Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 
 

6. árgangur

Dreggjar nýlendutímans í alþjóðaviðskiptum 10.1.2005
Múrinn er fimm ára í dag en hin úrelta skipan alþjóðastofnana sem eitt sinn áttu að tryggja efnahagslegan stöðugleika um víða veröld er tólf sinnum eldri og fær þess vegna grein dagsins um sjálfa sig.

Litli forsætisráðherra -
Örleikrit í þremur þáttum
11.1.2005
Þetta verk er skáldskapur en veruleikinn er líka oft lygilegri en nokkur skáldskapur.

Furðuleg dauðasveitaumræða 12.1.2005
Þjálfunarbúðir slíkra hersveita voru vissulega í Hondúras á sínum tíma, áður en þær voru fluttar til Fort Benning í Georgíu-ríki. En þar hafa þær verið starfræktar allt til þessa dags og eru vel þekktar undir nafninu „School of the Americas“.

Af hverju er Toledo traustur í sessi? 13.1.2005
Það er illt hlutskipti að þurfa að velja á milli þess að brauðfæða fólk og að borga af lánum.

Það kostar að vera viðbúinn 14.1.2005
Betra raforkukerfi hefði e.t.v. bjargað mannslífum frá þeim hörmungum sem dunið hafa í Suðaustur-Asíu. En það þarf breytt viðhorf í orkumálum til að gera raforku að almenningseign í þriðja heiminum.

Bandaríska gúlagið 15.1.2005
Gamall hrotti og pyntingameistari hefur nú fengið nýtt starf, sem dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.

Karl Rove kennt um 16.1.2005
Vésteinn Valgarðsson svarar grein Péturs Gunnarssonar í vefritinu Tímanum en hún einkennist af kynlegum útúrsnúningum.

Framkvæmdavaldið afhjúpað 17.1.2005
Íslenskur dómstóll hefur nú kveðið upp sinn úrskurð sem markar tímamót. Ný álver geta ekki lengið „fengið að láni“ umhverfismat frá annars konar álverum.

Faðir „kínverska efnahagsundursins“ fallinn frá 18.1.2005
Ef Deng Xiaoping telst vera „afi kínverska efnahagsundursins“ þá var Zhao Ziyang faðir þess. Fráfall hans á mánudaginn kom ekki á óvart, en hljótt hefur verið um hann hin seinni ár.

Fagmaðurinn 19.1.2005
Forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð brást undrandi við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Hjörleifs Guttormssonar gegn umhverfisráðuneytinu og Fjarðaáli á dögunum.

Skemmtilegu raforkulögin 20.1.2005
Hækkanir á rafmagnsreikningum um allt að 40 prósent eru fæstum gleðiefni en það fólk er til sem gleðst yfir slíku.

Fastir við sinn keip 21.1.2005
Þrátt fyrir að makalaust sé að fylgjast með ráðherrunum sökkva dýpra og dýpra í eigið fen í Íraksmálinu þá eru aðrar hliðar á því sem skipta meira máli.

Bloggað frá Bagdad 22.1.2005
Ef það er til sú bloggsíða sem er þess virði að lesa ...

Lýðræði og árangur fara saman 23.1.2005
Lýðræðislegt val á stjórnanda akademískrar stofnunar er síst til vandræða eins og reynslan af því fyrirkomulagi við Háskóla Íslands sýnir - ef menn geta hugsað sér að opna augun.

Loftslagsbreytingar koma öllum við 24.1.2005
Hvernig er hægt að kveikja áhuga ríkisstjórnar Íslands á loftslagsmálum?

Hvers á Gylfi að gjalda? 25.1.2005
Framkvæmdastjóri A.S.Í. segist bara hafa verið að tjá einkaskoðanir sínar á formannsslagnum í Samfylkingunni. Gallinn er bara sú að hann er löngu hættur að sjá mun á einkaskoðunum sínum og hagsmunum launafólks.

Er nei þá stundum svar? 26.1.2005
Bandaríkjastjórn hefur beitt neitunarvaldi sínu til að verja Ísraelsríki fyrir skýrum úrskurði Alþjóðadómstólsins um aðskilnaðarmúrinn. Í grein dagsins er vikið að nokkrum staðreyndum um girðingavinnuna.

Staða og frammistaða 27.1.2005
Umhverfisráðherra byrjaði að hrósa íslenskum stjórnvöldum fyrir frammistöðuna í sjálfbærri þróun áður en skýrslan um stöðu og möguleika einstakra ríkja á sviði sjálfbærrar þróunar var komin út.

Samfylkingarfólk ætti að hugsa sig tvisvar um 28.1.2005
Miðað við fortíð Ingibjargar Sólrúnar í pólitík hlýtur það að teljast hæpið val að kasta Össuri fyrir róða.

Hversu vinsæll er handboltinn? 29.1.2005
Er handbolti óvinsæl íþrótt sem nýtur svipaðra vinsælda og dvergakast eða pulsuát án atrennu?

Tjörvar stórmoffar þessa heims 30.1.2005
Það er kannski takmörkuð eftirsjá í þeim sem slíkum en vandinn er sá að fái þeir að ráða taka þeir mannkynið og jafnvel meira til með sér í fallinu.

Pýrrosarsigur eða spor í rétta átt? 31.1.2005
Kosningar til stjórnlagaþings í Írak í gær voru glæsilegar, að minnsta kosti á afghanskan mælikvarða. Þegar frá líður verður dagsins þó kannski einkum minnst fyrir frumlega túlkun á tölunni 60%.

Fáránleg atburðarás 1.2.2005
Það er auðvitað absúrd að Róbert Marshall skuli vera sá maður á Íslandi sem hefur sagt af sér vegna rangfærslna í Íraksmálinu.

Myndi vinstristjórn engu breyta? 2.2.2005
Grein dagsins fjallar um nokkrar hugsanlegar breytingar í umhverfismálum, menntamálum, utanríkis- og dómsmálum ef raunveruleg vinstristjórn kæmist til valda. Og kjaramálum, auðvitað.

Nýja Millet-úlpan 3.2.2005
Skyndileg alþjóðahyggja ríkisstjórnarinnar á sér einfalda og praktíska skýringu.

Hvaða tilgang hefur Framsóknarflokkurinn? 4.2.2005
Merkur stjórnmálamaður sagði eitt sinn að allt væri betra en Íhaldið. Hann var framsóknarmaður. Framsóknarmönnum finnst ekki lengur allt betra en Íhaldið. Þeir eru nefnilega Íhaldið.

Fjör í fjallalandi 5.2.2005
Gyanendra konungur kveðst ætla að koma á friði og lýðræði í Nepal. Í raun hefur hann framkvæmt valdarán og afnumið lýðræðiði.

Valdaskipti – African style 6.2.2005
Ekki verður betur séð en herinn hafi rænt völdum í Togo eftir að þaulsætnasti forseti í Afríku lést, 68 ára að aldri.

Gengur Fenrisúlfur laus? 7.2.2005
Læðingskenning Björgólfs Guðmundssonar í bankamálum er allrar athygli verð.

Að njóta trausts 8.2.2005
Kenningar stjórnmálafræðiprófessora um stjórnmálin lifa stundum ekki í svo mikið sem eina viku.

Bjálkar í bandarískum augum 9.2.2005
Á fjórtán mánuðum tókst bandarísku herstjórninni í Írak að stela meiri fjármunum en Mobutu Sese Seko stal í 32 ára valdatíð sinni í Zaire.

Minnihlutasjónarmið í Öryggisráðið? 10.2.2005
Það eru ekki mörg ríki á allsherjarþingi Sameinuðu sem eru andvíg kjarnorkuafvopnun. Eitt þeirra sækist nú eftir því að setjast í Öryggisráðiðþ

Sögulegur sigur í Mexíkó 11.2.2005
Síðastliðinn sunnudag tapaði PRI einu helsta vígi sínu til vinstrimanna í PRD eftir sjötíu og sex ára valdatíð.

Leikvöllur nýfrjálshyggjunnar 12.2.2005
Ríki Austur-Evrópu eru nú í svipaðri stöðu efnahagslega og Rómanska Ameríka var fyrir 20 árum.

Alltaf nema stundum 13.2.2005
Hugmyndafræðileg kreppa Vefþjóðviljans stendur í hámarki þessa dagana ef miða á við tímann sem þeir eyða í að fárast yfir þorrablótum í Neskaupstað.

Nýjustu tölur úr tilraunastofunni 14.2.2005
Nýlega fjallaði Múrinn um nýfrjálshyggjuleikina í Austur-Evrópu. Samhengisins vegna er ágætt að líta á eitt dæmi frá Suður-Ameríku.

Kína og Kyoto 15.2.2005
Kyoto-bókunin verður að alþjóðalögum á morgun.

Herinn burt - frá Írak og Líbanon 16.2.2005
Bandaríkjastjórn styður nú kröfur um herinn burt, þ.e. að sýrlenskur her hverfi frá Líbanon. Stjórnvöld í Washington hafa raunar einstakt tækifæri til að sýna gott fordæmi í því að aflétta hernámi.

Verður mjór mikils vísir? 17.2.2005
Líklega er Kyoto-bókunin einn mikilvægasti alþjóðlegi samningur sem við Íslendingar höfum gerst aðilar að. Hún snýst um mjög einfaldan hlut: Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Heimsatburðurinn síðari 18.2.2005
Hugmyndir Davíðs Oddssonar um "frjálsar kosningar" vekja undrun og jafnvel óhug.

Þegar börn „ákveða“ að selja sig 19.2.2005
Hversu furðulega sem það kann að hljóma eru teikn á lofti um að Rússland sé að verða hið fyrirheitna land Vefþjóðviljans sem lengi hafa þótt ódeigir varðmenn um svokölluð vestræn gildi, siði og menningu.

Friðlýsing í stjórnarskrá 20.2.2005
Öll rök hníga að því að tillaga Steingríms J. Sigfússonar um friðlýsingu Íslands fái brautargengi í stjórnarskrárnefnd. Á hinn bóginn hafa íslensk stjórnvöld oft látið stjórnast af annarlegum sjónarmiðum í utanríkisstefnu sinni.

Vinstrisveifla í Portúgal – stríðsstjórn fellur 21.2.2005
Vinstribylgjan í hinum rómanska heimi heldur áfram.

Hin óskeikulu vísindi 22.2.2005
Þótt flestar fræðigreinar hafi þroskast frá sjálfbirgingslegri fullvissu um eigin fullkomleika til eðlilegrar efahyggju má enn finna vísindamenn sem eru ómengaðir af slíkri seinni tíma hógværð.

Fyrirmyndarríki 21. aldar 23.2.2005
Fróðlegt er skoða stjórnarfarið í nokkrum af þeim löndum sem íslenskir frjálshyggjumenn telja til helstu lýðræðisríkja heims.

Leppstjórn skiptir um lit 24.2.2005
Margs er að gæta þegar kemur að stærsta stjórnmálaflokki Íraks og óvíst að þeir sem þaðan hafa valist til setu í ríkisstjórn séu hinir raunverulegu forystumenn al-Dawa hreyfingarinnar.

Óskhyggja Moggans 25.2.2005
Morgunblaðið datt í kunnuglega skotgröf í leiðara síðastliðinn miðvikudag.

Frá Atlantshafi til Miðjarðarhafs 26.2.2005
Framkvæmdastjóri NATO hefur nú fundið náttúrulega bandamenn í hernaðarbröltinu í Mið-Austurlöndum.

