjustu könnun Fréttablaðsins sem er hraksmánarleg útkoma þrátt fyrir alla fyrirvara sem hafa ber á niðurstöðunum?
Er forsætisráðherra með öllum mjalla?
14.2.2007
Í sjónvarpsviðtali um helgina var forsætisráðherra þjóðarinnar spurður út í vaxandi misskiptingu hér á landi. Viðbrögðin báru vott um einkennilegan hugsunarhátt.
Auður og áhrif
13.2.2007
Það er mikið að gera hjá fulltrúa hinna almennu viðskiptavina íslensku bankanna um þessar mundir.
Þögla forsendan í umræðunni um rétt samkynhneigðra til ættleiðinga
12.2.2007
Víglínan í umræðunni virðist ekkert hafa færst til um langa hríð en hvað er það sem ræður því hvorum megin hennar fólk tekur sér stöðu?
Frelsissókn frá vinstri
11.2.2007
Í umræðu um íslensk stjórnmál hefur því verið haldið á lofti að andstæður hægri og vinstri snúist um frjálslyndi og stjórnlyndi þar sem hægrimenn fylli flokk frjálslyndra. Þetta er ekki gagnlegur samjöfnuður.
Samfélag einstaklinga eða einstaklingar samfélags?
10.2.2007
Einstaklingshyggjan leggur áherslu á að skorið sé á tengsl einstaklings og samfélags með tvennum hætti. Gegn hvorutveggja verður að sporna.
Um ríkisrekna kosningabaráttu
9.2.2007
Við megum treysta því að á næstu vikum munu hin og þessi ráðuneyti finna sig knúin til að prenta stór upplög af fallegum bæklingum þar sem lesa má allt um stefnuna í samgöngumálum, fíkniefnavörnum, uppbyggingu skólakerfisins. Hvaðan munu peningarnir koma?
Barnslegar sálir
8.2.2007
Kvikmyndin Lítil börn (Little Children) er ein sú besta sem hægt er að sjá í íslensku bíóhúsi um þessar mundir.
Stúdentar þurfa að beita þrýstingi
7.2.2007
Hvernig á að koma Háskóla Íslands í hóp þeirra hundrað bestu í heimi ef stúdentar þurfa að eyða stórum hluta af tíma síns við að vinna fyrir náminu?
Joðarinn getur aldrei haldið kjafti – hvað skiptir máli í pólitík?
6.2.2007
Sumir telja góðan stjórnmálamann vera þann sem hlustar á almenning, er heiðarlegur, rökfastur eða tekur af skarið og leiðir fólk, er alvöru foringi. Jafnframt virðist sumt fólk vera ákaflega viðkvæmt fyrir orðbragði pólitíkusa.
Munum eftir framhaldsskólunum!
5.2.2007
Það skiptir máli að í vor verði kosið um menntamál og öfluga framhaldsskóla fyrir alla. Til þess að svo megi verða þarf ótvírætt nýjan hugsunarhátt.
Álbræðsluæðinu verður að linna
4.2.2007
Hvert á framlag Íslands að vera til lausnar þeim stórkostlega vanda sem við blasir vegna hlýnunar lofthjúpsins?
Kosningar sem gætu breytt miklu
3.2.2007
Framundan er þriggja mánaða kosningabarátta og staða flokkanna er æði misjöfn. Næsta ríkisstjórn verður að endurspegla þær viðhorfsbreytingar sem orðið hafa í samfélaginu á seinustu árum.
Hvern útilokar íhaldið?
2.2.2007
Morgunblaðinu virðist mikið í mun að brestir komi í samstarf stjórnarandstöðunnar. Ástæðan er gamalkunnug en aðferðirnar verða heldur ósmekklegri eftir því sem nær dregur kosningum.
Stofnum flokk!
1.2.2007
Vofa gengur nú ljósum logum um landið. Það er vofa eins máls framboðanna.
Mjóslegin hugmynd handa fébólgnu fyrirtæki
31.1.2007
Orkuveitan gæti unnið þarft verk í þágu öndunarfæra fólks á suðvesturhorninu á tiltölulega einfaldan hátt - og í staðinn sleppt allri ævintýramennsku við að koma hagnaðinum í lóg.
Úr öskunni í eldinn
30.1.2007
Hvaða hugmyndir hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna um lausnir á þeim vanda sem við er að etja í loftslagsmálum?
Jón Magnússon, blindingi
29.1.2007
Reiðin sem hefur birst í auknu fylgi Frjálslynda flokksins að undanförnu er sprottin af bælingu. En hvað er það sem er bælt?
Á Hillary Clinton eiginmanni sínum allt að þakka?
28.1.2007
Hillary Clinton hefur sýnt það á sex árum í öldungadeild Bandaríkjaþings að hún komst þangað á eigin verðleikum fremur en verunni í Hvíta húsinu á sínum tíma. Það er maklegt að gagnrýna hana fyrir stuðninginn við Íraksstríðið en ýmis önnur stefnumál hennar þykja langt til vinstri þar vestra.
Þjóðernishyggjan snýr aftur
27.1.2007
Ef þjóðhverf hugsun er í raun og sann eðlileg í því samfélagi og þeim heimi sem við búum í núna er best að fólk geri sér grein fyrir því og sé ekki haldið þeim hroka að líta á sjálft sig sem víðsýnt og alþjóðasinnað þótt það hafi aldrei gert minnstu tilraun til að setja spurningarmerki við þjóðernið.
Hvernig verður maturinn til?
26.1.2007
Umræða undanfarinna daga og vikna um matarverðið hefur leitt ýmislegt fróðlegt í ljós um verðmyndunina og hvað hver og einn ber úr býtum.
Umskipti yfirvofandi á alþingi
25.1.2007
Allt stefnir í töluverða endurnýjun þingliðsins við komandi alþingiskosningar og spenna gæti orðið um framtíð nokkurra frambjóðenda.
Hverjir bera ábyrgð á hneykslinu?
23.1.2007
Hugmynd Geirs Haarde um ábyrgð í stjórnmálum er afar nýstárleg en ef hann hefði viljað svara heiðarlega þá hlýtur svarið að hafa legið í augum uppi.
Hvað er skóli?
22.1.2007
Skólakerfi dagsins í dag er beinn afkomandi þess kerfis sem komið var á fót í Prússlandi fyrir meira en tvö hundruð árum. Væri ekki óhætt að fara að ræða meira um inntak skólastarfs, hvort sem það rímar vel eða illa við umgjörðina?
Verður Mona Sahlin næsti Göran Persson?
21.1.2007
Eftir að búið var að útiloka Per Nuder, Thomas Bodström, Margot Wallström og Carin Jämtin, var röðin komin að Monu Sahlin sem virðist standa með pálmann í höndunum. Við hverju má búast af henni?
Valgerður brýtur blað
20.1.2007
Á Múrnum hefur margt verið sagt um Valgerði Sverrisdóttur og fæst fallegt. En núna verður undantekning gerð.
Það brennur!
19.1.2007
Nýja bókin hans George Monbiot er skyldulesning. Svo einfalt er það.
Utanríkismál komin á dagskrá á ný
18.1.2007
Fangabúðirnar í Guantanamo hafa nú verið starfræktar í fimm ár. Er ekki tími til kominn að Íslendingar fari alvarlega að endurskoða stefnu sína í utanríkismálum?
Ameríkaniseringin heldur áfram
17.1.2007
Síminn hefur bæst í hóp bótaþega á Íslandi.
Óvenjulegur forsetaframbjóðandi úr röðum Repúblíkana
16.1.2007
Texasþingmaðurinn Ron Paul hefur lýst yfir forsetaframboði. Stjórnmálaskoðanir hans eru um margt sérstakar.
Valgerður verður að skýra mál sitt
15.1.2007
Aftökurnar halda áfram í Írak og valda viðbjóði um allan heim. Eða næstum því allan heim.
Álver og sýslumörk
14.1.2007
Fer afstaða Samfylkingarinnar og formanns hennar til áframhaldandi stóriðjuframkvæmda eftir því hvar á landinu er spurt?
Frelsun frjálshyggjunnar
13.1.2007
Blað stúdenta við Háskólann í Reykjavík gefur sig út fyrir að segja eingöngu góðar fréttir. Múrinn vill ólmur gefa lesendum sínum nokkur sýnishorn úr þeirri átt.
Frelsi, jafnrétti og ...
12.1.2007
Umræðan um fátækt á Íslandi er fyrir nokkru orðin pikkföst í skotgröfum sem enginn virðist vilja fara upp úr. Fjarlægðin á milli stríðandi fylkinga er orðin svo mikil að þótt önnur æpi af fullum krafti virðist hin ekki heyra neitt.
Allir nema við
11.1.2007
Áform ESB um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eru virðingarverð svo langt sem þau ná. Hér á landi er hins vegar allt kapp lagt á að auka losun í einu auðugasta og iðnvæddasta ríki heims.
Voru loftárásir það sem Sómali vantaði helst?
10.1.2007
Sómalía er eitt fátækasta land í heimi. Það hefur verið plagað af stríðsátökum og stjórnleysi, uppstyttulítið í meira en fimmtán ár, ásamt náttúruhamförum og hungursneyðum.
Sólskinsstúlkan
9.1.2007
Bíórýnir Múrsins er latur eins og heyrir til ellinni en þó ekki hættur störfum og hann brá sér í bíó um helgina.
Hversu lengi er hægt að teygja lopann?
8.1.2007
Hvaða álit sem hvert og eitt okkar hefur á Baugsmönnum, viðskiptaháttum þeirra og völdum í krafti auðs, verður ekki hjá því komist að spyrja hvort ákæruvaldið geti endalaust haldið áfram leit sinni að einhverju sem dugi til að fá þá sakfellda, hvað og hversu lítið sem það kann að vera.
Alcan fer rússnesku leiðina
7.1.2007
Kosningabarátta álrisans sem rekur stóriðjuna í Straumsvík er farin að minna óþægilega mikið á héraðsstjórakosningarnar í Chukokta-héraði fyrir nokkru.
Nú er tími fyrir aukinn jöfnuð
6.1.2007
Ríkisstjórninni hefur tekist að búa til kerfi sem ýtir beinlínis undir misskiptinguna og í ofanálag er hún stolt af verkum sínum.
Akureyringar fara ókeypis í strætó
5.1.2007
Frá og með áramótunum kostar ekkert að ferðast með almenningssamgöngum á Eyjafjarðarsvæðinu. Verði reynslan þar ámóta góð og í Reykjanesbæ hljóta fleiri stór sveitarfélög að fara að huga að því sama.
Er áramótagleðin komin úr böndunum?
4.1.2007
Flugeldasýning hættir að vera skemmtileg ef ekki er lengur hægt að sjá hana fyrir mengunarskýi.
Hvað ber að gera?
3.1.2007
Nú eru aðeins fjórir mánuðir til kosninga. Vinstrimenn eru í sókn en þurfa að skilgreina markmið sín vel til að geta náð árangri í næstu ríkisstjórn.
Áróður álmanna
2.1.2007
Hart hefur verið deilt um stórvirkjanir og náttúruspjöll af þeirra völdum undanfarin ár og hefur svo hart verið tekist á að forsvarsmenn Framsóknarflokksins afneita stóriðjustefnunni sem núverandi ríkisstjórn hefur rekið.
Ár tækifæra
1.1.2007
Kosningarnar í maí bjóða upp á tækifæri til að útkljá ýmsar spurningar um það hvers við væntum, sjálfum okkur og komandi kynslóðum til handa.
Nú árið 2006 er liðið ...
31.12.2006
Úff, þessi ár líða hratt orðið. Hér minnir Múrinn lesendur sína á helstu viðburði liðins árs. Sem var ár stöðugleika og leiðinda, en margt gerðist þó ef grannt er skoðað.
Hvenær koma áramót?
30.12.2006
Áramót eru náttúrulegur atburður sem byggir á gangi jarðar um sólu en á hinn bóginn er ekkert náttúrulegt við það að þessi tímamót eigi sér stað á mótum desembers og janúars.
Réttarmorðið á Saddam Hussein er smánarblettur á Vesturlöndum
29.12.2006
Hið viðbjóðslega réttarmorð á Saddam Hussein sem nú er í uppsiglingu markar hvorki upphaf né endi á glæpum Bandaríkjamanna og Breta í Írak en það segir sína sögu um það hvernig þeir George W. Bush og Tony Blair eru ófærir um að aðhafast nokkurn hlut sem gæti gefið jákvætt siðferðisleg fordæmi í heiminum sem þeir stjórna í krafti kjarnorkuvopna.
Ólíkar leiðir í átt að friði
28.12.2006
Stjórnvöld í Argentínu, Brasilíu og Perú leitast nú öll við að koma á friði og stöðugleika eftir mikla umbrotatíma. En leiðirnar að markmiðinu eru afar ólíkar.
Dýrustu sportveiðar síðari tíma
27.12.2006
Hvort er líklegra að íslensk hágæðamatvæli nái nægilegri fótfestu á Bandaríkjamarkaði til að hægt verði að selja þær fyrir hærra verð með tímanum með eða án hvalveiða sem gera Íslendinga að viðundrum í augum fólksins sem tilbúið að borga vel fyrir góða vöru?
Jólapistillinn
24.12.2006
Allir keppast við að afneita hinum nýjum trúarbrögðum en það er öllu meira í orði en á borði.
Sögubrot af Tyrkja II: Nútímalegur tyrkjasoldán fallinn frá
23.12.2006
Fáir þjóðhöfðingjar nutu meiri hylli starfsbræðra í austri og vestri en forseti Türkmenistans, Saparmurat Nijazov.