Kapítalismi og Kínverjar við Kárahnjúka 27.2.2005
Ekki væri hægt að búa til ímyndað skólabókardæmi sem lýsti firringu kapítalismans í samræmi við kenningar Marx betur en raunin er með kínversku verkamennina við Kárahnjúka og stöðu þeirra. Kárahnjúkastíflan hefði líka verið ágætis skólabókardæmi fyrir Adorno og Horkheimer um drottnunargirni mannsins gagnvart náttúrunni.

Varðveitum velferð 28.2.2005
GATS-samningarnir eru einföld hugmynd sem sett er fram á stofnanaþrúguðu hrognamáli. Innihald samninganna er tiltölulega skýrt og íslenskir stjórnmálamenn verða að gera sér grein fyrir því hvert það er.

Siðlausir stjórnarherrar 1.3.2005
Malið um lýðræðisuppbyggingu í Mið-Austurlöndum er bara yfirvarp fyrir áform vestrænna ríkisstjórna um að stjórna þessum heimshluta með einum eða öðrum hætti.

Tony Blair verður fyrir áfalli 2.3.2005
Áherslur heimspressunnar í fréttaflutningi af nýjum lögum um vald breska innanríkisráðuneytisins til að taka sér dómsvald eru vægast sagt einkennilegar. Og íslenskir fjölmiðlar elta.

Ályktun 3.3.2005
Félagsstarfið í málfundafélaginu M.Ú.R. tók mikinn kipp í gær.

Rómanska vinstribylgjan heldur áfram 3.3.2005
Tabare Vazquez var settur í embætti forseta í Uruguay á þriðjudaginn.

Tímamót eða ekki tímamót 4.3.2005
Stundum er eins og að alþingismenn hafi ekki nóg að gera í þingi. Það er rætt um allt og ekkert í þingsölum, eða öðru nafni stefnu Framsóknarflokksins.

Dýrseldur stuðningur 5.3.2005
Leifar hinnar fornu menningarþjóðar, Assýringa sem drottnuðu yfir Mesópótamíu fyrir margt löngu, sæta nú kúgun af hálfu Kúrda eins og fleiri minnihlutahópar í Norður-Írak.

Hreyfiafl lýðræðis í arabaheiminum 6.3.2005
Nú þegar ljóst er að hernám Íraks átti sér enga siðferðislega eða lagalega réttlætingu reyna spunameistarar á vestrænum fjölmiðlum að eigna George Bush hreyfinguna fyrir lýðræði í arabaheiminum. Engin hefur þó barist harðar gegn þeim aðilum sem í raun hafa knúið þá hreyfingu áfram.

Stríðsleikir 7.3.2005
Bandaríkjastjórn hefur heitið því að rannsaka vandlega hvers vegna hernámslið hennar í Írak skaut á bíl ítölsku blaðakonunnar Giuliana Sgrena. Reynslan af því þegar Bandaríkjaher rannsakar eigin aðgerðir gefur ekki tilefni til mikilla væntinga um niðurstöðuna.

Í minningu Aleksöndru og Klöru 8.3.2005
Tveir forsprakkar aðgerðanna miklu 8. mars 1911 voru þær Klara Zetkin og Aleksandra Kollontai. Það fer vel á því að rifja upp brot úr ævistarfi þeirra á þessum degi.

Eru efnavopnin fundin? 9.3.2005
Nú þegar sinnepsgas, taugagas og fleira ógott er loksins fundið í Írak kemur engin yfirlýsing frá ráðherrum og blöðin ryðja ekki forsíður sínar til að segja stórtíðindin. Múrnum er ljúft og skylt að hjálpa til.

Þegar kapítalisminn eyðilagði kynlífið 10.3.2005
Íslenskar konur eru sagðar eiga allra kvenna mest af kynlífshjálpartækjum og jafnframt í endalausum fullnægingarvandræðum.

Stríðið gegn hryðjuverkum á áætlun 11.3.2005
Rússnesk sérsveit hefur ráðið Maskhadov, leiðtoga sjálfstæðishreyfingar Téténíu, af dögum. Ekkert bendir til þess að þetta muni gera téténska uppreisnarmenn sáttfúsari við Rússa.

Húskarlar óskast 12.3.2005
Velunnarar ríkisstjórnarflokkanna sjá fram á áframhaldandi góðæri í boði almennings.

Faglegum metnaði fórnað 13.3.2005
Meirihluti útvarpsráðs metur starfsreynslu við fréttastörf lítils við að ráða nýjan fréttastjóra, en minnihlutinn situr hjá. Afleiðingin er ráðning sem er ófagleg.

Bretar bera ábyrgð 14.3.2005
Nú vill breska ríkisstjórnin rétta þjóðum Afríku hjálparhönd. En slík hjálp dugar skammt ef sjálfumgleði og afneitun á sögulegum staðreyndum eru fylgifiskarnir.

Tekið á umferðarvandanum 15.3.2005
Borgarstjórinn í París hefur nú gripið til sársaukafullra aðgerða til að draga úr umferð í miðborginni. Til þeirra þurfti að grípa vegna þess að ekki var tekið á vandanum fyrr. Reykvíkingar hefðu gott af því að kynna sér þá sögu.

Mesa á leið í sama pyttinn og Lozada 16.3.2005
Eftir tæpa 18 mánuði í forsetaembætti stendur Carlos Mesa frammi fyrir sömu vandamálum og veltu forvera hans úr sessi í október 2003.

Annan gagnrýnir Vesturlönd – undir rós 17.3.2005
Síðastliðinn mánudag birti Morgunblaðið grein eftir Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Grein þessi var að nafninu til um hryðjuverk og varnir gegn þeim. Þegar nánar er að gáð felst hins vegar í henni mikil og þung gagnrýni á Vesturlönd og framgöngu þeirra í alþjóðamálum.

Endalaust blóð fyrir olíu? 18.3.2005
Múrinn hvetur lesendur til að taka þátt í boðuðum mótmælafundum vegna hernámsins í Írak á morgun.

Stærstu fangabúðir í heimi? 19.3.2005
Spunameistarar Bandaríkjastjórnar halda því fram að Afghanistan sé nú útvörður lýðræðis í Asíu. Nær sanni er að þar sé nú kjarninn í nýju gúlagi eina heimsveldisins.

Öll húsdýrin í garðinum skulu vera þæg 20.3.2005
Rafiðnaðarsambandið heldur áfram glæstu og skipulegu undanhaldi íslenskrar verkalýðshreyfingar seinustu áratugi. Hver veit nema kjörorðið í þessari seinustu hrinu verði: Allir í búrið?

Fimm bestu fréttirnar 21.3.2005
Hver eru tengsl „eignaspjalla“ við loftárásir á óbreytta borgara? Vill Bush þyrma öllu lífi? Geta aðferðir verið úr sér gengnar og faglegar á sama tíma? Er öðrum trúarbrögðum en kristni sýnt óþarflega mikið umburðarlyndi? Er fólk í gönguskóm að spæna upp malbikið í Reykjavík? Fylgist með nokkrum þeim kostulegu stjórnmálakenningum sem komið hafa fram undanfarna daga!

Alhliða eyðileggingarstefna 22.3.2005
Varla er á neinn hallað þótt skipun Johns Boltons, manns sem er andvígur sjálfri tilvist SÞ, sé talin met þar á bæ þótt Madeleine Albright standi honum ekki langt að baki. En ríkisstjórn George W. Bush sinnir líka heimahögunum.

Er stríðið ekki búið? 23.3.2005
Þegar boðuð voru mótmæli um helgina í tilefni af innrásinni í Írak fyrir tveimur árum spurðu sumir: Er ekki of seint að berjast gegn Íraksstríðinu?

Pólitískur flóttamaður nr. 2 24.3.2005
Francis Bukasa frá Lýðræðislega lýðveldinu Kongó var lengi vel einn um að hafa fengið pólitískt hæli hér á landi. En hvort sem menn viðurkenna það eða ekki, þá hefur einn pólitískur flóttamaður bæst í hóp landsmanna.

Fjölbreytt umræða um friðarmál 25.3.2005
Nýjasta hefti Dagfara, tímariti Samtaka herstöðvaandstæðinga, er stútfullt af áhugaverðu og skemmtilegu efni.

Valdarán í Kirgizíu 26.3.2005
Fjölmiðlamenn þreytast seint á því að kalla valdarán í nágrannaríkjum Rússlands „byltingar“ og kenna ýmist við blóm eða sérkennilega liti. Valdaránið sem átti sér stað í Kirgizíu á dögum var þó ekki eins skipulagt og svipaðar „aðgerðir“ í Georgíu og Úkraínu.

Gjaldfrjálsir leikskólar 27.3.2005
Meginröksemdir þess að fella niður leikskólagjöld eru að veita foreldrum sem ekki hafa tök á að greiða fyrir leikskóladvöl barna sinna möguleika á þjónustunni. Leikskólastarfið er orðið hluti af almenna skólakerfinu og því ekki rök fyrir því að rukka fyrir þá þjónustu frekar en grunnskólamenntun.

Indverjar gagnrýna kjarnorkuveldi 28.3.2005
Indverjar segjast vera til í að taka þátt í samstarfi um takmörkun kjarnorkuvopna ef öll kjarnorkuveldi sammælast um að skera niður vopnabirgðir sínar, lækka viðbragðsstöðu á langdrægum flaugum og auki samstarf um hagnýtingu kjarnorku í friðsamlegum tilgangi. Viðbragða annarra kjarnorkuvelda er beðið.

Þingmaður Græningja leggur til að Vanunu fái ríkisborgararétt 29.3.2005
Mordechai Vanunu sætir enn ofsóknum eftir að hafa setið 18 ár í fangelsi fyrir að ljóstra upp um kjarnorkuvopnaeign Ísraels fyrir tæpum tuttugu árum.

Varðhundar lýðræðisins 30.3.2005
Á rúmu ári sem liðið er frá valdatöku Mikhails Saakashvili í Georgíu hefur mannréttindaástandið versnað til muna þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn hæli sínum manni í und og æð.

Móðir jörð – myrt af mannkyninu 31.3.2005
Í gær kom út skýrsla sem unnin er af 1360 vísindamönnum frá 95 löndum og fjallar um rányrkju mannsins á náttúruauðlindum jarðarinnar, en um 2/3 auðlindanna eru nánast á þrotum.

Hver gabbar hvern? 1.4.2005
Nú eru liðnir tvær mánuðir frá „lýðræðislegu kosningunum“ í Írak en meirihlutaflokkurinn hefur enn ekki fengið að mynda ríkisstjórn.

Málinu er ekki lokið 2.4.2005
Yfirvöld Ríkisútvarpsins hafa nú tækifæri til að taka sér tak og ráða fréttastjóra sem nýtur trausts og getur stjórnað fréttamönnum Útvarpsins. Ekkert við störf þessara aðila vekur þó vonir um bjartsýni.

Hvað er frjálslyndi? 3.4.2005
Erfitt getur verið að sjá samræmi á milli merkimiða og málflutnings einstakra stjórnmálamanna eða flokka. Þar að auki er misjafnt hvaða skilning fólk leggur í sum þeirra orða sem notuð eru til að lýsa tiltekinni grunnhugmyndafræði í stjórnmálum og má þar nefna orðið „frjálslyndi“ sem dæmi.

Frumleg kenning nútímalegs jafnaðarmanns 4.4.2005
Lýðræðisjafnaðarmaðurinn Gerhard Schröder telur að ríkisstjórn landsins hafi óskorað vald til að marka stefnuna í utanríkismálum.

Umdeildur „farsæll“ endir 5.4.2005
Ráðherrarnir tveir sem taka ákvarðanirnar í ríkisstjórn Íslands hafa fallist á tillögu sem þeir höfðu áður komið sér saman um að láta einkavæðingarnefndina leggja fyrir þá sjálfa.

Verkalýðshreyfing í kreppu 6.4.2005
Íslenska verkalýðshreyfingin þarf sárlega á endurnýjun að halda, bæði hvað snertir hugmyndafræði og forystu.

Hinn mikli stuðningur 7.4.2005
Niðurlægingu iðnaðarráðherra er lokið. Nú segjast 66% Þingeyinga styðja álver í heimabyggð. En hvaða mannfjöldi er á bak við þá skoðun?

Frestun á vegaframkvæmdum
= byggðastefna ríkisstjórnar
8.4.2005
Kosningavíxillinn frá vorinu 2003 er gjaldfallinn og samt ætlar ríkisstjórnin ekki að borga hann heldur gefa sama víxilinn út aftur 2007.

Endurnýjunar er þörf 9.4.2005
Staksteinaskrifari Moggans telur hlutverk verkalýðsfélaga vera að sinna samningum um launataxta og umsýslu sumarbústaða. Múrinn er á öðru máli.

Það kostar sitt að sniðganga vísindamenn 10.4.2005
Fyrir þremur árum kaus Landsvirkjun að hunsa álit íslensks vísindamanns á Kárahnjúkavirkjun. Sá hroki mun kosta stofnunina mikið fé.

Þöggun þjónar engum tilgangi 11.4.2005
Fyrsta þjóðarmorðið í Evrópu á 20. öld var framið langt sunnan við Auschwitz og töluvert austan Treblinka. Árin 1915-1916 voru tæpar tvær milljónir fólks af ýmsum minnihlutahópum myrtar í Tyrkjaveldi.

Kárahnjúkavandinn 12.4.2005
Þetta er ágætt orð sem hver einasti forstjóri landsins ætti að nýta sér þegar hann þarf að útskýra uppsagnir, hagræðingu, niðurskurð eða óvænt áföll.

Hvað gerir Össur? 13.4.2005
Formannskjör Samfylkingarinnar er laust við spennu, en eftir er að svara stóru spurningunni: Hvað mun Össur Skarphéðinsson gera í framhaldinu?

Lög um helgidagafrið eru úr sér gengin 14.4.2005
Nýlegar breytingar á lögum um svokallaðan helgidagafrið sýna hvað raunverulega ræður för í þjóðfélaginu og þá er best að horfast í augu við það en hætta leikaraskapnum.

Hreppapólitík í hæsta gæðaflokki 15.4.2005
Íslendingar eiga ennþá ekki vegakerfi sem er sambærilegt við það sem þekkist meðal nágrannaþjóða eða í öðrum auðugum iðnríkjum. Víða í þróunarlöndum má raunar finna samgöngukerfi sem er boðlegra en það sem er á Íslandi.

Hvenær er of seint að hætta í ruglinu? 16.4.2005
Landsvirkjun hunsaði viðvaranir jarðfræðinga um að Kárahnjúkavirkjun væri á sprungusvæði. Verulegar líkur eru á því að landið undir virkjuninni gliðni og hún sökkvi í jörðu niður eins og bærinn í Hruna forðum.

Litla einkavæðingarnefndin 17.4.2005
Hvaða ungmenni á aldrinum 16-20 ára vill ekki geta keypt sér bjór?

Þrjátíu ára barátta skilar sér 18.4.2005
Þremur áratugum eftir að brasilíska herforingjastjórnin hrinti einni af sínum vitlausustu hugmyndum í framkvæmd hefur ríkisstjórn Lula hafist handa um að vinda ofan af vitleysunni þótt mesta tjónið verði líklega aldrei bætt.

Össur og Ingibjörg Sólrún sjá ljósið 19.4.2005
Össur Skarphéðinsson sér ekki muninn á stefnu Samfylkingarinnar og VG. Hefur hann fallið frá áformum um markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar? Er Samfylkingin hætt að styðja NATO? Ætlar hún að endurskoða stuðning sinn við Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuáform? Eða er kannski ekkert að marka orð forystumanna Samfylkingarinnar?

Íransstjórn lokar á al-Djasíra 20.4.2005
Talsmaður menningarmálaráðuneytisins í Íran segir al-Djasíra hafa brotið gegn öryggi og almannafriði í landinu með fréttaflutningi sínum af róstunum í Kuzestan. Hvað sagði Donald Rumsfeld aftur um fréttir al-Djasíra af Íraksstríðinu?

Kosningabarátta breska Íhaldsflokksins 21.4.2005
Hún er óneitanlega á góðri leið með að marka viss tímamót, svo hörmulega hefur Michael Howard og félögum tekist til.

Sjálfhælið afmælisbarn 22.4.2005
Ef enginn vill hæla manni er oft eina ráðið að sjá um það sjálfur.

Upplýsing BSRB 23.4.2005
Starf BSRB beinist að merkari viðfangsefnum en því að telja krónur og aura fyrir umbjóðendur sína og taka við sumarhúsabókunum.

Þráhyggja Egils Helgasonar 24.4.2005
Það eru kannski engin takmörk fyrir því hvað Egill Helgason getur lotið lágt til að hnoða saman pistlum í hallæri. En það þurfa samt að vera einhver takmörk fyrir því hversu mikilli dellu er látið ósvarað.

Einstaklingshyggja og valdastofnanir 25.4.2005
Er einstaklingshyggja kapítalismans svo ýkja frábrugðin þeirri einstaklingshyggju sem kirkja og ríki hafa beitt sér fyrir í tímans rás?

Stóri íhaldsflokkurinn 26.4.2005
Í grundvallarafstöðu til efnahags- og velferðarmála má segja að þrír flokkar, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Samfylkingin séu sammála um þá stefnu sem hefur verið rekin undanfarin 10 ár. Saman mynda þessir flokkar því einn stóran íhaldsflokk, sem mun standa dyggan vörð um pólitíska arfleifð Davíðs Oddssonar.

Einkaframkvæmd með óbragði 27.4.2005
Ráðherrar nútímalegra jafnaðarmanna í Bretlandi seldu ófyrirleitnum gróðapungum einkarétt á því að fæða grunnskólabörn án þess að gera nokkra einustu fyrirvara með heilsu þeirra og velferð í huga. Hagkvæmt en ekki hollt fyrir börnin.

Ég elska þig ekki, Össur —
en getum við ekki verið vinir?
28.4.2005
Hvort það eru sjálf orðin eða orðaröðin eða bara hugmyndin um að maður hafi ekki nokkurn einasta áhuga sem vefst fyrir sumum krötum, er ekki gott að segja. En það er þeirra vandamál.

Fasisminn vinnur á 29.4.2005
Ricardo Sanchez telst saklaus af því sem viðgekkst í Abu Ghraib og öðrum fangelsum sem heyrðu undir hans stjórn. Fimm ára stúlka á Flórída var færð í handjárnum á lögreglustöð af því að hún missti stjórn á skapi sínu í leikskóla.

Nautasteik lávarður fær að láta í minni pokann 30.4.2005
Nýjasta ákvörðun ríkisstjórnar Chávez ber vitni um vilja til að rísa undir stórum yfirlýsingum um bólívarískt lýðveldi í Suður-Ameríku.

Ólögleg innrás 2.5.2005
Enn kemur í ljós að innrásin í Írak var byggð á sandi og leir.

Verkalýðsbaráttan er alþjóðleg 3.5.2005
Nú þegar sótt er að alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins er kannski ástæða til að minna á að þörfin fyrir alþjóðlegan baráttudag verkafólks hefur trúlega aldrei verið meiri.

Hve djúpt ristir náttúruverndaráhugi sjálfstæðismanna? 4.5.2005
Er hægt að líkja 70 ferkílómetra ósnortnu víðerni við olíuborinn jarðveg í Öskjuhlíðinni? Það reyna sjálfstæðismenn í Reykjavík.

Lýðræði Evrópusambandsins 5.5.2005
Almenningur í aðildarríkjum Evrópusambandsins virðist nýta sér hvert tækifæri sem færi til þess að lýsa yfir óánægju með báknið. Stjórnmálamenn og embættismenn innan Evrópusambandsins hafa hins vegar verið metnaðarfyllri fyrir hönd þess en almenningur í viðkomandi löndum.

Er hið engilsaxneska lýðræði gölluð útflutningsvara? 6.5.2005
Fylgið hrundi af Tony Blair og félögum í kosningunum í gær en ríkisstjórnin situr þó áfram í skjóli 36,2% þeirra sem nenntu að kjósa. Múrinn spyr hvort Bretar séu vel fallnir til að breiða út lýðræði.

Þriðja leiðin í öngstræti 7.5.2005
Marka kosningaúrslitin í Bretlandi upphafið að endalokum „þriðju leiðarinnar“? Er Nýi Verkamannaflokkurinn að snúa við og verða aftur gamall og góður?

Um eðlisfræði Framsóknarflokksins 8.5.2005
Framsóknarflokkurinn verður aldrei skilinn á því sem hann segir stjórna gjörðum sínum. Hann er ekki frjálshyggju-, félagshyggju-, miðju, vinstri- né hægriflokkur heldur hreinn valdaflokkur. Og til þess að halda eða ná völdum notar hann öll þau meðul sem til þess eru fallin. Að þessu leyti greinir hann sig frá öðrum íslenskum stjórnmálaflokkum.

Tvískinnungur Fischers 9.5.2005
Græningjar hafa nú farið með utanríkismál í Þýskalandi í tæp sjö ár, en samt eru ennþá kjarnaflaugar í Þýskalandi sem beinast ekki að öðru en vinveittum ríkjum.

Ert þú orðin of sein? 10.5.2005
Í kvennablöðum er ennþá alið á staðalmyndum um „eðlileg“ hlutverki kvenna, t.d. að eiga börn.

Af nýjustu hugðarefnum tískuróttæklingsins 11.5.2005
Á það að vera baráttumál að fá að segja „mér langar“? Svo finnst tískuróttæklingum sem vilja heyja þægilegar byltingar í stað þess að berjast gegn auðvaldinu og öðrum öflum sem ógna íslensku jafnaðarsamfélagi.

Nútímalega jafnaðarstefnan er íhaldsstefna 13.5.2005
Hin nútímalega jafnaðarmannastjórn Tony Blairs hefur fylgt sömu stefnu og hver annar íhaldsflokkur.

Stólaskipti á Alþingi 14.5.2005
Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi hefur fyrir löngu gefið það út að hann muni kjósa Sólveigu Pétursdóttur í forsetaembættið í upphafi næsta þings í byrjun október. Er það skynsamlegt?

Kannski hagkvæmt — örugglega leiðinlegt 15.5.2005
Það þorir ekki nokkur stjórnmálamaður að hafa skoðun út frá því að eitthvað sé leiðinlegt eða skemmtilegt. Hins vegar hefur Múrinn miklar skoðanir á því og vill að aðrir taki unidr.

Er einræðisherrann í Úzbekistan fyrirmyndar bandamaður? 16.5.2005
Karimov forseti Úzbekistans hefur skilið eftir sig blóði drifna slóð upp á síðkastið. Stjórnunaraðferðir hans virðast þó ekki fara fyrir brjóstið á Vesturveldunum.