Burt með hagvöxtinn (úr umræðunni)
21.12.2006
Þulan um hagvöxtinn er einhvern veginn svona: Fyrst þarf að huga að hagvextinum, og svo er hægt að nota hann. Við leggjum grunninn með hagvexti og svo má byggja ofan á.
Hvernig duga heimskra manna ráð?
20.12.2006
Í Íslendingasögum segir að þau dugi verr eftir því sem þau koma fleiri saman. Það virðist ekki vera svo galin kenning.
Réttlæti Rawls og heimspeki Hannesar
19.12.2006
Umfjöllun Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um heimspekikenningar John Rawls sýnir glögglega að stjórnmálafræðiprófessorinn hefur verið latur að lesa heima.
Dr. Geir og Hr. Haarde
18.12.2006
Það leið ekki á löngu frá því að forsætisráðuneytið kynnti skýrslu sína um fátækt barna á Íslandi þar til hún var harðlega gagnrýnd af talsmönnum stjórnarflokkanna. Harðasti gagnrýnandinn var þó forsætisráðherra sjálfur.
Alræmdasti einræðisherra samtímans
17.12.2006
Augusto Pinochet hefur þá sérstöðu meðal einræðisherra síðari tíma að hann velti úr sessi lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn og var hampað fyrir á Vesturlöndum.
Íslenskt samfélag og listamenn þess
16.12.2006
Það er hentugt að menningin haldist í hendur við alla aðra neyslu á aðalneysluhátíðinni, ekki satt? Hvað gæti verið betra en að leggjast á meltuna eftir svínahamborgarhrygginn með góða jólabók í hönd og rölta síðan út í Listasafnið og narta svolítið í Matisse?
Hellingur af rusli
15.12.2006
Hvar liggja mörkin milli fríblaða og sorps?
Vega velsæmi
14.12.2006
Við höfum flest öll kosið að hnappast saman á regnbarið nes við Faxaflóa og þar er að myndast stórborg þar sem menn þurfa að takast á við nábýli við hin óþekkta náunga. Það er mikil list sem við erum komin afar stutt á veg með að tileinka okkur eins og sést best á vegum landsins.
Eru leiðtogar Írans og Ísraels gengnir af göflunum?
13.12.2006
Nýlega var haldin í Teheran sérstök ráðstefna fyrir þá sem draga í efa frásagnir af helför gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni eða hafna því alfarið að nokkuð slíkt hafi átt sér stað. Skeytasendingar Olmerts og Ahmadinedjad í tengslum við þessa óviðkunnanlegu ráðstefnu hafa enn aukið á spennu í þessum heimshluta.
Morðhundur kapítalismans dauður – og senn gleymdur
12.12.2006
Kirk Douglas varð níræður á laugardaginn og sýndi að hann er með hausinn í lagi. Um helgina dó annað þekkt gamalmenni sem hafði nýlega sýnt fram á að siðblinda þess væri enn á sínum stað.
Hvaða upplýsingar?
11.12.2006
Á meðan meginþorri almennings áttaði sig á veikum málstað Bandaríkjastjórnar gerði meirhluti Alþingis sér ekki grein fyrir því vegna þess að hann bjó yfir einhverjum upplýsingum sem aðrir höfðu ekki.
Valþröng frjálshyggjunnar í umhverfismálum
10.12.2006
Íslenskir frjálshyggjumenn telja að vandamál umhverfisins leysist af sjálfu sér vegna þess að skynsamt fólk hafi hag af því að lágmarka mengun. Þessi rök hljóma ef til vill vel í fyrstu en standast ekki nánari skoðun.
Sefasjúk umræða um vegamál
9.12.2006
Þeir sem leggja ofurkapp á tvöföldun Suðurlandsvegar á kostnað annarra verkefna eru gamaldags hreppapólitíkusar.
Það þarf að huga að grundvallaratriðum
8.12.2006
Sú stríðsstefna sem ríkisstjórn Íslands hefur rekið undanfarinn áratug er byggð á grundvallarafstöðu og hefur falið í sér stuðning við ýmislegt misjafnt. Nú verða stjórnmálaflokkar að gera það upp við sig hvort þeir hafi kjark til að endurskoða utanríkisstefnuna frá grunni.
Varðmenn síðasta vígisins
7.12.2006
Til þessa hefur virst sem ekkert gæti ógnað veldi hægrimanna í Kólumbíu en nú eru blikur á lofti eftir að upp komst um náið samstarf þeirra við dauðasveitir sem stunduðu fjöldamorð, aftökur og pyntingar á þúsundum óbreyttra borgara um meira en tíu ára skeið.
Stríð, skilgreiningar og staðreyndir
6.12.2006
Sem betur fer eru allar ákvarðanir, alls staðar í heiminum og á öllum tímum teknar á grundvelli þeirra forsendna sem fyrir lágu á þeim tíma. Hvort þær eru réttar og hvernig forsendurnar eru valdar, skiptir meira máli.
Valdaránið í Fiji kemur Íslendingum við
5.12.2006
Þegar rætt er um öryggi á Íslandi er jafnan látið sem saman fari tilvist hers í landinu og aukið öryggi fyrir venjulegt fólk. Í dag rændi herinn á Fijieyjum völdum í landinu og setti forsætisráðherrann af.
Reynslan af grænum skattabreytingum
4.12.2006
Helstu rökin fyrir grænum skattabreytingum byggja ekki á því að þær séu réttlætismál, heldur einfaldlega á því að þær hvetja fyrirtæki til að hugsa betur um umhverfið og ráða í staðinn til sín fleira fólk. Þannig eru slegnar tvær flugur í einu höggi.
Borg óttans
3.12.2006
Í allri umræðu um glæpi er tilhneiging til að nota aðeins tvo hluti, svart og hvítt. Annað hvort er allt í himnalagi eða allir hræddir um líf sitt.
Hverjir mótmæltu Hitler 1934?
2.12.2006
Innflytjendur eru oft í erfiðri stöðu hér á landi, tiltölulega einangraðir og útilokaðir frá því að hafa áhrif í samfélaginu. Af hverju eru ekki fréttaþættir í Ríkisútvarpinu á pólsku og taílensku?
Klofið Bretland
1.12.2006
Meirihluti Skota virðist styðja hugmyndina um sjálfstætt Skotland og það sama á við um Englendinga. En það eru ekki margir stjórnmálaflokkar sem eru á sama máli.
Opið bréf til Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar
30.11.2006
Undanfarið hef ég lesið greinar þínar í Fréttablaðinu, nú síðast þann 25. nóvember, þar sem þú setur fram ýmsar efasemdir um niðurstöður vísindamanna um orsakir loftslagsbreytinga og þær afleiðingar sem þær hafa á vistkerfi jarðar. Lífleg umræða um loftslagsbreytingar er af hinu góða, en í upphafi slíkrar umræðu er mikilvægt að halda ýmsum grundvallaratriðum til haga um eðli vísinda.
Viljum við langan eða stuttan – fattara?
29.11.2006
Það verður að teljast athyglisvert að það hafi tekið Framsóknarflokkinn meira en þrjú ár að komast að því að innrásin í Írak var röng og að það var rangt af Íslendingum að styðja hana. Formaður flokksins ýjaði að þessu í ræðu um helgina og var klappað lof í lófa fyrir.
Fáheyrður stórsigur Sósíalistaflokksins í Hollandi
28.11.2006
Í vikunni sem leið vann systurflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Hollandi einn óvæntasta og sérstakasta stórsigur sem evrópskur, róttækur vinstriflokkur hefur unnið um langan aldur.
Iðrandi syndarar
27.11.2006
Um helgina fengu landsmenn afsökunarbeiðni og þær jafnvel tvær frekar en eina. Önnur kom frá söngvaskáldinu Árna Johnsen en hin frá Framsóknarflokknum.
Fólk í forgang
26.11.2006
Ef við viljum gera samfélagið fjölskylduvænna krefst það hugarfarsbreytingar þar sem fólk er sett í forgang fram yfir dót og drasl.
Brotakennd heimsmynd
25.11.2006
Fréttirnar í Broken News eiga það sammerkt að við erum engu nær og það skemmtilega og skelfilega við þennan sjónvarpsþátt er að hann er næstum því alveg eins og flestar fréttastofur heimsins, einkum þó þær sem eru helgaðar stöðugum fréttaflutningi.
Efahyggja umhverfissóðanna
24.11.2006
Andstæðingar umhverfisverndar eyða miklu púðri í að ráðast á niðurstöður alls meginþorra loftslagsfræðinga, en þegja svo jafnan þunnu hljóði um það hvort ríki heimsins eigi þá bara að taka sénsinn. Við getum ekki beðið eftir að jörðin hitni (eða kólni) á næstu árum og athugað hvort það stemmir við spár helstu loftslagsfræðinga.
Með Afa
23.11.2006
Það er gömul saga en sönn að eldri borgurum á Íslandi er almennt sýnt vanþakklæti og vanvirðing. Aðfluttir Íslendingar hafa sagt mér hvað þeir furði sig mikið á þessu; að í öðrum löndum þekkist það ekki að sparkað sé svona í gamla fólkið og því sagt að éta það sem úti frýs.
Það má ekki bend’á lítinn kall
22.11.2006
Landsmenn gætu haft gott af því að tileinka sér hugmyndafræði Toms Shakespeare sem sett hefur fram virkilega áhugaverðar kenningar um hvað valdi fötlun í raun og veru.
Mannvirkin á Miðnesheiði
21.11.2006
Kaninn fór þegar honum hentaði og skildi allt eftir sig og stjórnvöld tilkynna að við höfum gert vel í samningum; að fá að halda því sem Kaninn vildi ekki og tímdi ekki að hreinsa eftir sig.
Milton Friedman og einræði frjálshyggjunnar
20.11.2006
Er fólk frjálsara í einræðisríki sem fylgir forskrift frjálshyggjunnar en þar sem stjórnin er í höndum lýðræðislega kjörinna sósíalista?
Siðlaus atkvæðakaup
19.11.2006
Nýlega var sagt frá því í fréttum að tugir milljóna Bandaríkjamanna hefðu ekki nóg að borða. Þetta var niðurstaða skýrslu sem unnin var á vegum landbúnaðarráðuneytisins þar í landi.
Flóð í uppsiglingu
18.11.2006
Það er kominn tími til að Íslendingar reisi garða til að verjast jólabókaflóðinu. Við eigum ekki að dekra við ósiði okkar, hvorki sem einstaklingar né þjóð.
„Þetta fólk“
17.11.2006
Nýlega, á síðastliðnum vikum, hef ég fengið ónotatilfinningu af því að ganga um götur borgarinnar. Það er ekki vegna kuldans, heldur vegna einhvers öðruvísi viðmóts fólksins en áður var.
Samfélagsrýni Borats
16.11.2006
Allir sem hafa vott af skopskyni vita að höfundur Borats, Sacha Baron Cohen, er ekki að lýsa kasakstönsku þjóðinni, heldur fordómum okkar gagnvart henni og öðrum í Mið-Asíu.
Til hvaða örþrifaráða mun Framsóknarflokkurinn grípa?
14.11.2006
Í raun er aðeins ein ástæða eftir til að kjósa Framsókn: Að sjá Framsóknarmann tala fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins þegar Sjálfstæðismenn þora það ekki sjálfir. Það er nefnilega óvinsælt að slást við öryrkja, sökkva náttúruperlum, styðja árásarstríð í Írak, fjársvelta skóla og auka ójöfnuð með skattabreytingum í þágu þeirra sem mest eiga.
Hversu lengi er hægt að ljúga?
13.11.2006
Hvernig stendur á því að forvígismenn árásarstríðsins gegn Írak biðla nú til Sýrlendinga og Írana um hjálp við að koma á friði í Austurlöndum nær?
EES-samningurinn og sýndarveruleiki Frjálslynda flokksins
12.11.2006
Ekki verður séð að Frjálslyndi flokkurinn hafi sérstöðu gagnvart innflytjendum miðað við stjórnarflokkanna. Hann getur aðeins mótað sér slíka sérstöðu með því að leggja til að EES-samningnum verði sagt upp.
Vatnsskorturinn, fátæktin og goðsagnirnir
11.11.2006
Framlög ríku þjóðanna til þróunarsamvinnu hafa ekki verið minni í meira en 50 ár. Það er talið kosta 40-60 milljarða dollara að minnka fátækt í heiminum um helming. Í Írak er búið að eyða næstum 380 milljörðum dollara í stríð.
Ertu að kalla mig Hitler?
10.11.2006
Svokölluð útlendingaumræða á líðandi stundu hvílir á fölskum forsendum.
Nancy Pelosi gengur nú næst Bush og Cheney að tign
9.11.2006
Þau stórtíðindi urðu í bandarísku þingkosningunum að Demókratar höfðu sigur og kona verður í fyrsta sinn forseti fulltrúadeildarinnar.
Illa falin kynþáttahyggja Frjálslyndra
8.11.2006
Það sorglegasta við uppgang kynþáttahyggju í íslenskum stjórnmálum að líklega kemur hún í veg fyrir að hægt sé að ræða raunveruleg vandamál sem innflytjendur standa frammi fyrir í íslensku þjóðfélagi, nefnilega einangrun sem bæði stafar af og viðheldur fátækt.