Ganga kaupin ennþá eins í víkinni? 17.5.2005
Eitt sinn var embættismannakerfi Reykjavíkurborgarinnar útvöxtur úr Sjálfstæðisflokknum. Hefur nokkuð breyst í grundvallaratriðum?

Meira pönk og meira helvíti! 18.5.2005
Í í nýrri skýrslu frá Amnesty International er dregin upp dökk mynd af stöðu mannréttindamála í Afríkuríkinu Zimbabwe.

Herra Galloway fer til Washington 19.5.2005
Sumum finnst í lagi að selja harðstjórum vopn en of langt gengið að reyna að lina þjáningar fólks sem sveltur vegna viðskiptabanns. Núna um daginn náði breskur þingmaður að draga þennan þversagnakennda málflutning fram í dagsljósið fyrir það sem hann er.

Menntaðir idjótar eða upplýstir einstaklingar? 20.5.2005
Er „Kemur þetta á prófinu?“ orðin eina spurningin sem skiptir máli í íslenska skólakerfinu með tilkomu fleiri samræmdra prófa á öllum skólastigum? Múrinn kannar málið.

Sjálfhverfuhátíðin mikla 21.5.2005
Góða skemmtun í kvöld.

Á skólakerfið að þjóna auðvaldinu? 22.5.2005
Markaðsvæðing menntakerfisins er víða vel á veg komin. Þá tala menn um börn sem framleiðslueiningar og láta McDonalds fóðra þau.

Markaður gegn lýðræði 23.5.2005
Þegar málflutningur Samfylkingarinnar um lýðræði er gaumgæfður kemur í ljós að forsvarsmenn hennar telja flokkinn vera í frjálsri samkeppni á markaði — en eru lítt kunnugir hugtökum lýðræðisins. Er þetta lýðræði?

Fjórir áratugir frá fjöldamorðum 24.5.2005
Í ár eru liðin 40 ár frá einum ógurlegustu fjöldamorðum 20. aldar, í Indónesíu 1965-1966.

Fagnaðarfréttir frá Kína 25.5.2005
Vésteinn Valgarðsson skrifar um hið nýja gósenland kapítalismans, Kína, þar sem óþægindi eins og réttindi verkafólks eru ekki að þvælast fyrir neinum.

R-listinn snýst um málefni 26.5.2005
Samfylkingin virðist líta á R-listann sem tæki til að fjölga borgarfulltrúum sínum án þess að fara í kosningar. Það er misskilningur.

Helför kapítalismans? 27.5.2005
Undanfarin 12 ár hafa 100 milljónir látist úr hungri í heiminum. Hverjir eru sökudólgarnir?

„Óháðir“ sérfræðingar 28.5.2005
Greiningardeildir bankanna spá hækkandi húsnæðisverði, en sú spá hentar einmitt þeim sem reka greiningardeildirnar. Tilviljun?

Feitar mömmur verri en mjóar? 29.5.2005
Hvers vegna hafa eðlilegar kröfur til foreldra sem ættleiða börn umhverfst í ofsóknir gegn hópum sem eru öðruvísi? Eiga yfirvöld að stjórna hver megi eiga börn — og hver ekki?

Nei! 30.5.2005
Frakkar neituðu að samþykkja stjórnarskrá embættismannamaskínunnar í Brussel í gær. Lýðræðið hefur sigur.

Hvert leiðir einkarekstur í heilbrigðiskerfinu? 31.5.2005
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur vilja einkavæða í heilbrigðiskerfinu. Hvernig ætla þeir að fara að því?

Öðlingar í vesturheimi 1.6.2005
Evrópuríki hyggjast auka svo kallaða „þróunarhjálp“. Hún er þó aðeins um helmingur þess sem þau greiða iðnríkjum upp í skuldir ár hvert.

Kárahnjúkavandinn breiðist út 2.6.2005
Kárahnjúkavandinn hefur víðtæk áhrif. Umhverfisráðherrar missa sjónina, fyrirtæki leggja upp laupana, atvinnulíf verður fábreyttara og svo mætti áfram telja. Verst er að öllu þessu var spáð fyrirfram en ekki hlustað.

Góðærið tekið á láni 3.6.2005
Ríkisstjórnin sér til þess að hátekjufólk hafi það gott á kostnað þeirra sem bera ekki eins mikið úr býtum. Á meðan vildarvinir ríkisstjórnarinnar hagnast vel á þessu fyrirkomulagi eykst ójöfnuður í íslensku samfélagi.

Tjón er gott 4.6.2005
Er atvinnuleysi og gjaldþrot af hinu góða? Samdráttur og rekstrartap? Ný kenning varpar nýju ljósi á þessi fyrirbæri.

Geðveikt Stjörnustríð 5.6.2005
Kvikmyndarýnir Múrsins er kominn á kreik enda ávallt stórtíðindi þegar ný Stjörnustríðsmynd kemur.

Nei og aftur nei! 6.6.2005
Með stjórnarskrá Evrópusambandsins átti endanlega að formbinda ýmis lögmál frjálshyggjunnar. Þess vegna var henni hafnað.

Á að virða skoðanir annarra? 7.6.2005
Þótt það sé góð regla að allar skoðanir beri að virða þá hefur hún vissulega sín takmörk. Vandinn er að vita hvenær hún verður að víkja.

Hvaða rök eru fyrir flutningi flugvallarins? 8.6.2005
Skotgrafaumræða er ávallt leiðinleg og aldrei kjánalegri en þegar öll rök í viðkomandi deilu eru vel þekkt og auðskilin.

Framsóknarstefnan í umhverfismálum 9.6.2005
Undir forystu Halldórs Ásgrímssonar hefur Framsóknarflokkurinn tekið kúvendingu í öllum helstu stefnumálum sínum og á sama tíma hefur fylgið hrunið af honum.

Kaldhæðni örlaganna 10.6.2005
Eftir að hafa fækkað viðskiptabönkum og selt sérvöldum kaupendum ríkisbankana hefur viðskiptaráðherra skyndilega áhyggjur af fákeppni. En sá tími er liðinn.

Skipulagsmál eru umhverfismál 11.6.2005
Umhverfi í borg verður bætt með ýmsum aðgerðum, þ.á m. umhverfisvænu skipulagi.

Stærsta vandamál samtímans 12.6.2005
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason er á móti umræðu um fórnarlömb hungurs í heiminum — nema í Kína fyrir löngu síðan. Þeim undarlegu skrifum er hér með svarað.

Nýtt upphaf eða bara næsti hringur? 13.6.2005
Almenningur í Bólivíu hefur nú hrakið tvo forseta úr embætti á innan við tveimur árum. Nú hafa stjórnvöld heitið því að boða til nýrra forsetakosninga en mörg verkefní bíða nýs forseta.

Vanhæfi 14.6.2005
Ríkisendurskoðandi mun engu breyta um vanhæfi forsætisráðherra þótt hann tilkynni í dag að í lagi hafi verið fyrir Halldór Ásgrímsson að selja vinum, fjölskyldu og sjálfum sér einn ríkisbankann.

Læsum þá inni með öskutunnunum 15.6.2005
Fyrirheit um skuldauppgjöf til handa fátækustu ríkjum heims eru ekki öll þar sem þau sýnast.

„Innflytjendavandinn“ í Danmörku 16.6.2005
Svokallaður innflytjendavandi í Danmörku eru sífellt til umræðu þótt fáir verði til að benda á að þar er ef til vill miklu fremur á ferðinni stéttaskipting sem er til vandræða.

Milljónatjón 17.6.2005
Líkt og þegar skyrinu var slett á Austurvelli fyrir um þrjátíu árum síðan er búið að koma af stað umræðu um hvílík hætti steðji að íslensku samfélagi vegna óhefðbundinna mótmælaaðgerða.

ESB-sinnar gefist upp 18.6.2005
Ef íslenskir ESB-sinnar hafa ekkert betra fram að færa en að segja andstæðinga sína skrýtna og kjósendur vitlausa þá ættu þeir líklega að snúa sér að einhverju öðru en að ræða pólitík.

Umræðan um loftlagshlýnun 19.6.2005
Nýlega var plöntufræðingurinn David Bellamy sleginn til riddara af aðdáendum Björns Lomborg. Vinnubrögð Bellamys í jöklarannsóknum eru enda þannig að staðhæfingar hans um loftslagsmál halda ekki vatni.

Halldór, hæfi og hlutleysi 20.6.2005
Halldór Ásgrímsson er ekki laus allra mála, þótt Ríkisendurskoðun telji hann ekki formlega vanhæfan.

Hin opna og lýðræðislega aðferð 21.6.2005
Formaður Ungra jafnaðarmanna vill „opið og lýðræðislegt prófkjör“ á milli flokkanna sem standa að R-listanum. En hvers á Sjálfstæðisflokkurinn að gjalda?

Einkarekið stríð 22.6.2005
Stríð nútímans eru að verulegu leyti háð af málaliðum - og yfir slíka menn ná engin herlög

Reykjavík verði borg! 23.6.2005
Íslendingar eru fastir í gemeinschaftsteoríuinnblásinni kábojaútópíu þegar kemur að umræðu um samgöngumál og komast því ekkert úr sporum afturhaldsins.

Fátækasta land heims? 24.6.2005
Tansanía er meðal þeirra ríkja sem nú fá felldar niður erlendar skuldir. En þrátt fyrir stöðugleika og sæmilegt stjórnarfar er ólíklegt að sú aðgerð muni nægja til að koma traustum stöðum undir þetta fátæka land.

Stóriðjan sem gleymdist 25.6.2005
Háskólinn á Akureyri er stundum nefndur „stóriðja Eyfirðinga“. Því miður er hann ekki sú gerð af stóriðju sem nýtur stuðnings stjórnvalda.

Hverjir þurfa á leynd að halda? 27.6.2005
Þekking er vald. Leynd er tilraun til að takmarka slíkt vald við fámennan hóp.

Stuðluð slúðurblöð 28.6.2005
Nýr plagsiður fjölmiðla er að skipta sér af einkamálum fólks. DV hefur nú eignast afkvæmi sem er nýja slúðurblaðið Hér og nú.

Verður Ísland mengill aldarinnar? 29.6.2005
Enginn veit hvað gerist eftir 2012, segir iðnaðarráðherra, og lítur björtum augum til nýrra tækifærra til að auka mengun á Íslandi.

Drottningin er með slitgigt 30.6.2005
Danskir sósíaldemókratar eru komnir með nýjan formann, konu sem hefur engin önnur baráttumál en að verða forsætisráðherra. Hljómar það ekki kunnuglega?

Harvard is Boston‘s heavy industry 1.7.2005
Hvað veldur því að Íslendingar finna sig knúna til að líkja menntastofnunum sínum við stóriðju til að réttlæta tilvist þeirra? Eru háskólar bara álver, loðnutorfur og bifreiðaverkstæði?

Endurlit í Írak 2.7.2005
Öryggi fólks í Írak hefur ekki aukist eftir hernámið og líf fólks þar er mjög erfitt þrátt fyrir loforð hernámsliðsins um betri tíð.

Hvað eru stórfelld eignaspjöll? 3.7.2005
Greinilega eru aðrir mælikvarðar viðhafðir þegar metin eru eignaspjöll og náttúruspjöll ef marka má dóm yfir þeim sem slettu skyrinu á álfurstana á dögunum.

Ósýnilega hljómsveitin 4.7.2005
Skýrsla frá stórtónleikum rokksveitar frá Birmingham leiðir í ljós að þorri þeirra sem sótti tónleikana telur að við búum á plánetunni Íslandi. Fylgist með hvernig fulltrúi Múrsins komst að þeirri niðurstöðu! Og hvernig gat rokksveitin verið ósýnileg?