Það dugar ekkert minna en algjört jafnrétti
7.11.2006
Þó að það sé rétt nýbyrjað að stilla upp á lista hjá stjórnmálaflokkunum er óhætt að segja það strax að útlitið er ekki gott í jafnréttisbaráttunni. Einkum er áberandi hve erfitt konur eiga uppdráttar í prófkjörum.
Klofin Samfylking
6.11.2006
Úrslit í prófkjörum Samfylkingar benda til þess að stóriðjustefnan njóti þar meira fylgis en forystan hefur viljað vera láta.
Skutlum hvað sem það kostar
5.11.2006
Það þarf að skera niður til framhaldsskólanna, það má ekki styrkja Fjölmennt um tólf milljónir, en ef það þarf að henda fé í landkynningu vegna þess að það er mjög brýnt að veiða hér nokkra hvali sem reyndar enginn kaupandi er fundinn að, þá er meira að segja Spari-Einar tilbúinn að seilast dýpra ofan í vasann.
Af hverju vilja sjálfstæðismenn ekki konur?
4.11.2006
Umræðan um það hvort lítið framboð sé af hæfum konum í Sjálfstæðisflokknum, eða þá hvort lítil eftirspurn sé eftir þeim sem þó eru í boði, er einungis hliðarspor frá stærri umræðu, um stöðu kvenna innan íslensks viðskiptalífs. Flokkur sem trúir á viðskiptalífið sem hina einu réttu fyrirmynd mun aldrei laga heimsmynd sína að öðru módeli sem hann fyrirlítur, jafnréttissamfélagi hins opinbera.
Öryggi ríkis eða ríkisstjórnar?
3.11.2006
Um suma þætti öryggismála ríkir almenn sátt í þjóðfélaginu. Við það má hins vegar bæta að þar sem engin sátt er fyrir hendi þá hefur almenningur ríka ástæðu til að tortryggja stjórnvöld en enga ástæðu til að gefa þeim rýmri heimildir til að tryggja „öryggi ríkisins“.
Hver má fremja þjóðarmorð?
2.11.2006
Tyrkneskir hermenn frömdu þjóðarmorð á Armenum fyrir tæplega 100 árum - það er staðreynd. En ekki skortir á hræsni margra ríkisstjórna sem ganga fram fyrir skjöldu og segja Tyrkjum til syndanna fyrir meðferðina á Armenum.
Ætlar ódýr brella Einars K. að ganga upp?
1.11.2006
Hvalveiðarnar margumræddu gegna sama hlutverki og kosningaauglýsingar repúblikana í Bandaríkjunum. Það er engin ástæða til að gera ríkisstjórninni það til geðs að láta fléttuna ganga upp.
Hver á að lifa vel og lengi?
30.10.2006
Á sama tíma og hér á landi tíðkast hærri laun en nokkru sinni fyrr ákveða stjórnir lífeyrissjóða að þeir sem fái „of mikið“ séu öryrkjar. Þessir stjórnarmenn mættu gjarnan fara og kynna sér aðstæður öryrkja.
Leiðtoginn tryggir tök sín
29.10.2006
Það blasir við að það er Geir Haarde og stuðningsmenn hans sem hafa hagsmuni af að Björn Bjarnason náði ekki 2. sætinu. Ræða Geirs um meinta aðför utanflokksfólks að Birni hefur þó hugsanlega fallið í frjóan jarðveg hjá fólki sem heldur árásin á World Trade Center hafi verið skipulögð af Kim Jong Il og Richard Cheney í sameiningu.
Er nauðsynlegt að skjóta þá, aftur?
28.10.2006
Hvalveiðar skipa afar lítinn sess í atvinnusögu þjóðarinnar og gætu þess vegna flokkast með loðdýrarækt fremur en nýtingu auðlinda hafsins. Þar af leiðandi er fáránlegt hvernig veiðarnar hafa verið tvinnaðar saman við þjóðarstolt í seinni tíð.
Manstu gamla daga?
27.10.2006
Múrinn hefur gaman af sögulegum upprifjunum og einnig af getraunum ýmiss konar.
Af hornreka hornamönnum
26.10.2006
Eftir að vinnumarkaður Evrópska efnahagssvæðisins opnaðist íbúum nýju ESB-landanna, s.s. Póllands, hafa viðbrögð kerfisins verið þau að reyna að “skera niður á móti” með því að leggja stein í götu þeirra sem utan standa.
Þjáning, helsi, vanlíðan
25.10.2006
Fleiri og fleiri börn greinast með andlega kvilla, hvort sem það er nú vegna skorts á samveru við foreldra eða bara vegna þess að þeim er gert að fylgja sama skipulagi og vinnandi fólki, sífellt skipað fyrir verkum, rekin áfram af klukkunni og ótta við að dragast aftur úr í prófanlegri skólafærni.
Fagra Ísland, mýrarljós eða möguleiki?
24.10.2006
Hvers vegna leggur Samfylkingin fram sérstaka umhverfisstefnu ef hún telur síðan sjálf að ekki sé mark á henni takandi?
Upplýsingamengun prófessorsins
23.10.2006
Getur verið að prófessor í stjórnmálafræði skilji ekki skilyrðissetningar? Er tölfræðingum betur treystandi en loftslagsfræðingum fyrir rannsóknum í loftslagsmálum?
Klisjur stuðla að meðvitundarleysi
22.10.2006
Stjórnmálamenn sem beita klisjum gera það fyrst og fremst vegna þess að þeir treysta sér ekki til að gagnrýna raunverulegan málstað pólitískra andstæðinga eða verja eigin skoðanir. Þess í stað eru reist ímynduð vígi orðræðunnar þar sem stjórnmálamaður getur ótruflaður skotið billegum skotum á strámenn.
Sniðugheit eða græðgi?
21.10.2006
Það er ekki aðeins launamunur kynjanna sem vekur athygli í nýrri karakönnun heldur ekki síður þær fréttir að ójöfnuður fari vaxandi og launabilið breikki.
Áfram Ísland!
20.10.2006
Hvalveiðar eru ekki nóg.
Fangar fá vasapening - frétt dagsins
19.10.2006
Enska dagblaðið Metro er ókeypis, líkt og Fréttablaðið. Það er að segja fyrir fólk sem les það en ekki fólk sem þar er til umfjöllunar.
Í krossferð gegn kjaftæði
18.10.2006
Væri ekki einnar messu virði fyrir einhverja af sjónvarpsstöðvunum að hefja sýningar á Bullshit í staðinn fyrir einhvern af þessum svokölluðu raunveruleikasjónvarpsþáttum sem ætla allt að drepa úr leiðindum?
Meiriháttar kosningaklúður í Ecuador
17.10.2006
Einkafyrirtækið sem stærði sig af einstaklega skjótum vinnubrögðum við atkvæðatalningu sprakk á limminu þegar rúm 70% atkvæða höfðu verið talin. Enginn veit hvað tekur við.
Umhverfisvernd er siðferðisafstaða
16.10.2006
Spár breskra sérfræðinga um stóraukna þurrka á jörðinni vegna gróðurhúsaáhrifanna eru sláandi og ættu að gera fólki enn ljósara en áður að aukin losun kolefnissambanda út í andrúmsloftið veldur hungri og hörmungum í mörgum af fátækustu ríkjum heims.
Fjölskylduvænna samfélag
15.10.2006
Almenn sátt hefur verið um að telja nýjustu fæðingarorlofslögin eitt mesta framfaraspor í málefnum íslenskra fjölskyldna á undanförnum árum. Lengra fæðingarorlof væri skynsamleg leið til að gera enn betur.
Af einelti og auðlindastjórnun
14.10.2006
Geta Íslendingar eitthvað lært af Svíum um meðferð, verndun og nýtingu náttúruauðlinda þannig að stuðla megi að heilbrigðri sambúð atvinnulífs, umhverfis og náttúru?
Mælt með menntastefnu
13.10.2006
Háskóli Íslands hefur sérstaklega orðið illa úti í stefnuleysi undanfarinna ára. Hundruð nemenda hafa á hverju ári stundað nám við HÍ án þess að fyrir það fengist greitt úr ríkissjóði og framlag ætlað hverjum nemenda er þegar afar naumt skammtað.
Þrjár ástæður til að fordæma kjarnorkuvígvæðingu (í Norður-Kóreu og víðar)
12.10.2006
Öll gagnrýni á hinar ömurlegu kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu á raunar jafn vel við um kjarnorkuveldin sem fyrir eru. Munurinn er aðeins sá að í þetta sinn beinast vopnin hugsanlega að Bandaríkjunum.
Vandamál allsnægtaþjóðfélagsins
11.10.2006
Lífið fyrir fólk á aldrinum 17-25 ára krefst þess að það sé með talsverða, eða jafnvel frekar mikla, peninga á milli handanna. Það kallar yfirleitt á mikla vinnu með námi sem leiðir af sér minni ástundun og lakari námsárangur.
Afkomendur Manasseh snúa "heim"
10.10.2006
Á sama tíma og ísraelsk stjórnvöld bera við plássleysi þegar gerðar eru kröfur um að palestínskir flóttamenn fái að snúa heim, taka þau brosandi við innflytjendum frá ... norðaustanverðu Indlandi.
Gengisfelling orðanna
9.10.2006
Einu sinni voru gengisfellingar vinsælar á Íslandi. Núna gengisfella menn orðin í staðinn til að reyna að láta vorkenna sér þegar síst skyldi.
Hægrigræn pólitík án lausna
8.10.2006
Sjálfstæðismenn á Íslandi hafa sýnt það í orði og verki að umhverfisspjöll liggja þeim í réttu rúmi. Þeir eru fyrst og fremst „vinir einkabílsins“. Skrif Illuga Gunnarssonar um umhverfismál sýna það að þessar áherslur eru ekki að breytast. Því miður.
Einelti
7.10.2006
Þeir sem stóðu fyrir hlerunum á pólitískum andstæðingum árum saman og hafa með offorsi staðið fyrir stórfelldustu umhverfisspjöllum Íslandssögunnar líta á sjálfa sig sem fórnarlömb eineltis. Hvernig má það vera?
Við þurfum öðruvísi flokk
6.10.2006
Eftir nokkur mótunarár sést þróunarstefna VG dável, segir Þórarinn Hjartarson sem í gestapistli reifar hugmyndir sínar um það hvers konar stjórnmálaflokkur gagnist almenningi á Íslandi best.
Ísland dregið enn lengra niður í svaðið
5.10.2006
Smán landsmanna, í boði ríkisstjórnarinnar hefur verið fullkomnuð með formlegri yfirlýsingu um að NATO hafi tekið við yfirstjórn hernaðaraðgerða í Afghanistan eftir nálega fimm ára linnulausan stríðsrekstur Bandaríkjanna þar í landi.
Hætturnar í nýju náttúruverndarhreyfingunni
4.10.2006
Náttúruverndarbarátta er, og ætti að vera, í eðli sínu alþjóðleg. Kjarni hennar felst í því að vissir staðir jarðarinnar séu verðmætir án tillits til geðþóttaákvarðana þjóða og ríkisstjórna þeirra á hverjum tímapunkti.
Ecuadorstjórn sveigir enn lengra til vinstri
3.10.2006
Ríkisstjórn Alfredo Palacio hefur ákveðið að tekjuskattur á erlend olíufyrirtæki verði hækkaður úr 20% í 50% og rift samningi um vinnsluleyfi bandaríska olíufélagsins Occidental í landinu eftir rúmlega hálfs árs þref.
Símafyrirtækin vísa öllu á Bug
2.10.2006
Nýleg könnun Póst- og fjarskiptastofnunar hefur vakið nokkra athygli en þar kemur fram að Íslendingar borga sífellt meira fyrir að hringja.
Minni her, meira öryggi
1.10.2006
Herinn er farinn og íslenska hermafían er móðursjúk. En ekki almenningur. Því að friður verður ekki tryggður með vopnum heldur einmitt með vopnleysi.
Kosið um Smárahnjúkavirkjun
30.9.2006
Samfylkingin kynnti fyrir skömmu nýja umhverfisstefnu en framganga hennar fólks á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga vekur spurningar um hvort hugur fylgi máli.
Að læra af jarðsögunni
29.9.2006
Samkvæmt nýjum kenningum um útdauða risaeðlanna og fleiri tegunda í tímans rás, eru gróðurhúsaáhrif nútímans ekki þau fyrstu sinnar tegundar og munu hafa geigvænleg áhrif ef ekki verður nóg að gert.
Tvær rangar hugmyndir um fjölmiðla (og ein rétt)
28.9.2006
Umræða um fjölmiðla sveiflast gjarnan milli tveggja hugmynda sem báðar eru rangar. Fjölmiðlar ákvarða ekki hvað er rétt og rangt, en hafa mikil áhrif á það hvað okkur finnst mikilvægt.
Neyðarlegt vindhögg
26.9.2006
Eftir að hafa skorað ótrúlegt sjálfsmark í nýjasta lekamálinu er grátbroslegt að George Bush skuli grípa til þess að segja andstæðinga sína í málinu vera barnalega í gagnrýninni á Íraksstríðið.
Slöpp frásögn af margboðaðri útför
25.9.2006
Enn einu sinni bregst Ríkisútvarpið hlutverki sínu sem menningarmiðill með því að sýna arfaslappa heimildarmynd um eitt mikilvægasta deilumál 20. aldar.
Lífið er súludans
24.9.2006
Súludans má aðeins ræða í einu samhengi, þ.e. samhengi frjálsra viðskipta og réttar karla til að hafa lífsviðurværi af því að sýna öðrum körlum berar konur.
Þegar útvarpsstjóri varð undirmaður
23.9.2006
Páll Magnússon er dæmi um fjölmiðlamann hins nýja tíma sem ekki aðeins hefur enga burði til að andæfa svipunni heldur fagnar hann henni beinlínis og biður um meira.
Andófslist
22.9.2006
Friðarstefnan hefur löngum notið góðs liðsinnis meðal íslenskra listamanna. Sá stuðningur hefur lifað þrátt fyrir aldafar sem krefst aðgreiningar listar, samfélags og stjórnmála.
Eru þyngri refsingar „patentlausn“?
21.9.2006
Þyngri refsingar eru ekkert svar við glæpum, frekar en risavaxnir herir eru besta svarið við stríði.
Úrslit sænsku þingkosninganna
20.9.2006
Það er verulega athyglisvert að sænskir íhaldsmenn hafi fengið sína bestu kosningu frá 1928 með því að láta kjósendur ekki einu sinni vita hvað þeir myndu gera ef þeir fengju einir að ráða. Svíar virðast hafa trúað því að hægriflokkarnir fetuðu svipaða braut og fráfarandi ríkisstjórn en margt bendir til að það muni reynast rangt.
Drengileg viðskipti
19.9.2006
Í allri þeirri velmegun sem ríkt hefur hér á landi er furðulegt hve hlutur drengilegra viðskipta er enn lítill. Því er full ástæða til að hvetja fólk til að svipast eftir og spyrja um drengilegar vörur.
Jafnrétti til náms er dautt og grafið
18.9.2006
Enn hefur Háskóli Íslands langmesta úrvalið af námsfögum, í skorum og deildum sem visna eins og blóm sem aldrei eru vökvuð því það sem þær hafa að bjóða þykir ekki nógu eftirsótt fyrir þröngsýnt íslenskt þjóðfélag.
Alþjóðabankinn svarar aðdáendum sínum
17.9.2006
Burtséð frá því hvaða hugmyndafræði fólk aðhyllist þá hlýtur að blasa við öllum að ef takast á að minnka sárafátækt, hvað þá útrýma henni, verður að stórauka fjárhagsaðstoð við fátækari ríki heims.
Alvarleg umræða um leyniþjónustu
16.9.2006
Það þarf að sýna fram á þörf fyrir leyniþjónustu og það dugar ekki að tala bara um lögmálið eða vísa til hryðjuverka í þrælvígbúnum nágrannalöndum.
Hvað er tröll?
15.9.2006
Hin nýja Bjólfskviða er forvitnileg mynd og óhætt er að hvetja alla Íslendinga til að sjá hana.
Galloway gefur tóninn
14.9.2006
Það að ætla Hizbollah að láta af andófi á meðan Ísraelar fara sínu fram, er eins og að hafa ætlað andspyrnuhreyfingu síðari heimstyrjaldar að hætta starfsemi í miðjum klíðum.
Gegn heimanámi
13.9.2006
Öll börn eiga að hafa jafna möguleika til að stunda allar tegundir af námi. Til þess að svo verði þarf að vinna markvisst að því að útrýma þeirri tegund sem nýtur minnstra vinsælda í skólum landsins.
Óþægilegur sannleikur
12.9.2006
Ný mynd eftir Al Gore er mun merkara pólitískt framlag en kosningabarátta hans árið 2000 og sýnir að pólitík er miklu meira en kosningar.
Snautleg brottför
11.9.2006
Ef bandaríski herinn hefði yfirgefið Ísland eftir 40 ára hersetu hefði hann líklega getað farið héðan með óverðskuldaðri reisn. En sem betur fer voru leiðtogar Sjálfstæðisflokksins ekki svo klókir.
Geir Haarde er hneykslaður – og ég líka
10.9.2006
Það er gott að Geir Haarde tali skýrt um hvað hneykslar hann. Í grein dagsins er farið að dæmi hans og skýrt frá því hvað höfundi finnst vera hneyksli.
Hvaða tilgang hafa fréttir?
9.9.2006
Fréttamennirnir segja allar sömu fréttirnar vegna þess að þeir eru svo stutt komnir í vísindalegri hugsun að þeir telja að sannleikurinn sé bara einn og að hann megi finna með mystískri aðferð sem kallast „fréttamat“.
Sérkennilegt fréttamat
8.9.2006
Hvenær eru kosningasvik og fjöldamótmæli fréttnæm? Fer það eftir landafræðinni eða eftir því hver svindlar í hverju tilviki fyrir sig?
Vindurinn sem skekur kornið
7.9.2006
Bíórýnir Múrsins brá sér til áranna 1920-1922 í fylgd með Ken Loach.
Svíar ganga bundnir til kosninga
5.9.2006
Ef takast á að fella ríkisstjórnina og bjóða fram aðra lausn þurfa íslensk félagshyggjuöfl að taka sér sænska íhaldsflokkinn sér til fyrirmyndar fremur en sósíaldemókratana. Ekki hvað varðar stefnumálin, heldur samstarfsaðferðir.
Sigur tæknikratans og bestun þjóðarhagsins
4.9.2006
Nýr formaður Framsóknarflokksins virðist telja að viðfangsefni íslenskra stjórnmála séu svo tæknileg að réttt sé að innleiða svokallaða þjóðhyggju, sem hafi það háleita markmið að vegur þjóðarinnar verði sem mestur.
Baulað úr háum hamri
3.9.2006
Hann sagði það líklega verða sitt síðasta verk í pólitík að kjósa Geir H. Haarde til formennsku í flokknum sínum en landsfundur var þá skammt undan.
Af hverju viljum við almannatryggingakerfi?
2.9.2006
Hvernig ber að tryggja öllum að geta lifað með reisn? Gott almannatryggingarkerfi er þar lykilatriði.
Drottningin fór í viðtal
1.9.2006
Drottningarviðtalið við Valgerði Sverrisdóttur í Kastljósinu er ekki aðeins henni sjálfri til minnkunar heldur einnig fjölmiðlamönnunum sem dirfast að bjóða upp á slík viðtöl.
Er Framsóknarflokknum treystandi?
31.8.2006
Titill þessarar greinar segir allt sem segja þarf. Og lesendur geta giskað á svarið.
Stórt hagsmunamál
29.8.2006
Þær vestrænu ríkisstjórnir sem kenna sig við viðskiptafrelsi hika ekki við að vernda eigin afurðir með himinháum tollum. Er eitthvert vit í því?
Tákn úr fortíðinni II — Arfleifð Suðurríkjanna
28.8.2006
Þó að langt sé liðið frá borgarastríðinu í Bandaríkjunum sjást enn merki þess, m.a. í fylkisfánum ýmissa Suðurríkja og fylkissöngvum.
Kant og klikkaði Kínverjinn á Kárahnjúkum
27.8.2006
Hvernig getur maður vitað eitthvað fyrir víst? Ástandið á Kárahnjúkum vekur margar slíkar spurningar.
Hvenær er maður reikistjarna?
26.8.2006
Spurningin um það hvort Plútó teljist reikistjarna snýst hins vegar um annað en hina fyrrverandi plánetu sjálfa. Hún snýst um hugtök og staðla, en án þeirra getur veröld nútímamannsins ekki þrifist.
Darfur þarf alþjóðlegt friðargæslulið strax
24.8.2006
Enn er fólk drepið í Darfur og brotið á mannréttindum þess. Umheiminum virðist vera nokk sama.
Þjóðhyggjan og Evrópusambandið
23.8.2006
Það verður athyglisvert að sjá hvernig hinn nýi formaður Framsóknarflokksins mun tala um Evrópusambandið á komandi misserum. Ljóst er að yfirlýst þjóðhyggja hans fer ekki vel saman við orðræðu stuðningsmanna Evrópusambandsins á Íslandi.
Sérfræðingurinn er í símanum
22.8.2006
Í nýjum netvæddum heimi geta stjórnmálamenn nánast alltaf fundið einhvern fræðimann sem er sammála þeim og ljær þar með skoðun þeirra vísindalegt yfirbragð. Múrinn skoðar málið.
Allt komið í lag aftur
21.8.2006
Spekingarnir segja að Framsóknarflokkurinn standi vel þó að kannanir segja annað. En spár þeirra hafa sem betur fer sjaldan ræst.
Þjóðernishyggjan lifir enn góðu lífi
19.8.2006
Nú hefur Framsóknarflokkurinn kosið sér nýjan formann. Sá talar hins vegar eins og skuggi fortíðar. Ætla íslenskir stjórnmálamenn aldrei að losna undan þjóðernishyggjunni?
Að þenja sig
18.8.2006
Þegar öllu er á botninn hvolft berum við sjálf ábyrgð á þenslunni og síbreytilegri ríkisstjórn virðist koma málið lítið við. Eða hvað?
Alfredo Stroessner og arfleifð hans
17.8.2006
Það er víst ekki mikið skáldlegt réttlæti í friðsælu andláti Alfredo Stroessners. Frekar í því valdaleysi og tómi sem þetta illa gamalmenni bjó við undir lok ævinnar.
Að feta hinn gullna veg gagnrýninnar
16.8.2006
Sumt má ekki gagnrýna. En er það gott? Og felst umburðarlyndi í því að gagnrýna ekki vissa hluti?
Topp fimm stjórnmálaskýrendur
15.8.2006
Þegar ekkert er að gerast á landinu bláa verða fréttafíklar að líta til annarra átta. Og þurfa ekki að verða sviknir af því ef valið er vandað.
Meðferð við femínisma?
14.8.2006
Sumir vilja „lækna“ samkynhneigð. Ætli þeir sömu finni ekki líka bráðum upp á „meðferð“ við femínisma?
Er framtíðinni lokið?
13.8.2006
Mannkynið hefur gert nóg af því að hylla sjálft sig. Við þurfum aftur að fara að huga að því hvernig við getum bætt okkur sjálf. Við þurfum aftur að hefja augun upp til himins.
Skuggaverur — smásaga
11.8.2006
Að þessu sinni gerist Múrinn skáldlegur og birtir smásögu um einn örlagaríkasta viðburð 20. aldarinnar.
Lögreglan fer offari
10.8.2006
Er löggan að eipa? Svo virðist vera ef marka má fréttir frá virkjunarsvæði Kárahnjúka undanfarna daga.
Logar friðar gegn stríðsbáli
9.8.2006
Þótt kjarnorkuógnin sé ekki jafn fyrirferðarmikil í almennri umræðu nú og fyrr á árum, er hún enn jafn raunveruleg. Friðarsinnar fleyta kertum í Reykjavík og á Akureyri í kvöld klukkan 22:30.
Reglubundið eftirlit
8.8.2006
Allt hugsandi fólk sér að það sem gerðist við Snæfell er ekki hægt að kalla reglubundið eftirlit heldur eru þar á ferð sértækar aðgerðir sem skipulagðar eru af lögregluyfirvöldum í samráði við Landsvirkjun og aðra burðarása stóriðjustefnunnar.
Bleikir þríhyrningar árið 2006
7.8.2006
Nýjasta skotmark dauðasveitanna í Írak eru samkynhneigðir og fólk sem hefur verið neytt til vændis með kaupendum af sama kyni. Mynd Jennifer Copestake um málið verður sýnd á More4News í kvöld.
Almenningssamgangnanet um allt Ísland
6.8.2006
Mikilvægt er að næsta ríkisstjórn verði framfarasinnuð og skipuleggi almenningssamgöngur um land allt.
Skynsamlegasta leiðin gegn loftslagsbreytingum?
5.8.2006
Nú er spurning: Á að skjóta risablöðrum fullum af súltatögnum upp í heiðhvolfið til að draga úr gróðarhúsaáhrifunum eða keyra minna? Maður spyr sig.
Grænn fram í rauðan dauðann
4.8.2006
Vestanhafs hefur verið stofnuð sérstök útfararþjónusta þar sem séð er um að hola manni niður á sem grænastan hátt.
Mannkynssagan að hætti McDonalds
3.8.2006
Illugi Gunnarsson setti nýlega fram þá merku sýn á ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs að orsakanna fyrir þessari lotu blóðsúthellinganna væri einfaldlega að leita í hryðjuverkum og átti þá væntanlega við árásir Hizbollah-skæruliða frá suðurhluta Líbanon.
Fidel fer í frí
2.8.2006
Einn seigasti byltingarmaður 20. aldar hefur nú tilkynnt að hann sé kominn í veikindaleyfi fram á haust.
Múrstiklur — enn og aftur
1.8.2006
Þið hélduð að þið væruð laus við Múrstiklur rétt eins og alla hina geðveikilegu greinaflokkanna. Sú er ekki raunin. Ó nei.
Íslenskt sjónvarp er sníkjumiðill
31.7.2006
Sjónvarpsmenning Íslendinga er hrein sníkjumenning. Við erum rottur sem nærumst á leifunum af nægtarborði amerískra sjónvarpsneytenda.
Hreingerning með haglabyssu
30.7.2006
Eru mávar plága sem þarf að eyða? Eða eru þeir lifandi verur með sama rétt til lífs og aðrar verur? Múrinn spyr sig og aðra.
Ofbeldi í stað alþjóðalaga
29.7.2006
Bandaríkjastjórn vill ekki koma á lýðræði í Miðausturlöndum heldur koma þar á hlýðnum stjórnvöldum með ofbeldi. Innrás Ísraels í Líbanon er liður í þessari viðleitni.
Mogginn finnur sér kaldastríðsandstæðing
28.7.2006
Staksteinar Moggans skamma Múrinn. Múrinn svarar fullum hálsi.