Herstöðina burt og ríkisstjórnina á haugana 5.7.2005
Málflutningur íslenskra stjórnvalda hefur algjörlega verið fullkomlega afbyggður, rétt eins og hugmyndafræðinga þeirra í Bush-stjórninni.

Kominn tími til að ræða málin 6.7.2005
Verður R-listinn úr sögunni nk. mánudag? Hvenær fara flokkarnir sem standa að þessu samstarfi að ræða málefni? Hvaða mál eiga þeir að ræða? Þráir almenningur í Reykjavík ekkert fremur en óbreytt pólitísk hlutföll með tilheyrandi stöðnun?

Bush og Múrinn fagna afmæli þess fyrrnefnda í Danmörku 7.7.2005
Múrinn sendi fulltrúa sinn á mótmæli gegn George Bush í Kaupmannahöfn í gær. Hér má lesa um þau og ótta ráðamanna við venjulegt fólk.

Tilgangslaus hryðjuverk – og allt er óbreytt 8.7.2005
Frá lokum annarrar heimsstyrjaldarinnar hefur enginn breskur forsætisráðherra verið stríðsæstari en Tony Blair. Blóðþorsti hans hefur nú gert almenning í London að skotmarki.

Poppstjörnur, bullur og mótmælendur 9.7.2005
Þegar fjölmiðlar sniðganga fólk sem mótmælir hnattvæðingunni eru þeir að taka þátt í skoðanakúgun. Mótmæli snúast ekki aðeins og raunar allra síst um einhvern hasar.

Hvers konar gildi hæfa nútímasamfélagi? 10.7.2005
Þeir Bush og Blair eiga fleira sameignilegt en trúna á hnefaréttinn. Báðir telja þeir sig handhafa „siðferðilegra gilda“.

Vinstrigræn á réttri leið 11.7.2005
Þau tíðindi hafa gerst að hálærður hagfræðingur treystir sér ekki til að gagnrýna neitt málefni Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs efnislega.

Skammgóður vermir 12.7.2005
Skoðanakannanir voru of óhagstæðar til þess að Samfylkingin hafi treyst sér til að slíta R-listanum nú um helgina. En er eitthvað unnið með því að fresta viðræðum?

Uppbygging eða þjófnaður? 13.7.2005
Stjórnarþingmönnum á alþingi verður tíðrætt um „uppbygginguna“ í Írak. Meðal þess sem falist hefur í henni fyrir Íraka er um að helmingur af þeim fjármunum sem þjóðin átti hefur horfið án viðunandi skýringa hernámsliðsins.

Nýja orðræðan 14.7.2005
Hvað merkja hugtök eins og skyr, gróðurhúsaáhrif, frelsi eða þjónustuaukning? Eins og vel er þekkt úr bókinni 1984 eftir George Orwell er það oft siður valdhafa að breyta orðræðunni og dulbúa þannig ýmis hugtök og heiti í sakleysisleg orð í þeirri von að almenningur skilji hvorki upp né niður. Múrinn hefur nú lagst í orðræðugreiningu og hér eru niðurstöðurnar.

Það teljast ekki allir með 15.7.2005
Ólík viðbrögð við hryðjuverkum nær og fjær sýna að samúðin hefur ekki verið alþjóðavædd.

Meira íslenskt sjónvarp! 16.7.2005
Sjónvarpsrýnir Múrsins fékk á dögunum aðgang að forláta Finlux-sjónvarpi frá síðari hluta 20. aldar. Hann er því í miklu stuði þó svo að allt of fáir íslenskir sjónvarpsþættir séu á dagskrá.

11 dagar í Írak 17.7.2005
Fórnarlömb hryðjuverka finnast víðar en í vestrænum stórborgum. Til dæmis í Írak.

Dæmisaga um einkavæðingu 18.7.2005
Einkavæðing raforkukerfisins virðist ætla að takast illa - rétt eins og einkavæðing lestakerfisins gerði á sínum tíma í Bretlandi.

Hugmyndafræði ofbeldisins 19.7.2005
Eitt sinn boðaði kristin trú sameiningu og samstöðu allra manna. Síðan var hún notuð til að réttlæta þrælasölu og
heimsvaldastefnu. Þannig getur farið fyrir öllum góðum hugmyndum.

Að horfa beint í augun á illskunni – og skilja 20.7.2005
Er eina ráðið við hryðjuverkum blint skilningsleysi og ofbeldi? Það virðist vera skoðun Egils Helgasonar en hún er klisja sem leysir fátt.

Fréttastofa Íslands 21.7.2005
Eitt og sama fyrirtækið er smátt og smátt að einoka allan fréttaflutning af innlendum atburðum. Aðeins Ríkisútvarpið stendur í veginum.

Að hræðast eigin huglægni 22.7.2005
Morgunblaðið hefur haft rangt fyrir sér um Íraksstríðið í stóru sem smáu. Samt sem áður, eða kannski þess vegna reynir blaðamaður þess – yfirlýstur aðdáandi Tony Blairs — að vera með derring í garð Múrsins. Þeir ættu ekki að kasta steinum sem búa í glerhúsum.

Eina lausnin er réttlæti 23.7.2005
Er ástandið í Írak orðið óleysanlegt? Eða má finna lausn ef vilji er fyrir hendi?

Almenningssamgöngur skipta okkur öll máli 24.7.2005
Í gær var nýtt leiðakerfi Strætó bs tekið í notkun. Múrinn fagnar þeirri sókn sem blásið hefur verið til í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu en betur má ef duga skal og horfa verður á málin í heildstæðu samhengi fyrir landið allt.

Fossar, lækir og mjólkurtaumar 25.7.2005
Í skyrauglýsingum er gefið í skyn að það sé þægilegt að fá mjólkurmat slett á sig, ólíkt tilfinningu margra jakkafatakalla á Hótel Nordica. Hver er skýringin?

Sjálfstæðismenn fella grímuna 26.7.2005
Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokknum er hlynnt almenningssamgöngum — fyrir börn og gamalmenni.

Glæsilegt framtak Grænna lausna 27.7.2005
Sveitastjóri Skútustaðahrepps reynir ranglega að eigna náttúruverndarsinnum verk hinnar ósýnilegu handar markaðarins. En hvort sem er þá er niðurstaðan ásættanleg.

Kúgun venjuleikans 28.7.2005
Nútíminn einkennist af ofurtrú á staðla og norm. Það sést á fegurðarsamkeppnum en líka á öðrum viðhorfum.

Atvinnumótmælendur? 29.7.2005
Það eru ýmsar leiðir til að koma upp um sig. Fólk sem notar orðið „atvinnumótmælandi“ vekur með því grunsemdir um að það telji sig hafa hag af því að hagræða sannleikanum.

Smættað frelsi 30.7.2005
Stjórnmál snúast ekki einungis um það hvernig fólk vinnur sér inn peninga og eyðir þeim. Stjórnmál snúast líka um samúð og gjafmildi, um bræðralag og réttlæti.

Um góðar bækur og vondar 31.7.2005
Hér á Íslandi er iðulega vísað í erlend fræðirit með þeim hætti að engu er líkara en að fólk lesi aðeins bækur sem staðfesta þeirra eigin fordóma.

Er trúarstríð í heiminum? 1.8.2005
Stjórnmál snúast ekki um „átök menningarheima“ heldur valdabaráttu. Afturhaldsmenn allra landa eiga það sameiginlegt að vilja verja „okkar gildi“.

Að halda völdum 2.8.2005
Verndari hinna tveggja heilögu moskva er fallinn frá og Abdullah, litli bróðir, tekinn við. Ekki getur talist líklegt að miklar breytingar verði í Sádi-Arabíu undir stjórn Abdullah sem kominn er á níræðisaldur.

Strætó og skattar 3.8.2005
Í þessari grein er fjallað um almenningssamgöngur og álagningu. Með sköttunum okkar borgum við m.a. fyrir almenningssamgöngukerfi sem við viljum að sé gott.

Bandamaður fyrir borð 4.8.2005
Hin nýja ríkisstjórn í Máretaníu verður hugsanlega ekki jafn fylgispök Bandaríkjunum og fráfarandi einræðisherra landsins.

Guði sé lof... fyrir þróunarkenninguna 5.8.2005
Þróunarkenning Darwins er sú vísindakenning sem enn skýrir langbest hvernig maðurinn varð til. Hugmyndin um sköpun er hins vegar ekki einu sinni vísindakenning. Samt vill Bandaríkjaforseti þvinga skóla til að leggja þetta að jöfnu.

Mesta fjöldamorð sögunnar 6.8.2005
Á þessum degi fyrir 60 árum voru tæplega 240.000 manns myrt með einni sprengju.

Auðvitað eiga samkynhneigðir sama rétt 7.8.2005
Suma hluti ætti ekki að þurfa að segja. Dæmi um það er yfirlýsing félagsmálaráðherra um að allar fjölskyldur eigi að njóta sömu réttinda.

Hin skilyrta fordæming afturbatakommans 8.8.2005
Afturbatakommar nútímans geta ekki einu sinni fjallað um kjarnorkuárásirnar á Japan án þess að sverja fyrst af sér Rússadekur. Útkoman verður oft brosleg, en er hún líka varhugaverð?

60 ár frá kjarnorkuárásum á Hiroshima og Nagasaki 9.8.2005
Engin grein barst til ritstjórnar í dag og við birtum því tilkynningu í staðinn.

„Langt umfram mannliga náttúru“ 10.8.2005
Hvað hefur gerst? Hafa miðaldafræðingar tekið völdin á ritstjórn Múrsins? Fylgist með þróun mála næstu daga!

Eru það einungis framkvæmdastjórar sem fá ekki fæðingarorlof? 11.8.2005
Lög um fæðingarorlof gera ómælt gagn. En glufurnar eru of margar og fleiri foreldrar bera skarðan hlut frá borði en þeir sem fyrir einhverja tilviljun eru milljónamæringar

Hinum að kenna 12.8.2005
Reykjavíkurlistinn er í andarslitunum. Hann á skilið virðuleg endalok og engin ástæða til að láta menn eins og Mörð Árnason spilla því.

R-listinn kvaddur 13.8.2005
Vinstrigræn í Reykjavík geta gengið til kosninga kinnroðalaust eftir að viðræður um R-lista fóru út um þúfur.

Að standa með sínu liði 14.8.2005
Skoðanamyndun á stjórnmálum á ekki að ráðast af sömu forsendum og fólk velur sér fótboltalið til að halda með.

Samkvæmisleikur eða átök hugmynda? 15.8.2005
Fyrir sumum virðast stjórnmál aðeins vera keppni einstaklinga og klíkna um völd. En þau geta einnig snúist um átök hugmynda.

Vinstriöflin í Reykjavík sterkari en nokkru sinni fyrr 16.8.2005
Reykjavíkurlisti er ekki markmið í sjálfu sér heldur aðferð við að bjóða fram. Því má ekki gleyma núna þegar borgarmálin eru í kastljósinu.

Samstarfsslit Samfylkingar 17.8.2005
Nóg er kannski rætt um R-listann en þó ekki.