Hvílík fórn
27.7.2006
Fulltrúi Múrsins brá undir sig betri fætinum og skoðaði nokkra af þeim stöðum sem hverfa undir vatn á næstunni, þ.á m. staði sem eru enn harla lítið þekktir en ekki ómerkilegri fyrir það.
Að hafa en geta ekki
26.7.2006
Skiptir máli að hafa komið til Kárahnjúka þegar maður getur það aldrei aftur? Það er efinn.
Getan, þörfin og strætisvagninn
25.7.2006
Er einkabíllinn eitthvað „frjálsara val“ en strætó? Múrinn spyr sig og hristir höfuðið yfir málflutningi Sjálfstæðismanna.
Nýir Íslendingar í framboð: Um gagnkvæma aðlögun, jafnrétti og samstöðu
24.7.2006
Nú hefur verið stofnaður stjórnmálaflokkur nýrra Íslendingar. Múrinn veltir því fyrir sér hvort þetta sé nauðsynlegt skref til að vekja athygli á málefnum innflytjenda á þeirra eigin forsendum.
Þriðja víglínan í nýlendustríðinu endurvirkjuð
22.7.2006
Árásir Ísraels á Líbanon eru liður í fyrsta nýlendustríði 21. aldar, sem hófst með hernámi Afganistans.
Óvinir Strætó?
21.7.2006
Sjálfstæðismenn hafa löngum kallað umhverfissinna „óvini einkabílsins“. En hver er óvinur hvers? Er ekki nær lagi að kalla Sjálfstæðismenn óvini strætó? Að minnsta kosti hamast þeir mjög gegn hvers konar almenningssamgöngum.
Bölvun hræsninnar
20.7.2006
Hræsni er algengur merkimiði í pólitískri orðræðu. En er hann alltaf réttmætur?
Flagð og fagurt skinn
19.7.2006
Talsmenn stjórnarflokkanna keppast nú hver við annan um að grænþvo sig því að allir vilja virðast mesti og besti umhverfisverndarsinninn. En Múrinn þekkir flagð undir fögru skinni...
Leggjum niður Landsvirkjun!
18.7.2006
Burt með báknið. Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að skýla sér á bak við Landsvirkjun þegar um er að ræða grundvallarmál varðandi umhverfi og nýtingu auðlinda.
Fréttnæm beiskja?
17.7.2006
Fjölmiðlar hafa nokkuð rætt um grein Margrétar S. Björnsdóttur í Morgunblaðinu þar sem fram kemur að a.m.k. einhverjir í Samfylkingunni vilja gjarnan halla sér að íhaldinu — a.m.k. ekki VInstri – grænum! Múrinn greinir ástandið.
Hetjurnar redda þessu
16.7.2006
Er ekki bara best að bíða eftir góðri hetju til að bjarga málunum fremur en að gera eitthvað sjálfur? Eða skiptir eitthvað annað meira máli en ein góð hetja?
Strætóhatararnir hafa tekið völdin
15.7.2006
Nýi hreppstjórinn í Reykjavík er vinsæll enda virðist hann afturhaldssamur með eindæmum og fátt virðist fjölmiðlum líka betur.
Mexíkóska tölfræðiundrið
14.7.2006
Hreint og klárt tölfræðiundur virðist hafa orðið í kosningunum í Mexíkó á dögunum og minnir það greinarhöfund jafnvel á tölfræðilegan furðutening úr æsku hans.
Með einlægnina að vopni
13.7.2006
Thom Yorke hefur nú gefið út sólóplötuna Eraser en hann ásamt hljómsveitinni Radiohead eru meðal athyglisverðustu þjóðfélagsrýna undanfarinna ára. Múrinn kannaði málið.
Að eiga landið
12.7.2006
Hvernig verður að ferðast um Ísland þegar landið allt verður komið í hendur auðmanna? Múrinn spyr sig og aðra.
Mannréttindi hverra hafa hæstan forgang?
11.7.2006
Steinríkur taldi á sínum tíma að Tjallar væru tjúllaðir. Og sú virðist raunin vera þegar viðhorf Blairs og stjórnar hans til mannréttinda eru gaumgæfð.
Tímum við einu prósenti?
10.7.2006
Auðveldlega má reikna út að helmingun fátæktar í heiminum kostar minna en 0,4% þess sem meðaleinstaklingur í þessum löndum fær í laun. Líklega gæti 1% af tekjum okkar því útrýmt lífshættulega fátækt með öllu.
Síðustu forvöð
9.7.2006
Meira að segja Framsóknarflokkurinn er búinn að fatta að stóriðja er ekki svöl. En trúir einhver orðnum nýs iðnaðarráðherra um að stóriðjan sé löngu farin af dagskrá ríkisstjórnarinnar?
Mannlegur harmleikur á útsölu
8.7.2006
Um þessar mundir eru mannlegir harmleikur á útsölu í Kringlunni. Þar getur maður nú fengið eitt stykki harmleik með nýju Diesel-buxunum og Nike-skónum.
Góður ásetningur er ekki nóg
7.7.2006
Almenn tilmæli virðast duga skammt til að tryggja fötluðum sama aðgengi og öðrum að samfélaginu. Er kominn tími til að taka af sér silkihanskana og sýna smá hörku? Múrinn spyr.
Þörf nýjung í menningartengdri ferðaþjónustu
6.7.2006
Nýtt Þórbergssetur hefur nú verið opnað á Hala í Suðursveit og verður það vonandi til þess að Þórbergur fái aukna athygli enda einn af meisturum íslenskra bókmennta.
FIFA, KSÍ og baráttan gegn mannréttindabrotum
5.7.2006
KSÍ kýs að skipta sér ekki af mansali og vændi sem stundað er í tengslum við HM í knattspyrnu. En hlýtur það ekki að vera markmið íþróttahreyfingarinnar að berjast gegn slíkum mannréttindabrotum? Það heldur Múrinn.
Vísindin og umhverfið
4.7.2006
Röksemdir þeirra sem efast um að gróðurhúsaáhrifin séu af manna völdum eru í besta falli loðnar enda benda óskyldir þættir allir í sömu átt.
Deild 5
3.7.2006
Hvaða starfsemi fer fram undir merkjum Deildar fimm hjá Ríkislögreglustjóra?
Þjóðin vill frumlega hugsun í utanríkismálum
2.7.2006
Íslendingar eiga að horfast í augu við veruleikann og viðurkenna að engin ógn frá erlendu ríki steðjar að Íslandi og engin slík ógn er fyrirsjáanleg. Við getum brugðist við því með því að spara okkur landvarnir uns þeirra verður þörf.
Fagleg sjónvarpsrýni XXXIV
1.7.2006
Stundum er valið hreinlega erfitt. Nema kannski helst um helgar. Og þó.
Aðhaldsaðgerðir sem ekki virka
30.6.2006
Eins og vænta mátti verða þeir sem gengu harðast fram í þenslufylleríinu ekki látnir borga brúsann þegar komið er að skuldadögum. Eða hvað ætlar ríkisstjórnin að gera annað en að lækka íbúðaverð og fresta uppbyggingu vegakerfisins?
Til hamingju með ný lög!
29.6.2006
Samkynhneigðir hafa nú fengið mikilvægar réttarbætur í gegn.
Er óöldin í Mogadishu gufuð upp?
27.6.2006
Samband íslömsku dómstólanna er sprottið upp úr kunnuglegum jarðvegi: fátækt, kúgun, borgarastyrjöld og algeru stjórnleysi þar sem fólk gat hvergi leitað réttar síns. Þess vegna tóku einstakir ættbálkar í Sómalíu upp sína eigin dómstóla sem studdust við Kóraninn.
Hvenær er maður heilbrigður?
26.6.2006
Nýleg umræða um að allt niður í fimmtán ára stúlkur fari í lýtaaðgerðir til að „laga sjálfsmatið“ sýnir best hversu brjálæðislegur þrýstingurinn er orðinn frá sjálfskipuðum fegurðarfræðingum tískuheimsins.
Öld risavirkjana á enda?
25.6.2006
Undir lok síðustu aldar runnu tveir þriðju hlutar allra vatnsfalla á jörðinni í gegnum stíflur af einhverju tagi. Mun mannkynið halda áfram á sömu braut?
Böndum komið á vopn Leifs heppna
24.6.2006
Það er of seint að stöðva Leif heppna í ofbeldisverkum, en hvers vegna vill þá Íslandsdeild Amnesty International koma böndum á vopn Leifs?
Gráðugir gullgrafarar
23.6.2006
Kanadíska fyrirtækið Barrick Gold hyggst færa úr stað þrjá jökla í Andesfjöllum til að rýma fyrir nýjum gullnámum og skeytir ekkert um afleiðingarnar.
Ógæfuspor norskra stjórnvalda
22.6.2006
Það er umhugsunarvert að bæði Noregur og Svíþjóð heimila misrétti og ofbeldi gagnvart sjálfsmynd einstaklinga. Umhugsunarvert, einmitt vegna tengsla þjóðanna, samvinnu þeirra, vegna þess að þau eru hluti hinna norrænu þjóða.
Þjóðin vill ekki varnarsamninginn
20.6.2006
Í ljósi nýrrar könnunar Gallup á afstöðu landsmanna til herstöðvasamningsins frá 1951 verður forvitnilegt að sjá hvort stjórnvöld ætla sér að sniðganga almannaviljann enn einu sinni í þessu máli.
Nei
19.6.2006
Þjónusta Símans hefur batnað svo mikið við einkavæðinguna að nú tekur ekki nema tæplega þrjár vikur að fá gert við bilun á símasambandi.
Dauði og djöfuls nauð
18.6.2006
Hættan á styrjöld í Sómalíu magnast dag frá degi og vopn streyma inn í landið. Nokkrar mikilvægar spurningar virðast hafa gleymst í fréttaflutningi af ástandinu.
Eignarhaldsfélagið Exbé
17.6.2006
Framsóknarflokkurinn virðist vera að gufa upp, en í staðinn er komið eignarhaldsfélagið Exbé, sem snýst ekki um stjórnmálastarf heldur hagsmunagæslu fyrir eignir og ítök flokksins.
Bjartar nætur
16.6.2006
Fundað er með framkvæmdastjóra NATO um miðja nótt út af brottför hersins en ráðherrarnir sitja ekki yfir efnahagsvandanum í næturvinnu þótt nægar ástæður séu til.
Eru kosningar að verða gagnslaust fyrirbæri?
14.6.2006
Við getum svo sem kosið hvaða flokk sem er, en þegar kemur að samningum um valdastöður er allt ofurselt makki og pukri. Hugsjónir ganga kaupum og sölum þegar fyrst er dílað við einn og svo annan.
Illa farið með góðan ráðherra
13.6.2006
Hluti af valdsviði ráðherra eru embættisveitingar og krafa nútímans er vitaskuld að þær séu faglegar. En er við því að búast þegar ráðherrarnir sjálfir eru metnir eftir einhverju öðru en eigin frammistöðu?
Hundrað þúsund – og einn
12.6.2006
Dag eftir dag berast fréttir af fjöldaaftökum í skjóli nætur, loftárásum hernámsliðsins á óbreytta borgara, bílasprengjum og bardögum. Mannfallið mælist oftar en ekki í mörgum tugum, stundum telja hinir föllnu meira en eitthundrað á einum og sama deginum. Og það eru liðnir meira en 1160 dagar frá upphafi stríðsins.
Alltaf er það Framsókn!
11.6.2006
Nýjasta útspil forystu Samfylkingarinnar er að kalla á myndun ríkisstjórnar jafnaðarsinna, sem á þegar í stað að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið um inngöngu í bandalagið. Ekki fylgir sögunni með hverjum eigi að starfa í slíkri stjórn en það má hæglega geta sér til um það.
Niðurlæging Sjálfstæðisflokksins
10.6.2006
Ef framsóknarmenn eru ekki mun gáfaðri en aðrir má ljóst vera að ráðherrarnir eru gagnslausir hálaunamenn sem varla ná að setja sig inn í nokkur mál en þurfa að treysta á embættismenn og ráðuneytisstjóra.
Orkuverðið upp á borðið
9.6.2006
Íslendingar bjóða Alcoa megawattsstundina á 15 dollara eða helmingi lægra en það sem Brasilíumenn selja sína orku á.
Skilgreiningarvandi pyntingarmeistaranna
8.6.2006
Nýleg skýrsla Evrópuráðsins staðfestir að fjöldi ríkisstjórna í hinni siðmenntuðu Evrópu var Bandaríkjunum leiðitamur þegar kom að skipulögðum mannránum og pyntingum víðs vegar um heiminn. En Bandaríkjastjórn notast við ansi sérstæðar skilgreiningar til að ákvarða hvað séu pyntingar og hvað ekki.
Pattstaða í Tékklandi
7.6.2006
Pattstaðan sem nú ríkir í Tékklandi orsakast að langmestu leyti af brestum forystumanna sem eiga erfitt að starfa saman, en mun síður af kosningaúrslitum.
Banalega í beinni útsendingu
6.6.2006
Forysta Framsóknar er ósköp hugmyndasnauð í pólitík en þeim mun hugmyndaríkari í að niðurlægja sjálfa sig og flokkinn.
Kvenfrelsi bindur enda á vindmyllubarning
5.6.2006
Jafnrétti er ekki bara leiðin að betra samfélagi heldur í rauninni leiðin að samfélagi - því hvers konar samfélag er það, þar sem einungis helmingur fólksins nýtur fullra réttinda og fulls trausts?
Nokkrar bullumræður í kjölfar kosninga
4.6.2006
Þó að pólitísk umræða fyrir kosningar sé ekki mjög vitræn er þó aðhaldið óvenju mikið. Eftir kosningar slaka menn á og ekki skal bregðast að þá hefjast bullumræður þar sem stundaðar eru afar sérkennilegar æfingar við túlkun kosningaúrslitanna.
Spennandi kosningar í Tékklandi
3.6.2006
Allir áhugamenn um evrópsk stjórnmál hljóta að fylgjast spenntir með úrslitum þingkosninganna í Tékklandi. Ekki síst er spennandi að sjá hvort umhverfissinnar komast til áhrifa í landi flauelsbyltingarinnar sem gengið hefur í gegnum öfgar ríkissósíalisma og frjálshyggju á fáeinum áratugum.
Magnaður fagnaður
2.6.2006
Næstsíðasta leikritið sem Harold Pinter samdi er sýnt í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Það er ekki pólitískt verk en hefur þó býsna mikinn boðskap að færa áhorfendum.
Styrmir Nótt
1.6.2006
Þótt Eurovision-gyðjan snúi ef til vill aldrei heim frá Grikklandi er engin ástæða til að örvænta. Arftakinn er fundinn.
Hvað getum við lært af liðinni kosningabaráttu?
31.5.2006
Reynslan sem hugsjónafólk öðlaðist um síðustu helgi mun eflaust koma að notum við mjög svipaðar aðstæður sem fyrirsjáanlegar eru að ári liðnu.
Framsókn eða dauði
30.5.2006
Það eru spennandi tímar framundan. Tími til að smæla.
Framsóknarflokkurinn heyr dauðastríð
29.5.2006
Er stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Reykjavík enn einn naglinn í líkkistu Framsóknarflokksins?
Góð úrslit fyrir náttúruna
28.5.2006
Kosninganna 2006 verður ef til vill helst minnst fyrir þá hugarfarsbreytingu í umhverfismálum sem þær báru vitni og sterka útkomu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á landsvísu.
Kosningarnar og kinnhesturinn
27.5.2006
Kjósendur sem vilja slá Sjálfstæðisflokkinn utan undir í þessum kosningum þurfa ekki að velja skárri kostinn af tveimur vondum.
Eru einkagrunnskólar nauðsynlegir?
26.5.2006
Rannsóknir hafa sýnt að breytileiki í árangri milli skóla almennt skýrist helst af félags-, efnahags- og menningarlegum þáttum. Þar sem fyrirfinnst mikill árangursmunur milli skóla er stéttaskipting yfirleitt mikil en heildarárangur nemenda lakari eins og sýnir sig t.d. í Bandaríkjunum.
Mig dreymdi að frambjóðandinn breyttist í skrímsli
25.5.2006
Í kosningabaráttunni í ár eru auglýsingarnar flottar en segja ekkert. Fjölmiðlarnir gera illt verra. Þeir þykjast hafa áhuga á „málefnunum“ en hver einasta umfjöllun drepur málunum á dreif.
Varist róttæka friðarsinna!
24.5.2006
Róttækir friðarsinnar eru þyrnir í augum þeirra sem styðja stríð. Þeir vilja frið á frið ofan og þeir dirfast að mótmæla þegar þeir fá ekki sitt fram.
Skemmtikraftur eða stjórnmálamaður?
23.5.2006
Landsmenn geta varla kveikt á sjónvarpinu lengur án þess að reka augun í frambjóðendur sem virðast undir of miklum áhrifum frá Silvíu Nótt.
Af hverju eru Frjálslyndir alltaf svona reiðir?
22.5.2006
Lengi vel virtist Frjálslyndi flokkurinn vera jákvætt afl í íslenskum stjórnmálum en nú hefur hann illu heilli tekið að sér að auka á sundrungu og flokkadrætti í röðum umhverfisverndarsinna og annarra sem vilja láta náttúruna njóta vafans.
Þeir fiska sem tana
21.5.2006
Það skiptir ekki máli hvort frambjóðendur kunna að grilla eða spila golf. Það skiptir ekki máli hvaða lit flokkur notar eða hvaða listabókstaf hann kennir sig við. Borgarstjórnarkosningar snúast ekki bara um flugvelli og gatnakerfi.
Uppskeruhátíð lýðræðisins
20.5.2006
Á síðari árum hefur nokkuð borið á viðleitni til að gera kosningar leiðinlegri og kosningavökurnar óspennandi. Til dæmis er til hópur fólks sem finnst allra best að einungis bjóði fram tvær risavaxnar blokkir og svo vinnur annað hvort önnur eða hin. Þannig kosningakerfi er hentugt fyrir fáfrótt fólk sem höndlar ekki of margar staðreyndir eða of flókinn veruleika.
Af spænskum öpum og íslenskum apaköttum
19.5.2006
Reynslan hefur sýnt okkur að það tekur nýja hugmyndafræðilega strauma oft nokkra áratugi að berast til Íslands en í þessum efnum sjást reyndar merki um ákveðna hugarfarsbreytingu sem enginn skyldi vanmeta.
Til hamingju, Fréttablaðið!
18.5.2006
Þegar samsæriskenning er studd nægilega mörgum dæmum verður erfitt að neita því að einhver sannleikur sé þar til staðar.
Þegar Norðmenn næstum fengu sjálfstæði árið 1814
17.5.2006
Í dag uppfræðri Múrinn fróðleiksþyrsta lesendur um ástæðu þess að Norðmenn halda þjóðhátíð á þessum degi.
Peningar og lýðræði
16.5.2006
Hvaða flokkur hefur auglýst mest? Hverju eyða flokkarnir í auglýsingar? Hver þeirra hefur forystuna í peningamokstrinum?
Hvenær má ég teikna Mikka mús?
15.5.2006
Það er ekki óeðlilegt að menn ráði verkum sínum meðan þeir lifa og jafnvel að eftirlifandi makar erfi þann rétt en hvers vegna ættu þeir langniðjar Halldórs Laxness sem verða á lífi árið 2069 að hafa einkarétt á útgáfu?
Verður Súdan næsta fórnarlamb Bandaríkjahers?
14.5.2006
Áhugi vestrænna fjölmiðla á borgarastyrjöldinni í Súdan hefur verið furðu mikill upp á síðkastið, ekki síst ef haft er í huga að slík átök hafa geisað þar linnulítið í hálfa öld.
Ekki alveg með
13.5.2006
Vandinn er sá að svo lengi sem það er enginn ágreiningur þá er heldur engin pólitík. Tvö framboð hafa þó komið með raunverulegar tillögur í ákveðnum málaflokkum.
Tilbúningur verður að veruleika
12.5.2006
Skálduð vandamál fá oft mikla athygli, samanber einkavæðinguna og Íransdeiluna enda fátt auðveldara til að koma sér á framfæri en að búa til vandamál og reiða jafnóðum fram lausnir en það merkir ekki að mikið vit sé í málflutningnum.
Kjörþokki og kynþokki
11.5.2006
Það mætti fá tvo fyrir einn, segjum til dæmis með því að horfa á Silfur Egils eða Sunnudagsþáttinn en ekki lélega sjónvarpsþætti með fallegum leikurum. Kynþokkafullir stjórnmálamenn gætu svalað þörfinni fyrir pólitíska umræðu og um leið leikið statistahlutverk í fantasíum.
Helsta vígi einstaklingshyggjunnar
10.5.2006
Það eiga allir bíl og það taka allir þátt í sama neyslumynstrinu og hæpið að halda því fram að umferðarmannvirki verði minni í sniðum eða að loftslagsmálin bjargist ef allir keyra um á sparneytnum smábílum.
Geta bankarnir ekki gert betur?
9.5.2006
Slakur árangur bankanna í landinu hlýtur að vera mörgum áhyggjuefni enda afkoma þeirra langt frá því að geta talist viðunandi.
Enginn vill búa við mengun
8.5.2006
Auðvitað hefur fólk ekki tíma eða áhuga til að hugsa statt og stöðugt um ástand unhverfisins, þó allir viti að það sé engu að síður mikilvægt. Þess vegna er brýnt að Reykvíkingar velji sér fulltrúa til að huga að þessum málum.
Vinstri, hægri, fram og aftur
7.5.2006
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að á Vesturlöndum sé íhaldssemi miðjunnar nú allsráðandi, en í þriðja heiminum leiti fólk frekar í smiðju útópískra framfarasinna, eða þá afturhaldsmanna.
Megrunarlausi dagurinn alla daga!
6.5.2006
Heimspekingurinn Susan Bordo hefur haldið því fram að búlemíusjúklingurinn sé í raun holdgervingur hins kapítalíska neysluþegns, þar sem anorexía og offita eru öfgarnar sem skilgreina viðmiðið. Er eitthvað til í því?
Fjármagn og lýðræði
5.5.2006
Þeir stjórnmálamenn sem mestu hafa ráðið hér á Íslandi undanfarin ár halda því iðulega fram að þeir hafi dregið úr valdi sjálf sín eða stjórnmálamanna með einkavæðingu fyrirtækja og með því að færa verkefni út á markaðinn. Í raun og veru hafa þessar aðgerðir fyrst og fremst dregið ð úr hinu lýðræðislega valdi almennings.
Kreppumælingar
4.5.2006
Kreppan er kannski á næsta leiti hjá sumum en hjá öðrum er hún löngu hafin og þeir vita að nýtilkomnar áhyggjur stjórnvalda eru ekki af þeim.
Hverjir móta íslenska menntastefnu?
3.5.2006
Hingað til hefur Verzlunarráð Íslands sem nú heitir Viðskiptaráð verið helsta kennivald íslenskra fjölmiðla um menntamál og líklega ber að fagna því að einhver hefur bæst í þann hóp. Hins vegar hljóma sjónarmið Runólfs furðu lík sjónarmiðum Ráðsins alvitra.
Að vega salt
2.5.2006
Ef setið er nógu langt frá miðju er hægt að vega salt við hvern sem er. Margir virðast þó ekki átta sig á því að vogaraflinu má beita víðar en á vegasalti og í eðlisfræðiútreikningum.
Úlfshamir og sauðagærur
1.5.2006
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur hvað harðast verið gagnrýnd undanfarin misseri fyrir virðingarleysi við alþjóðalög og að sniðganga stofnanir á borð við Sameinuðu þjóðirnar. Er stríðið í Írak gleggsta dæmið um þetta.
Fær stóriðjustefnan kjaftshögg í maí?
30.4.2006
Í mörg ár hefur verið bent á mótrökin, á ruðningsáhrifin sem virkjanirnar hafa, á þá úreltu efnahagsstefnu að stjórnmálamenn mæti með jólagjafir á svæði sem þeir hafa annars látið sér í léttu rúmi liggja. En engir nema kjósendur geta knúið stóriðjuflokkana til að hlusta.
Ósýnilega höndin í fatla
29.4.2006
Hvers vegna virðist ómögulegt að vera bæði blár og grænn?
Upplausn bandamannaraka
28.4.2006
Hægriöflin á Íslandi geta framvegis ekki réttlætt stuðning sinn við stríðsaðgerðir Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna með vísun í bandamannarök.
Nepal, bylting og mannát
27.4.2006
Uppreisnina í Nepal má ekki aðeins rekja til ofríkis og ofbeldisverka Gyanendra konungs, heldur ekki síður til viðvarandi óréttlætis og misskiptingar í landinu.
Samfélagsvígslan
26.4.2006
Ferming er ekki aðeins staðfesting á skírn heldur og vígsla í okkar samfélag eins og það er og þess vegna ætti það að vera verkefni mun fleiri aðila en presta þjóðkirkjunnar að gera nýorðnum táningum grein fyrir því hvað í ósköpunum þeir eru að skrifa upp á.
Forneskjuleg frumefnakenning frjálshyggjunnar
25.4.2006
Heimsmynd sumra rúmar ekki meira en eina tegund verðmæta. Sagan geymir mörg dæmi um álíka meinlokur menningarþjóða og vísindamanna.
Beckham í Sjálfstæðisflokknum?
24.4.2006
Beckham getur verið jafn góður í boltanum með hvaða liði sem er. En hvaða styrkur er í stjórnmálamanni sem ekki hefur uppfyllt metnað sinn í einum flokki og gengur í annan til að fá vinnu?
Pylsusalinn er ekki vandamálið
23.4.2006
Um daginn var því slegið upp í breskum fjölmiðlum að fasistaflokkurinn BNP væri í gríðarlegri sókn og hér á landi voru sagðar fréttir af skoðanakönnun sem sýndi mögulegt hámarksfylgi slíks flokks í kosningum.
Innflytjendavandinn – martröð Evrópumannsins
22.4.2006
Ótti Evrópumanna við innflytjendur er sálrænn frekar en röklegur. Hann byggist á okkar eigin sögu sem landnemar í öðrum heimsálfum.
Eitt samfélag fyrir alla
21.4.2006
Nú um helgina hrindir ÖBÍ af stokkunum átaki sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um það órétti sem fatlaðir þurfa að búa við. Boðskapurinn verður þó ekki settur fram í grátræðum, heldur verður kappkostað að kynna hann á frumlegan og líflegan hátt.
Hvar er upplýsingin?
20.4.2006
Sumt í fréttum síðasta vetrardags var einfaldlega þannig að um það verður að skrifa í stað þess að bjóða bara gleðilegt sumar.
Erfðabreytt framleiðsla: Böl eða blessun?
19.4.2006
Eru erfðabreytt matvæli ekki bara flott aðferð til að fá meiri og endingarbetri mat hraðar? Eru þau ekki lausnin á hungrinu í heiminum?