Ofbeldi í stríði gegn hryðjuverkum 18.8.2005
Nú er komið í ljós að Brasilíumaðurinn sem skotinn var í neðanjarðarlest í Lundúnum nýverið hafði ekki aðhafst neitt grunsamlegt. Breska lögreglan virðist vera farin að beita óprúttnum meðölum í „Stríðinu gegn hryðjuverkum.“

Minnisblað til leiðarahöfunda Moggans 19.8.2005
Leiðarahöfundum Moggans til hægðarauka hefur Múrinn sett saman þetta minnisblað um afstöðu Moggans til Reykjavíkurlistaflokkanna þannig að þeir eigi auðveldara með að skrifa leiðarana sína hratt og vel.

Leikskólakennara vantar! 20.8.2005
Er hægt að leysa manneklu á Leikskólum Reykjavíkur með því að lóðsa eldri borgara inn á leikskólana?

Tilgangslaus mótmæli? 21.8.2005
Hvaða tilgang hafa mótmæli á borð við þau sem hafa verið höfð í frammi á Kárahnjúkasvæðinu að undanförnu?

Tómar tunnur 22.8.2005
Er mögulegt að það sé svo leiðinlegt að starfa innan Samfylkingarinnar að mönnum finnist það boða nýja og spennandi tíma þegar Ingibjörg Sólrún endurflytur valda kafla úr gömlu Borgarnesslanglokunum?

Aflgjafar hringekjunnar á Haiti 23.8.2005
Þeir sem ekki hafa spáð í málefni Haiti nýlega ættu að lesa þessa grein sér til upprifjunar og fróðleiks.

Slök einkunn íslenskra stjórnvalda 24.8.2005
Ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að taka Mannréttindaskrifstofu Íslands af fjárlögum er í besta falli óklók og býður hættunni á því heim að þau verði grunuð um græsku Í versta falli getur hún verið til marks um að ástæða sé til að gruna stjórnvöld um græsku.

Djarfir Danir 25.8.2005
Dönsku samtökin Oprør, sem stofnuð voru í fyrra og telja um 600 manns, hafa opinberlega stutt PFLP í Palestínu og FARC í Kólumbíu með talsverðum fjármunum, þvert á dönsku hryðjuverkalögin og löggjöf ESB um sama efni.

Laufléttur Pat Robertson 26.8.2005
Var leiðtogi kristna hægrisins í Bandaríkjunum bara að gaspra á léttu nótunum þegar hann hvatti til þess að Hugo Chávez, forseti Venezúela, yrði ráðinn af dögum?

Útrýming skyldunnar 27.8.2005
Um leið og frjálshyggjan elur af sér skylduleysið, styrkir skylduleysið frjálshyggjuna.

Vinstrimenn verða að leggja harðar að sér 29.8.2005
Það er ekki ólíklegt að mörgum hafi brugðið yfir forsíðu Fréttablaðsins í morgun en þar er sagt frá nýrri skoðanakönnun í Reykjavík. En borgin er þó fjarri því að vera töpuð og vinstrimenn eiga alla möguleika á að vinna glæstan sigur í vor, ef þeir gæta þess að fita ekki púkann á fjósbitanum.

Er hagfræði tilgangslaus? 30.8.2005
Múrinn veltir fyrir sér tilgangi eða tilgangsleysi hagfræðinnar.

Misverðmæt mannslíf 31.8.2005
Eftir þrjá og hálfan mánuð hefur ekkert verið aðhafst vegna fjöldamorðanna í Andidjan í Úsbekistan þrátt fyrir að þar hafi álíka margir fallið og Tianamen-torgi sumarið 1989.

Félagshyggjumaðurinn og mannauðurinn 1.9.2005
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins, trúlega þeirri fyrstu af 200 sem blaðið mun birta fram að kosningum, verður aðeins einn félagshyggjumaður í hinni fáskipuðu borgarstjórn Reykjavíkur eftir kosningar 2006.

Bandaríkjastjórn söm við sig 2.9.2005
John Bolton virðist standa sig vel sem nýr talsmaður Bandaríkjastjórnar hjá SÞ ef marka má hugmyndir hans um fátækt, afvopnunarmál og umhverfismál. Hann vill ekki heyra á þessi mál minnst.

Prófkjör og gervilýðræði 3.9.2005
Prófkjör eru ekki kjarni lýðræðis. Þau eru aðeins tæki flokka til að skera úr um hvernig finna má hentuga frambjóðendur til að tala máli flokksins og framfylgja stefnu hans.

Móðuharðindi af mannavöldum? 4.9.2005
Með tímanum hlýtur sú spurning að vakna hvaða lærdómur verði dreginn af þeim hörmungum sem hlutust af fellibylnum Katarínu og eftirköstum hans.

Frjáls verslun í Evrópustíl 5.9.2005
Einhverjir kynnu að halda að frjáls verslun snúist um framboð og eftirspurn. En ekki þegar Evrópusamband sérhagsmunanna á í hlut.

„Þjónustuaukning“ 6.9.2005
Það er mikið bullað í nútímanum og ekki síst í heimi viðskiptanna. Kapítalismarýnir Múrsins veltir fyrir sér einum af nýjustu frösunum.

Jólasveinninn kemur snemma í ár 7.9.2005
Það er ávallt gaman að fá pakka, jafnvel þótt maður hafi borgað þá sjálfur.

Byssur eða brauð? 8.9.2005
Þrátt fyrir vaxandi fátækt og aukna eymd í heiminum virðist engin áhugi vera á að taka á vandamálunum. Hinar ríku þjóðir heimsins keppast frekar við að fylla vopnabúr sín.

Klink 9.9.2005
Af hverju í ósköpunum ætti ríkissjóður annarrar þjóðar að aðstoða Íslendinga við að halda uppi flugsamgöngum við önnur lönd? Eru það fjörbrot úreltrar utanríkisstefnu sem koma fram í örvæntingarfullum tilraunum til að kreista sem flestar krónur út úr hernum á síðustu mínútunum eða kemur fleira til?

Fléttur og feminismi 10.9.2005
Fléttulistar eru nauðsynleg við því að frá árdögum lýðræðisins hafa konur almennt ekki fengið sömu tækifæri til að bjóða sig fram og hljóta kosningu

Rautt og grænt í Noregi 12.9.2005
Ef rauðir og grænir flokkar ná völdum í Noregi eftir kosningarnar í dag er það til marks um að Norðmenn hafa náð ákveðnum pólitískum þroska.

Réttindaskrá barna – undirstaða grunnskólastarfs 13.9.2005
Lýðræðissamfélag snýst um það að allir eiga sama rétt. Þess vegna er það eitt mikilvægasta hlutverk grunnskóla að bjóða öllum börnum jöfn tækifæri til náms.

Njáluhúmorinn lifir 14.9.2005
Njáluhúmorinn lifir í íslenskri kvikmyndagerði og er leikstjórinn Róbert Douglas einn besti fulltrúi hans.

Efnahagseipið 15.9.2005
Mikið hefur verið eipað í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ekki síst í efnahagsmálum.

Stoltenberg fremur en Schröder 16.9.2005
Íslenskir vinstrimenn geta margt lært af árangri systurflokkanna í Noregi — og árangursleysi þeirra í Þýskalandi.

Auglýst eftir utanríkisstefnu 17.9.2005
Hugsanleg seta Íslands í Öryggisráðinu mun ekki verða til þess að sjónarmið friðelskandi Íslendinga komist að í ákvörðunum ráðsins, heldur aðeins til þess að Bandaríkjamenn öðlist enn einn jámanninn í ráðinu.

Fréttastjóri Íslands 18.9.2005
Kjartan Gunnarsson hefur að líkindum brosað í kampinn yfir velheppnuðu dagsverki 6. september sl.

Þýski Vinstriflokkurinn sterkari en nokkru sinni fyrr 19.9.2005
Niðurstöður þýsku kosninganna eru um margt athyglisverðar en ólíkt því sem fréttaskýrendur töldu snerust kosningarnar ekki aðeins um persónuleika leiðtoganna heldur einkum um fyrirhugaðar breytingar á velferðarkerfinu.

„Indíalönd eru þrjú“ 20.9.2005
Íslendingar höfðu áhuga á umheiminum, meira að segja áður en kom að framboði Íslands í Öryggisráðið. En því miður einkenndust hugmyndir þeirra um fjarlæg lönd af sleggjudómum og vanþekkingu.

Mosinn tættur en áljakkaföt vernduð 21.9.2005
Af hverju fær lögreglan ekkert fé til að verja Reykjanesfólkvang fyrir slæmri umgengni? Fara allir peningarnir í að verja stóriðjumógúla fyrir friðsömum mótmælendum?

Athygliverðar kosningar framundan á Haiti 22.9.2005
Lýðræðislega kjörnum forseta hefur verið steypt af stóli. Fyrrverandi einræðisherra hyggst snúa aftur. Róttækum frambjóðanda er meinuð þátttaka í forsetakosningum. „Lýðræðisvæðing“ Bush Bandaríkjaforseta á sér sérstæða birtingarmynd á Haiti.

Símablús 24.9.2005
Hagræðing í kjölfar einkavæðingar breska símans hefur leitt til snarversnandi þjónustu. Þá reynslu hefði ríkisstjórn Íslands átt að kynna sér.

Stóra Baugsmálið, eða: hamborgarinn sem hvarf … ofaní Jón Ásgeir 25.9.2005
Styrmir Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson og Jón Steinar Gunnlaugsson þekkjast og hafa talað saman um Baugsmálið! Hver hefði nú trúað því? Jóhannes í Bónus krefst afsagnar ritstjóra Morgunblaðsins! Er harmleikurinn að breytast í farsa?

Nóg eftir af kjarnorkuflaugum 26.9.2005
Það er fagnaðarefni að samningar skuli hafa náðst um endalok kjarnorkuáætlunar Norður-Kóreu. Friðlýsing Kóreuskagans er hins vegar einungis fyrsta skrefið til afvopnunar og fleiri þurfa að fylgja á eftir.

Enn fölna rósirnar í Georgíu 27.9.2005
Take That, Fake That, Georgía og Úkraína.

Fjölmiðlakreppa? 28.9.2005
Ríkir fjölmiðlakreppa á Íslandi eða eru lesendur bara búnir að átta sig á því að þeir höfðu aldrei neina ástæðu til að treysta dagblöðunum?

Vinstrimeirihlutinn sem aldrei var 29.9.2005
Nú birtast skoðanakannanir í gríð og erg sem sýna meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borginni. En er mark á þessum könnunum takandi? Og stýra þær skoðunum fólks?

Óheiðarleg vinnubrögð 30.9.2005
Bolli Thoroddsen og Heimdellingar hafa gengisfellt allt sem heitir alvöru stjórnmál með vinnubrögðum sínum. Ungmenni eru höfð að fíflum þegar þau eru beðin að skrá sig í tiltekinn stjórnmálaflokk til þess að eins að kjósa í stjórn og fá frían bjór á kosningavöku.

Vísindamenn bjarga heiminum 1.10.2005
Þróunaraðstoð er ekki vel varið þegar hún er sett í gæluverkefni auðugra ríkja hverju sinni og ætlað að sýna fram á gæði ákveðinnar stjórnmálastefnu umfram aðrar. Betur fer þegar fjármunum er varið til að byggja upp grunnstoðir viðkomandi samfélags.

Nýi Verkamannaflokkurinn 2.10.2005
Fyrir mörgum áratugum flúði Walter Wolfgang til Englands undan stríðsglæpamönnum sem stjórnuðu lögregluríki. Núna hittir hann þá heima fyrir.

Er Landsvirkjun góður kennari? 3.10.2005
Með verðlaunasamkeppni Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun er fyrirtækið að reyna að koma boðskap sínum inn í kennslustofurnar.