Ég spila á miðjunni
18.4.2006
Skilgreinum sjálf okkur í miðjunni og þá færast hinir nær hliðarlínunum, nær öfgunum. Heimtum jafnan mínútufjölda í fjölmiðlum og dálksentímetra í blöðunum.
Ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur: Verstu rökin gegn umhverfisvernd
17.4.2006
Í upplýstri umræðu er venjan að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur og styrkja málstað andstæðinga áður en færð eru rök gegn honum. Í þessum pistli verður farið þveröfugt að.
Trúðurinn yfirgefur sviðið – í bili
16.4.2006
Það má segja Berlusconisögur heilu dagana enda setti hann eiginhagsmuni sína augljóslega ofar hagsmunum venjulegra Ítala og þóttist lækka skatta með einföldum bókhaldsbrellum. Það gerist ekki hér, eða hvað?
Efnahagsleg hryðjuverk
15.4.2006
Það er auðvelt að nota stór orð um fjármálaspekúlanta í öðrum löndum en hvað á að kalla efnahagsstefnu sem sameinar það versta úr hagstjórn Stalíns og Pinochet?
Afsökunarbeiðni
14.4.2006
Allir geta misstígið sig og þá er bara að biðjast afsökunar.
Tákn úr fortíðinni I - Lagið þeirra Leníns, Stalíns og Pútíns
13.4.2006
Þjóðsöngvar eru líklega meðal þeirra þjóðartákna sem eldast hvað verst. Matthías er ekki lengur á velli til að lappa upp á þann íslenska en Rússar reyndust ef til vill heppnari í þeim efnum.
Athyglisverð kosningaúrslit í Perú
12.4.2006
Frambjóðandinn sem var næsta óþekktur þar til fyrir skömmu, sigraði með nokkrum mun í fyrri umferð forsetakosninganna í Perú.
Orðin, þögnin og fermingarveislan
11.4.2006
Ef stefnir í að sérhver afkimi samfélagsins tali sína eigin tungu, og helst að túlkar finnist á milli lögsku og viðskipsku, þá er ekki lengur um neitt samfélag að ræða.
Mjög síðbúin leikhúsrýni
10.4.2006
Í pistli dagsins fjallar Kári Páll Óskarsson um Túskildingsóperuna og íslenskan samtíma.
Útrásin er birtingarmynd feðraveldisins
9.4.2006
Í orðræðunni um útrás felst stæk þjóðernishyggja. Af hverju ætti það að vera fagnaðarefni ef kapítalisti sem kaupir erlend hlutabréf er íslenskur en ekki frá Bermuda eða Luxemburg?
Fréttir á sérstöku tilboðsverði - allt á að seljast
8.4.2006
Það er algengt að líta svo á að sjónvarpsstöðvar eins og Sirkus og Skjáreinn geri hlé á sjónvarpsþáttum til að geta sýnt auglýsingar. Þó væri nær að tala um að gerð séu hlé á auglýsingum til að sýna þættina.
Valkrepptir þrælar einföldunar: svartsýniskennt svartagallsraus
7.4.2006
Kannski stafar okkur ógn af því að hafa of marga og fjölbreytta valkosti eða kannski finnst okkur of flókið að þurfa að fara að velta fyrir okkur öllum gráu tónunum þegar við getum haldið okkur við svart og hvítt.
Hinn klofni hugur hægrimanna
6.4.2006
Kauðalega línuritið, sem ónefndur fræðimaður krotaði á munnþurrku fyrir Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um árið lifir enn góðu lífi sem eitt meginstef í hugmyndafræði íslenskra hægriflokka. En trúa þeir á það í raun?
Einstakt tækifæri
5.4.2006
Um hvað eiga yfirstandandi viðræður við Bandaríkjastjórn vegna herstöðvarinnar að snúast? Hver ætti framtíðarsýn íslenskra stjórnvalda að vera í því sambandi?
Velgengni er að vera ekki skrúfa!
4.4.2006
Þær síast smátt og smátt inn í okkur þangað til við förum að trúa því statt og stöðugt að við séum ekki verðug tilverunnar nema að vinna af okkur allt vit og fara á ljóshraða í gegnum lífið.
Hið raunsæja mat
3.4.2006
Tíminn hefur leitt í ljós að sú stefna Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og fleiri flokka að áfram verði erlendar herstöðvar á Íslandi hefur byggst á nákvæmlega því sem herstöðvasinnar telja friðarsinna stjórnast af, þ.e. óskhyggju fremur en raunsæju mati..
Réttlæti, hagkvæmni og óréttlát hagkvæmni
2.4.2006
Alvöru verkalýðsfélög leyfa sér oft að gera greinarmun á því sem er hagkvæmt og því sem er rétt. Það er afar hættulegur greinarmunur í augum þeirra sem hafa gerst málsvarar óhefts kapítalisma.
Svín, mellur, ofstopahyski – og manneskjur
1.4.2006
Það er engu betra en æpa níðyrði á eftir blásaklausum konum á hjólum og í rauninni verra að búrast með þau í matarboðum en ganga hreint til verks. Á meðan við leyfum okkur að hæða aðrar manneskjur er lítil von til að heimurinn skáni um svo mikið sem einn þúsundasta úr grammi – nema síður sé.
Kemur samstarf hægrimanna og vinstrimanna til greina á Íslandi?
31.3.2006
Ein ástæða fyrir að það hefur verið gaman að vera í VG er að flokkurinn er nýr og laus við þrúgandi kreddur í flestum stærstu málum. Það er óþarfi að búa til kreddu um að það sé aðeins ein leið fær til áhrifa.
Margt býr í myrkrinu
30.3.2006
Upplýsingin hefur haft mikil áhrif á hugsunarhátt Íslendinga og þörf þeirra fyrir bókstaflega upplýsingu virðist vera mikil.
Hver er ógnin?
29.3.2006
Hvað getur mögulega ógnað öryggi Íslands og kallað á herlið í landinu?
Sjálfselska eða sjálfsögð varkárni?
28.3.2006
Er stanslaus fréttaflutningur af fuglaflensunni til marks um vönduð vinnubrögð fjölmiðla eða felmtri slegna Vesturlandabúa sem sjá lítið út fyrir blettinn sem þeir búa á?
Jafnréttisumræðan
27.3.2006
Orðræða þeirra sem mæla gegn jafnrétti hinna ýmsu samfélagshópa er alltaf sú sama og alltaf jafn röng. Þarf að berjast fyrir réttindum alls fólks, aftur og aftur og aftur og út í hið óendanlega?
Frelsið er forsenda mennskunnar
26.3.2006
Með því að kalla íhaldsstefnuna „frjálshyggju“ reyna boðberar hennar að takmarka frelsi okkar til að velja eitthvað annað en hana. Einokun á frelsishugtakinu getur aldrei orðið annað en tilraun til frelsisskerðingar.
Síðasta sovétlýðveldið
25.3.2006
Glæpur „síðasta sovétleiðtogans“ virðist einkum vera skortur á hlýðni við Bandaríkjastjórn.
Nýju fötin keisarans
24.3.2006
Vinna við matsáætlun fyrir álbræðslu Alcoa á Reyðarfirði er hálfnuð, eins og bygging verksmiðjunnar sjálfrar. Niðurstöður mats á umhverfisáhrifum og úrskurður Skipulagsstofnunar birtast ekki fyrr en löngu eftir að starfsemi álversins verður hafin.
Álið innantóma
23.3.2006
Eitt sinn átti áliðnaðurinn að auka fjölbreytni og skapa atvinnu fyrir þjóðina, en hefur nú öðlast sjálfstætt gildi óháð allri nytsemi. Iðnaðarráðherra virðist ekki einu sinni vita sjálfur hvers vegna álið er málið.
Allar dökkhærðar á leið í lögfræði
22.3.2006
Því fer fjarri að það sé slæmt að ætla sér að læra lögfræði og það er ekkert asnalegt við að vera dökkhærður. Það er hins vegar mjög óæskilegt að allir vilji vera eins.
Sannleikurinn um herstöðina og „varnarþörf“ Íslands
21.3.2006
Varnarviðbúnaður Íslands hefur jafnan ráðist af efnum og aðstæðum; enginn ráðamaður fyrri alda var nógu vitlaus til að halda því fram að hægt væri að „skilgreina varnarþörf“ Íslands í eitt skipti fyrir öll.
Framverðir lýðræðisins (e)
20.3.2006
Það er ómögulegt að segja fyrir um það hvort liðsinni erlendra ríkisstjórna muni verða stjórnarandstæðingum í Minsk til mikilla heilla til lengri tíma litið. Reynslan af rósabyltingunni í Georgíu og appelsínugulu byltingunni í Úkraínu bendir í gagnstæða átt.
Faglegi flokkurinn
18.3.2006
Það er með ólíkindum hversu gjörn Samfylkingin er á að kinoka sér við að ræða málin í sínum röðum og taka afstöðu út frá því, sami flokkurinn og vildi ólmur taka upp einhver „umræðustjórnmál“ á Íslandi.
Mótmælum á morgun
17.3.2006
Þremur árum eftir upphaf Íraksstríðsins eru fjölmiðlar fullir af sama söngnum og fyrir stríðið nema hvað það munar einum bókstaf. Ætlar ríkisstjórn Íslands að láta draga sig út á enn eitt foraðið fyrir vininn í vestri?
Hvað er hjónaband?
16.3.2006
Það sýna því skilning á að sumir telji hjónaband sitt hluta af persónulegu sambandi sínu við guð en auðvitað er flest fólk orðið langþreytt á því hvernig íslenskt þjóðkirkjufólk hefur stundað það um árabil að troða sínum hugmyndum upp á aðra.
Ekki meir, ekki meir!
15.3.2006
Þriggja ára lega íslenskra ráðamanna á hnjánum hlýtur að vera orðin lýjandi. Þeim hlýtur bráðum að fara að skiljast hversu lítils virði þeir eru í augum Bandaríkjastjórnar.
Steyptir í sama mót
14.3.2006
Hver er framtíð samfélaga úr áli? Hvaða leiðir eru líklegar til að leggja varanlegri grunn að atvinnulífi á Íslandi?
Fram fyrir röðina
13.3.2006
Hér á landi er gjarnan staðhæft að heilbrigðiskerfið okkar sé ekki bara það besta í heimi heldur líka það dýrasta. Ef það er svona gott og dýrt, er þá virkilega ekki hægt að sinna sjúklingum? Hvernig getur sama fólkið talað um að byggja nýtt hátæknisjúkrahús og að nýta ónotað húsnæði?
Milosevic dáinn
12.3.2006
Í gær dó Slobodan Milosevic, einn helsti valdapotari stjórnmálalífs Balkanskagans á ofanverði 20. öld. Að mati margra var hann öðrum fremur ábyrgur fyrir fjöldamorðum Bosníustríðsins en það reyndist ekki auðvelt verk að sanna það á hann og réttarhöldin reyndust að lokum tilgangslaus.
„Því Maúmet gjörir þeim tál“
11.3.2006
Rétturinn til að tala illa um múslima á sér rótfasta hefð sem nær aftur til miðalda. Hugmyndir þeirra Voltaires og Johns Stuarts Mills snúast hins vegar um annars konar málfrelsi.
Glæsiferðir Dóra & Völu
10.3.2006
Hvernig væri að splæsa á sig einni draumaviku á Íslandi?
Nokkrir minnispunktar um álver við Húsavík
9.3.2006
Í ljósi reynslu Austfirðinga af því að reisa virkjun og álver er ágætt að tefla fram nokkrum minnispunktum svo að álverssinnar á Húsavík falli ekki í sömu gryfju og skoðanasystkinin á Reyðarfirði.
Á móti lífinu
8.3.2006
Andstæðingar fóstureyðinga í Bandaríkjunum segjast vera með lífinu og í Suðurríkjunum nýtur bann við slíkum neyðarúrræðum vaxandi fylgis. Skoðanabræður þeirra á Íslandi hafa líka látið talsvert til sín heyra upp á síðkastið.
Atvinnulífsstjórar Norðurlands, ekki meir!
7.3.2006
Á tiltölulega fáum árum tókst liðssafnaði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi eystra að koma mörgum máttarstólpum atvinnulífs í Þingeyjarsýslum úr eigu íbúanna. Nú bjóða þessi flokkar álver í staðinn enda styttist í kosningar.
Ástandið í Nepal fer versnandi
6.3.2006
Gyanendra konungur heldur áfram að grafa sína eigin gröf og illu heilli grafir þúsunda annarra landsmanna ef fram heldur sem horfir.
Bolkestein
5.3.2006
Leiðir það ekki bara til bullandi félagslegra undirboða þegar „pólski píparinn“ mætir til að laga lagnirnar fyrir miklu lægra gjald en heimamenn? Grefur það ekki undan stoðum samfélagsins þegar menningarleg þjónusta, menntun og heilsugæsla þurfa að lúta sömu samkeppnislögmálum og gilda um neysluvöru?
Pissað á gröf Gandhi
4.3.2006
Á Indlandi snæddu yfirmenn stærstu fjölmiðlanna hádegisverð með Bush og voru svo teknir í viðtal af sínum eigin starfsmönnum þar sem þeir lýstu því hvernig Bandaríkjaforseti hefði snert á þeim hendina eða lagt handlegginn yfir axlir þeirra. Enda gleymdu þeir alveg viðtökunum sem forsetinn fékk hjá almenningi.
Fjallkonan Silvía Nótt
3.3.2006
Það fyndnasta er að líklega erum við orðin svo lík henni að margir skilja ekki brandarann.