Slippurinn á Akureyri 5.10.2005
Einn af fótgönguliðum Framsóknarflokksins lýsti yfir endurreisn Slippstöðvarinnar á Akureyri — daginn áður en hún var tekin til gjaldþrotaskipta.

Hvers á fljúgandi spagettískrímslið að gjalda? 6.10.2005
Af hverju er enginn Bobby Henderson á Íslandi?

Óheiðarleiki og lýðskrum Bolla 7.10.2005
Blaðamaðurinn Símon Birgisson snýr ásökununum á  hendur Bolla Thoroddsen á hvolf og telur umræðuna snúast um áfengi og skemmtanir. Ung vinstrigræn í Reykjavík ítreka hins vegar fyrri kröfu um afsökunarbeiðni.

Guð er formaður Sjálfstæðisflokksins 8.10.2005
Síðar í þessum mánuði munu Sjálfstæðismenn líklega kjósa Guð til forystu í flokknum, gegnum málpípu hans, Geir H. Haarde.

Játning treggáfaðs róttæklings 9.10.2005
Er pepsiskortur alvarlegra vandamál en leit að olíulindum? Hófust deilurnar í Austurlöndum nær með stundarbrjálsemi Palestínumanna fyrir fimm árum? Gera heimboð suma menn tortryggilega en ekki aðra? Eiga fréttamenn að þekkja staðreyndir og fara rétt með þær?

Sjaldan er gott ljós of oft kveðið 10.10.2005
Einu sinni var þáttur á dagskrá Sjónvarpsins sem hét Kastljós. Síðan kom Kastljósið með greini. Nú er greinirinn aftur horfinn. Mikil hugmyndavinna í gangi þar.

Hvaða vanda er verið að leysa? 11.10.2005
Drifkrafturinn á bak við sameiningu sveitarfélaga er annar en skynsemisrök. Sameiningarferlið hvílir á þeirri forsendu, nánast trúarlegu sannfæringu, að stórar einingar séu alltaf og í öllum tilvikum betri en smáar, óháð aðstæðum eða tilvikum hverju sinni.

Ísland er ekki land þitt 13.10.2005
Það er ekki hægt að eiga land frekar en það er hægt að eiga ást, segir Arngrímur Vídalín Stefánsson. Lönd og þjóðir eru staðalmyndir, til einföldunar okkar flókna heimi.

Munaðarleysi í íslenskum stjórnmálum 14.10.2005
Freudískt samband Samfylkingarinnar og Davíðs Oddssonar er nú að renna sitt skeið á enda. En hver er þá tilgangur Samfylkingarinnar og hvar er lífsfylling hennar?

Brennt barn... 15.10.2005
Íbúar Panajab hafa ekki viljað hleypa guatemölskum hermönnum inn í þorpið sitt þrátt fyrir náttúruhamfarir undanfarinna daga. Múrinn kannar ástæður þessa.

Obote látinn en harmsaga Úganda heldur áfram 16.10.2005
Hann sagðist einu sinni frekar vilja visku Miltons en fegurð Apollos. En ekki hlýtur hann þau eftirmæli að hafa verið vitur leiðtogi.

Nú vantar aðeins herslumun 17.10.2005
Hugsanlega verður nýr borgarstjórnarmeirihluti myndaður í Reykjavík eftir næstu kosningar. Hin óvæntu tíðindi úr skoðanakönnunum hafa hins vegar farið fram hjá fjölmiðlamönnum.

Fautar í kandíflossi? 18.10.2005
Þrátt fyrir andlitslyftingu Sjálfstæðisflokksins um helgina veita ályktanir landsfundar vísbendingu um að ekki hafi verið horfið frá grímulausri hægristefnu.

Tæknilausnir, persónudýrkun og leiðinleg pólitík 19.10.2005
Því miður virðist pólitísk umræða oft einmitt vera eins og spurningakeppni þar svörin liggja fyrir og stjórnmálamennirnir þurfa bara að þylja þau upp eins og fermingarbörn sem læra faðir vorið til að fá allir fínu gjafirnar. Hlutverk fjölmiðla á að vera að spyrja spurninganna sem stjórnmálamennirnir eru ekki búnir að læra utan að.

Hvaða tilgangi þjóna sýndarréttarhöldin? 20.10.2005
Enginn fjölmiðill er skyldur til að taka þátt í nýjasta sirkusnum sem er að hefjast í Írak en auðvitað munu þeir flestir spila með.

Kraftaverkin flutt út 21.10.2005
Það fór þá aldrei svo að útflutningsleiðin hans Ólafs Ragnars næði ekki fótfestu einhvers staðar á jarðarkringlunni.

„Það er víst eitthvert lögmál að laun mín séu smá“ 24.10.2005
Fyrir 30 árum fóru íslenskar konur í verkfall. Hvers vegna þurfa þær að endurtaka leikinn? Eða endurtaka þær hann ekki nógu oft?

Hvert stefnir? 25.10.2005
Í munni hægrimanna hefur Svíþjóð verið að fara á hausinn undanfarin 30-40 ár. Þess vegna er merkilegt að þessi sama Svíþjóð með sinn 50% tekjuskatt og umfangsmikið velferðarkerfi skuli státa af mestri samkeppnishæfni allra ríkja samkvæmt nýlegri rannsókn.

Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkurinn 26.10.2005
Baugsmálið er svo sannarlega ekki eina málið sem sýnir fram á tengsl Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins. Múrinn rifjar upp.

Heilbrigðiskerfið er matvörubúð 27.10.2005
Samfylkingarmenn verja trú sína á einkaframkvæmd en verða samt sárir þegar þeim er bent á að þeir séu komnir ansi langt til hægri. En ekki verður bæði sleppt og haldið.

Úrelt kökufræði 28.10.2005
Tilgangurinn með þvaðrinu um að allir fái meira ef þeir láti stækkun kökunnar ganga fyrir, er sá að sannfæra almenning um að honum sé hollast að bíða með ró eftir því að verða umbunað fyrir erfiði sitt - þegar og ef elítunni þóknast.

Félagslegir útlagar 29.10.2005
Samfélagið lítur þá sem ekki standa skil á meðlagsgreiðslum hornauga og dæmir alla jafnt, hvort sem þeir geta borgað meðlögin eða ekki. Þegar svo ber undir að forræði barns kemur í hlut föður spyrjum við hvað hafi verið að móðurinni.

Prófkjörsdallurinn 30.10.2005
Múrinn tekur undir með Morgunblaðinu um að það þurfi að breyta prófkjörsmenningu Íslendinga og leggur til nýjan miðil: Raunveruleikasjónvarpið.

Jólin byrja núna 1.11.2005
Því er spáð að Íslendingar ætli sér að eyða fjórum milljörðum meira fyrir jólin í ár en í fyrra.

Fellibyljirnir Davíð og Halldór 2.11.2005
Aldrei hafa fleiri eða öflugri hitabeltisstormar gengið yfir Atlantshafið á einu fellibyljatímabili. Samt þrjóskast menn enn við að opna augun fyrir gróðurhúsaáhrifunum eða að grípa til aðgerða gegn þeim.

Undanbrögð utanríkisráðuneytisins 3.11.2005
Er verið að fljúga með fanga á leið í pyntingarbúðir í íslenskri lofthelgi? Og á að láta slíkt viðgangast? Múrinn telur fulla ástæðu til að bregðast hart við.

Hinn ljúfsári raunveruleiki 4.11.2005
Á tímum meintrar siðferðilegrar upplausnar er My Sweet Sixteen ein aðgengilegasta en um leið skarpasta ádeila á vestrænt gildismat sem sjónvarpsstöðin Sirkus hefur sýnt um árabil.

Gjaldþrot mýtunnar 5.11.2005
Gúlögin í austri hafa staðið auð um árabil en hafa nú verið endurskilgreind sem hluti af brjóstvörn frelsisins. Og íslenska hægristjórnin spilar með.

Fangaflugið og íslensk utanríkisstefna 6.11.2005
Ákvörðun um að nota Ísland sem millilendingarstað fyrir flutning á stríðsföngum væri að því leyti rökrétt framhald af þeirri utanríkispólitík sem íslensk stjórnvöld hafa rekið undanfarin 60 ár: Hagsmunir Bandaríkjastjórnar marka stefnuna.

Lífið eftir byltingu 7.11.2005
Það er byltingarafmæli. Því ekki að skrifa soldið um sjónvarpið í tilefni dagsins?

Nýjustu hryðjuverkin 8.11.2005
Núna er farið að skilgreina fólk sem berst gegn auknum aðgangi stórfyrirtækja að mörkuðum í Suður-Ameríku undir merkjum fríversluna sem hryðjuverkamenn.

Að deila og drottna 9.11.2005
Óeirðir í París vekja óhug heimsbyggðarinnar. En af hverju stafar þessi ólga? Þrátt fyrir ákall íhaldsmanna um skilningsleysi reynir Múrinn að komast til botns í málinu.

Ísland eitt kjördæmi? 10.11.2005
Mun næsta kjördæmabreyting leiða til þess að landið verði eitt kjördæmi og kjósendum leyft að kjósa ekki aðeins flokka heldur einnig fólk?

Þeir hafa gert þetta áður 11.11.2005
Blekkingaleikurinn sem hægrimenn ráku í aðdraganda Íraksstríðsins er ekki dæmi um ný vinnubrögð af þeirra hálfu. Þeir stunduðu þau líka á árum kalda stríðsins.

Fjármálavit og einkabílar 12.11.2005
Strætisvagnar eru fyrir fólk með fjármálavit. Sem er vissulega minnihlutahópur á Íslandi. Strætisvagnar eru fyrir þá sem kjósa að henda ekki 600 þúsund krónum á ári fyrir einkabílinn. Fyrir utan auðvitað stofnkostnaðinn og allan þann aukakostnað sem fylgir dýrari bílum.

Halldór sér ljósið 13.11.2005
Skyndilega hefur Halldór Ásgrímsson áttað sig á tilgangsleysi hersins í Keflavík og er farinn að tala eins og Steingrímur Hermannsson. Er þessi skyndilega stefnubreyting fyrirboði um það sem koma skal?

Ærumissir Verkamannaflokksins 14.11.2005
291 þingmönnum breska Verkamannaflokksins — svo kölluðum jafnaðarmönnum — finnst það framfaramál að hneppa megi fólk í þriggja mánaða varðhald án þess að nein sönnunargögn liggi fyrir.

Uppgjöf og aumingjaskapur 15.11.2005
Það er lítilmannleg uppgjöf í því að ætla sér að leysa vandamál sem upp koma vegna innflytjenda og samskipta við þá með því einu að reka þá úr landi eða hamla þeim inngöngu. Það er hlutverk stjórnmálamanna að leysa þau vandamál sem upp koma í samskiptum innflytjenda og innfæddra í stað þess að senda þau í burtu.

Laxness sem miðaldafræðingur 16.11.2005
„Fáar bækur hafa í þeim mæli sem Landnáma verið gerðar að undirstöðu þjóðrembíngs og lýðskrums“, segir Halldór Laxness í seinustu grein Vínlandspúnkta. Markmiðið með hans eigin skrifum var allt annað.

Til hamingju með að vera fátækur! 17.11.2005
Menntamálaráðherra telur hamingju æðstu menntastofnunar landsins felast í því að fá að lifa við sult og seyru. Þetta eru skilaboðin frá yfirvöldum til Háskóla Íslands.