Menning til sölu?
2.3.2006
Hvað er menning? Er það Stefán Jón Hafstein brosandi og heilsandi ljóðskáldum og myndlistarmönnum, eltandi Yoko Ono á röndum? Er það ráðherra á sinfóníutónleikum, brosandi og heilsandi „djettsett-liðinu“ í hléinu, með dýrt hvítvín við hönd?
Múrnum bylt
1.3.2006
Við erum hreint ekki hætt.
Helst í fréttum
1.3.2006
Þarf að tvöfalda Suðurlandsveginn vegna mikillar umferðar gangandi vegfarenda og banna innflutning á bleikum flókaskóm? Eða er ef til vill meiri þörf á að segja fréttir af því sem skiptir venjulegt fólk einhverju máli?
Er pólitíkin Bónusverslun?
28.2.2006
Því miður virðist vera kominn tími til að kynna nýja þrískiptingu valds. Öfugt við hina hefðbundnu skiptingu nær lýðræðið aðeins til eins hluta af þremur.
Innlifun
27.2.2006
Hver sem pælir í að því hvað er birt og hvað er ekki birt í okkar dagblöðum - og hvers vegna - hlýtur að sjá að það er alveg fráleitt að það sé frjálst.
Niðurskurður gegn vilja nemenda
26.2.2006
Það sem bæði nemendur og kennarar setja út á þetta mál er framkvæmd styttingarinnar enda hefur ráðherra valið þá einföldu en heimskulegu leið að skera niður innihald náms til stúdentsprófs.
Kjarnorkuvopnavandinn snýst ekki um Íran
25.2.2006
Ísland er í fámennum hópi ríkja sem greiða atkvæði gegn útrýmingu kjarnorkuvopna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Þegar guði skjátlast ...
24.2.2006
þá skamma menn prestana og alla aðra sem vilja ekki spila með.
Hvernig á að skrifa grein til stuðnings styttingu framhaldsskólans?
23.2.2006
Ljóst er að núna er mjög góð leið til að öðlast vinsældir hjá menntamálaráðherra að skrifa grein og verja styttingaráform hennar og með reglulegu millibili dúkka upp menn sem langar til að vera útvarpsstjórar, leikhússtjórar eða fá vinnu í ráðuneytinu og skrifa greinar til stuðnings málinu. Til að auðvelda leið þeirra birtir Múrinn núna leiðbeiningar til þeirra um greinaskrif.
Eftirmál Katrínar
22.2.2006
Það er ágæt alþýðuspeki að auðvelt sé að vera vitur eftir á og að slysin geri ekki boð á undan sér. Stundum er þó hægt að vera vitur áður en slysin verða.
Stöðvum ofbeldið gegn merkingu orðanna!
21.2.2006
Hvergi er orwellsk orðræða meira ráðandi en þegar frelsið á í hlut og erfitt er að ímynda sér meira ofbeldi gegn máli og merkingu en þegar kemur að umræðunni um útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Rice finnur rauðu hættuna í suðri
20.2.2006
Yfirlýsingar bandaríska utanríkisráðherrans um Venesúela enduróma tuggurnar sem ákafast voru jórtraðar við samsetningu bandalags hinna vígfúsu ríkja í aðdraganda árásarinnar á Írak.
Sóknarfæri í lífrænni ræktun
19.2.2006
Hér á landi virðist þróunin vera sú að auka verksmiðjubúskap, reka færri og stærri bú, hola hundrað svínum saman í stíu eða þúsund kjúklingum, og líðan dýranna skiptir þá litlu máli.
Geta bisnessbændur haft vit fyrir landsmönnum öllum?
18.2.2006
Af hverju ættu framleiðendur í hagkerfinu einir að hafa um það lokaorð hvernig þeir haga framleiðslunni? Eru þeir þeir einu sem vita?
Álgerður
16.2.2006
Hún er ánægð en samt ekki ánægð. Íbyggin kannski? Sigrihrósandi? Brosið breytist ef maður horfir á það, frá einu sjónarhorni er hún ánægð en frá öðru óánægð, svolítið eins og mynd í kíki á karnivali frá síðari hluta 19. aldar.
Uppgjöf Kennarasambandsforystunnar
15.2.2006
Nýgert samkomulag kennaraforystunnar við menntamálaráðherra ber vott um uppgjöf og metnaðarleysi.
Mexíkókryddaðar kosningar á Haiti
14.2.2006
Mikil spenna ríkir nú í Port-au-Prince vegna talningar atkvæða úr forsetakosningunum á dögunum.
Vísvitandi rangfærslur um áliðnaðinn II
13.2.2006
Hið raunverulega framlag ríkisstjórnarinnar til loftslagsmála á undanförnum árum hefur þannig verið það að styrkja samkeppnisstöðu álbræðslu gagnvart koltrefjaframleiðslu og tefja þannig fyrir æskilegri þróun í margvíslegum iðnaði.
Hvenær kemur röðin að Vestur-Papúa?
12.2.2006
Hvernig stendur á því að löngu eftir að Indónesar voru gerðir afturreka frá Austur-Tímor fá þeir enn að leika lausum hala á Vestur-Papúa?
Er kristin menning eitthvað til að miklast af?
11.2.2006
Núna er kristinn etnósentrismi aftur kominn á dagskrá vegna þess að hinn meinti óvinur sem á að þjappa Vesturlöndum saman er heimur islam. Viðhorf þeirra sem hafa völdin á Vesturlöndum til múslima einkennast af orðræðu ofbeldisins.
Ég fer að heiman ef þið eruð ekki betri við mig
10.2.2006
Meinar Halldór Ásgrímsson eitthvað með Evrópusambandshjali sínu? Nei, ekki frekar en venjulega.
Sannileikur
9.2.2006
Þetta er ekki ásláttarvilla heldur nýyrði!
Ekkert samkomulag um niðurskurð framhaldsskólastigsins
8.2.2006
Forysta Kennarasambandsins og menntamálaráðherra virðast t nú hafa gert samkomulag um niðurskurð framhaldsskólastigsins en hver stendur á bak við forystuna í þessu máli?
Stúdentapólitík sem skiptir máli
7.2.2006
Sumir virðast líta svo á að íslensk pólitík sé einungis stunduð í einu húsi við Austurvöll og öðru við Lækjagötu.
Vísvitandi rangfærslur um áliðnaðinn
6.2.2006
Jafnvel þótt skilningur íslenskra ráðherra á Kyoto-samkomulaginu stæði ekki á jafn siðferðilega bágbornum grunni og hann gerir, á hinn praktíski þáttur röksemdafærslunnar sér ekki stoð í raunveruleikanum eins og sjá má t.d. í Dubai og á Trinidad.
Heilindi stjórnarþingmanna?
5.2.2006
Þó að núverandi stjórnvöld þvertaki fyrir það að ætlunin sé að selja RÚV er reyndin sú að flestallar ríkisstofnanir sem hafa verið hlutafélagavæddar hafa í kjölfarið verið seldar.
Hlutleysi sem málamiðlun
4.2.2006
Hlutleysi, í almennum skilningi orðsins, er ekki málamiðlun milli tveggja kosta eins og víða virðist vera ráðandi hugsun hjá eigendum fjölmiðla.
Íslenskir nasistar
3.2.2006
Allajafna þykir best að hafa hlutina uppi á borðinu, en undirrituðum er ekki vært ef hann á ekki að geta fengið sér kaffibolla án þess að þurfa hlýða á þau merku vísindi, að gyðingar muni senn undiroka hvíta kynstofninn, segir gestapenni dagsins.
Valgerður komin á beinu brautina gleraugnahatursins
1.2.2006
Iðnaðarráðherra finnst fólk vera of fínt með sig ef það vill ekki vinna í álveri. Á hvaða braut er hún komin?
Fallandi gengi Samfylkingarinnar
31.1.2006
Á sama hátt og Ingibjörg Sólrún er ekki Messías sem gat gert Samfylkinguna að leiðandi afli í íslenskum stjórnmálum með því einu að verða formaður, er fylgisvandi þessa ráðvillta flokks ekki henni að kenna.
Scafik Handal kvaddur
30.1.2006
Scafik Handal, fyrrum leiðtogi vinstrihreyfingarinnar FMLN í El Salvador, var borinn til grafar í dag í höfuðborginni San Salvador.
Stjórnun
29.1.2006
Vísindi stjórnunar felast í því að afneita tilvist átaka og ólíkra hagsmuna. Stjórnandinn á að komast að “réttri” niðurstöðu án þess að velta vöngum yfir því fyrir hvern niðurstaðan sé rétt.
Strætó til Keflavíkur!
28.1.2006
Það blasir við að tenging á milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins með reglulegum ferðum strætisvagna myndi skipta Suðurnesjamenn miklu máli og auðvelda þeim að samþætta vinnu á einum stað og búsetu á öðrum.
Breytingar á hjúskaparlögum eru nauðsynlegar
27.1.2006
Nýlegt frumvarp um „réttarstöðu samkynhneigðra“ er bara hálfkák. Til að ná fullu jafnrétti þarf að breyta hjúskaparlögum og þá lýkur vonandi um leið hinni hvimleiðu umræðu um hvernig hjónaband er skilgreint í Biblíunni.
Aukaverkanir lýðræðisins
26.1.2006
Niðurstaða þingkosninganna í Palestínu er sú að Hamas fær hreinan meirihluta hvort sem öllum öðrum líkar betur eða verr. Þá er fyrir mestu að reyna að skilja orsakirnar en láta vera að skipta sér af því sem manni kemur ekki við.
Æsifréttir
25.1.2006
Margt er að gerast í breskri pólitík um þessar mundir.
Tæknifrjóvganir, ættleiðingar og efnahagur
23.1.2006
Kostnaður para við tæknifrjóvganir á Íslandi er allt að 521 þúsund króna en lostnaður við ættleiðingu frá erlendu ríki kostar á bilinu milljón til einnar og hálfrar milljónar króna.
Ibrahim Rugova genginn fyrir ætternisstapa
22.1.2006
Kosovo-Albanir misstu í gær kjörinn leiðtoga sinn, Ibrahim Rugova, aðeins 61 árs að aldri eftir baráttu við krabbamein.
Skýrsla um fjöldamorð á íbúum Austur-Tímor
21.1.2006
Í gær afhenti forseti Austur-Tímors, Xanana Gusmao, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Kofi Annan, skýrslu um ódæðisverk Indónesíuhers undir 24 ára löngu hernámi þeirra.
Hvað er svona gott við Pétur Blöndal?
20.1.2006
Í stjórnmálum nútímans eru fáir stjórnmálamenn eftir sem þora að fara eftir sínum skoðunum í stað þess að vísa í sérfræðiálit.
Geld þrevetla? Fyrirspurn til landbúnaðarráðherra
19.1.2006
Tilgangur landbúnaðar er ekki að framfæra bændur, heldur að brauðfæða heiminn. Landbúnaðarráðherrann á að sjá til þess að þetta verði gert í þágu þjóðar með viðunandi hætti.
Fréttablaðið og sirkus stjórnmálalífsins
18.1.2006
Fyrir tíu árum var mikið talað um hversu erfitt heilbrigðisráðuneytið væri og vandmeðfarið. Ráðherra var vorkennt enda sat þá heilbrigðisráðherra sem eineltispúkar réðust stöðugt á og gerðu allt til miska. Nú eru þeir komnir í menntamálin, ef marka má Fréttablaðið.
Nóg komið af fimbulfambi
17.1.2006
Er erfiðara að tala gott mál en vont? Múrinn segir nei.
Hver er ábyrgðartilfinning Framsóknarflokksins?
16.1.2006
Ritstjórar DV sáu sóma sinn í að láta af störfum. Hvenær hafa liðsmenn Hjálmars Árnasonar, þingflokksformanns Framsóknar, gert slíkt hið sama?
Líf á útfjólublárri öld
15.1.2006
Langsamlega stærsti þátturinn í útblæstri koltvísýrings á heimsvísu er bílaumferð. Alls mun um fimmtungur losunarinnar stafa af notkun fólksbíla.
Darwin, Tómas og skynsamleg hönnun
14.1.2006
Skynsamleg hönnun er síður en svo traust heimspekikenning, enda eru formælendur hennar fáir ef nokkrir meðal heimspekinga.
Varúðarskyldan
13.1.2006
Siðferðisstyrk mannfélaga má vel sjá í meðferð þeirra á þeim sem brjóta lögmál samfélagsins. Hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá verðum við, ef við viljum kallast siðuð þjóð, að virða mannréttindi.
Skammastu þín, Einar Oddur!
12.1.2006
Nú hvílir ábyrgðin ekki á þeim lægst launuðu að halda verðbólgunni í skefjum heldur millistéttinni og þeim hæst launuðu. Þær stéttir mega ekki, og þurfa ekki, að taka mið af prósentuhækkunum þeirra sem lægst hafa launin.
Að skipta stækkandi köku
11.1.2006
Umræðan um tekjuskiptingu í samfélaginu er farin að taka á sig undarlega mynd þar sem flestir forðast að leggja til aðferðir við að leysa hið augljósa verkefni.
Hvenær fer Íslendingum að fækka á ný?
10.1.2006
Það leikur ekki vafi á því að fólksflutningar til landsins eiga stóran þátt í því hversu óvenjulega ör fjölgun landsmanna hefur verið á allra síðustu árum. Það er æði misjafnt hvernig tekið er á móti þeim sem hingað sækja og víst er að þar veltur mikið á því hvaðan fólk er komið.
|