Annmarkar á Ásmundarkenningunni koma í ljós 18.11.2005
Framsóknarflokkurinn hefur fallist á að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag og samkvæmt venju „eru engin áform uppi um sölu“ á bréfum í hinu verðandi hlutafélagi.

Yfirheyrslur og pyntingar 19.11.2005
Þegar Saddam gerir það þá heitir það glæpir gegn mannkyninu og brot á alþjóðalögum. En þegar að Bandaríkjaher pyntar og drepur saklausa borgara er það kallað „frelsun þjóðarinnar".

Aðhald og eyðsluklær 20.11.2005
Kosningabarátta einstakra sjálfstæðismanna í nýafstöðnu prófkjöri bendir svo sannarlega ekki til aðhalds og vekur alvarlegar spurningar ef marka má mýtuna um að maður fari betur með eigin fé en annarra.

Val, vilji og vinir einkabílsins 21.11.2005
Sjálfstæðismenn vilja malbika fyrir einkabíla í stað þess að reka öflugt almenningssamgangnakerfi. Þetta kemur ekki á óvart og heldur ekki að rök þeirra í málinu eru ógild.

Hagsmunir barna og foreldra 22.11.2005
Sameiginleg forsjá verður nú brátt að meginreglu við skilnað foreldra. En ýmislegt er óljóst í lagaumhverfinu fyrir sameiginlega forsjá.

Er tvöföldun Suðurlandsvegar heillaráð? 23.11.2005
Það er augljóslega meiri vegabót af því að fá nýjan veg á milli þéttbýlisstaða heldur en að breikka hraðbraut sem er tiltölulega greiðfær fyrir. En það er eins og hjarta þingmanna Suðurkjördæmis sé bara á Selfossi, ekki í Grindavík eða á Þorkákshöfn.

Sjálfstæðismenn kynnast málfrelsinu 24.11.2005
Er Einar Oddur hættur að kenna að Seðlabankanum um allt sem miður fer? Er Halldór Blöndal farinn út af sporinu? Finnst Pétri Blöndal í alvöru að ráðherraliðið sé samansafn rasista?

Hátæknisjúkrahús, bananar og orkudrykkir 26.11.2005
Á sama tíma og reisa á nýtt hátæknisjúkrahús þarf að loka deildum á þeim spítölum sem fyrir eru. Er það rétt forgangsröðun?

Hugað að smáfuglunum 27.11.2005
Það hafa allir samúð með smælingjum. Þeir eru færri sem vilja leita að rótum vandans, því samspili fátæktar og neyslumenningar sem gerir sumt fólk að smælingjum til þess að aðrir megi upphefjast.

Á umræða um líknardráp rétt á sér? 28.11.2005
Þótt ótrúlegt megi virðast fjallar þessi grein ekki um Framsóknarflokkinn.

Þó líði ár og öld 29.11.2005
Einkavæðing vatns er ekki ný af nálinni. En ekki hefur hún gefist vel, hvorki fyrir hundrað árum í Kanada né núna í Argentínu.

Manngerðir vítiseldar 30.11.2005
Engan langar til að stikna í gjóskumekki frá sprengigosi og allir eru sammála um hvílík illvirki nasistar frömdu í útrýmingarbúðunum í seinni heimsstyrjöld. En ...

Þvermóðska Þorgerðar 1.12.2005
Engin rök menntamálaráðherra fyrir samræmdu stúdentsprófi og styttri framhaldsskóla standast skoðun - nema kannski hagræðingarrökin.

Frægir Slóvakar 2.12.2005
Getur þú talið upp 10 fræga Slóvaka? Ja, þessi grein hjálpar allavega til.

Fjölskyldan og ríkið 3.12.2005
Væri kannski tilraunarinnar virði að breyta íslenskum hjúskaparlögum á þann veg að öll hjúskaparform verði leyfð?

Uppljóstrun 4.12.2005
Einn af nánustu samstarfsmönnum varaforseta Bandaríkjanna lak upplýsingum um starfsmann bandarísku leyniþjónustunnar til fjölmiðla. Er þetta versta synd bandarískra stjórnvalda eða bara kornið sem fyllti mælinn?

Goðsagnir um öryrkja hraktar 5.12.2005
Ný skýrsla Stefáns Ólafssonar um örykja á Íslandi er stórmerkileg lesning og niðurstöður hennar ættu að koma á óvart — í það minnsta ýmsum þeim sem hafa verið að tjá sig fjálglega um þessi mál upp á síðkastið.

Hefnd í stað réttlætis 6.12.2005
Ef innrásarlöndunum og írösku stjórninni væri alvara með réttarhöldum yfir Saddam Hussein myndu þau fresta réttarhöldum eða flytja úr landi, eins og Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til.

Skemmtilega samkeppnisumhverfið 7.12.2005
Með því að spara milliliðakostnað gat forseti Venezuela veitt fátækum Bandaríkjamönnum 40% afslátt á olíuverði. Ríkisstjórn Íslands ákvað hins vegar að fara í hina áttina.

Fátækt á jólum 8.12.2005
í jólaæðinu er vert að minnast þess að til eru fjölskyldur í fjarlægum löndum sem lifa við hungursneyð og lepja dauðann úr skel.

Vaxandi mengun 10.12.2005
Auðvelt væri að minnka svifryk í andrúmsloftinu með því að takmarka notkun nagladekkja, t.d. með hærri tollum á slík dekk.

Ofsóknaræðið blómstrar á aðventunni 11.12.2005
Er umburðarlyndið að eyðileggja jólin?

Afhjúpun pyntingameistarans 12.12.2005
Fangaflug C.I.A. og siðlaus fangabúðarekstur Bandaríkjastjórnar um allan heim vekur hvarvetna viðbjóð og fordæmingu. Aðferðirnar eru ekki nýjar af nálinni, en siðferðislega hafa pyntingameistararnir líklega aldrei staðið veikar.

Auðvitað á hann að segja af sér 13.12.2005
Árni Magnússon hrakti jafnréttisstýru úr embætti vegna dóms í undirrétti. Þegar hann sjálfur fær dóm á sig þá er afsögn ekki á dagskrá.

Femínistafélagið er langsvalast 14.12.2005
Femínistafélagið á að hrós skilið fyrir að þora að segja enn einu sinni það sem það hefur oft sagt það áður: Það er eitthvað skakkt við það gildismat í íslensku samfélagi að konur séu alltaf metnar eftir útlitinu.

Stöðugleiki hinna ríku 15.12.2005
Nú er víst ekki rétti tíminn fyrir launahækkanir. Ástæðan er efnahagsþensla að undanförnu, sem má skýra með hækkandi launum þeirra sem nú gagnrýna launahækkanir Reykjavíkurborgar.

Setjum nefnd í málið! 16.12.2005
Því má treysta að þegar rannsóknarnefnd ESB hundskast til verka þá verða starfsmenn CIA ekki bara búnir að flytja alla fangana burt og koma þeim fyrir í leynidýflissum í öðrum heimsálfum – heldur verður hvorki tangur né tetur eftir af pyntingamiðstöðvum Bandaríkjastjórnar í Póllandi og Rúmeníu.

Þegar kristna íhaldströllið stal jólunum 17.12.2005
Það er ekki hægt að stela frá fólki því sem það hefur aldrei átt og jólin hafa aldrei verið neitt sérstaklega kristin hátíð.

Róttækur vinstrimaður kjörinn forseti Bólivíu 19.12.2005
Kosningabarátta Morales og Quiroga endurspeglaði afar glöggt hinar andstæðu fylkingar í bólivískum stjórnmálum svo óhætt er að segja að val kjósenda sé skýrt.

Framfarir: Vöxtur eða jafnvægi? 20.12.2005
Núna er sú hugmyndafræði ráðandi að framfarir byggi á vexti fremur en jafnvægi. Þessi skoðun getur leitt okkur í ógöngur.

Svar óskast 21.12.2005
Á örfáum mánuðum virðist sem Ingibjörgu Sólrúnu hafi tekist að færa Samfylkinguna afturábak; á sömu mið og þar sem forveri hennar fiskaði ekki neitt.

Bannað að skemmta sér 22.12.2005
Nýjasta handahófsaðgerð yfirvalda gagnvart framhaldsskólanemum mun vafalítið skapa meira vanda en henni er ætlað að leysa.

Það sem fólkið vill? 23.12.2005
Geta metsölubækur verið góðar bækur? Það er heldur ólíklegra en hitt.

Fastir liðir 25.12.2005
Sumt hefur lítið sem ekkert breyst í meira en þúsund ár þrátt fyrir alla nútímavæðinguna á hinum ýmsu sviðum.

Borðsálmur í óbundnu máli 26.12.2005
Það er lítið mál að blaðra um að fríverslun leysi allan vanda fátæku þjóðanna en það getur aftur á móti verið dálítið flókið að breyta umgjörð alþjóðaviðskipta þannig að það gagnist þeim sem mest þurfa á því að halda.

Blýlaust bensín í Afríku 27.12.2005
Skipti Afríkuríkja yfir í blýlaust bensín sýna að hægt er að bregðast við mengunarvanda með skjótum og áhrifaríkum hætti á tiltölulega skömmum tíma. En við búum áfram við gríðarlegan vanda vegna bílamengunar.

Lögbundinn launamunur 28.12.2005
Nýlegur úrskurður Kjaradóms sýnir hversu rækilega prósentuhækkanir hafa gengið sér til húðar á íslenskum vinnumarkaði.

Múrinn og matarpólitík 29.12.2005
Hvað má borða og hvað ekki? Múrinn kannar málið.

Ekki öll kurl komin til grafar 30.12.2005
Margt bendir til þess að embættismenn beri meiri ábyrgð á mannfallinu í Beslan en rússnesk stjórnvöld hafa gefið í skyn.

Áramótaannáll Múrsins 31.12.2005
Þessi annáll er fyndnari en Skaupið – en hvað er það svo sem ekki?

Hvað er upplýsing? 1.1.2006
Margt bendir til að ekki veiti af rækilegri upplýsingu varðandi málefni Mið-Austurlanda til að forsendur skapist fyrir vitrænni umræðu um þennan heimshluta á Vesturlöndum. En það er líka full þörf á að standa vörð um málfrelsið þegar kemur að slíkri umræðu.

Fórnarkostnaður kapítalismans 2.1.2006
Meðal þess sem reikna má að gerist á árinu 2006 er að 8-9 milljónir munu deyja úr hungri.

Feitir rassar hjá Flugleiðum 3.1.2006
Launamunurinn á Íslandi er orðinn meiri en svo að hægt sé að tala lengur um eitt Ísland. Samkvæmt skattframtölum eru rúmlega 8% þjóðarinnar hátekjumenn með yfir tíu milljónir í atvinnutekjur á ári á sama tíma og meðaltekjur landsmanna eru í kringum 210 þúsund krónur á mánuði.

Munu Inkarnir endurheimta Perú? 4.1.2006
Frambjóðandi þjóðernissinnaðra Inka er í sókn í Perú. En gamlir draugar hafa einnig skotið upp kollinum.

Hinir nýháðu 5.1.2006
Stjórnmálamenn sem þykjast væri bæði óháðir og innan flokks streitast við að skapa merkingu úr merkingarleysi í pólitískum leik.

Bættur skaði 7.1.2006
Hvað er á bak við þá áráttu fjölmiðla að gera dýrling úr Ariel Sharon - og það fyrir dauðann?

Er vænlegt að þvinga Íransstjórn til hlýðni? 8.1.2006
Hversu ótrúlega sem það kann að hljóma er viðleitni Íransstjórnar til að koma sér upp kjarnorkuverum er fullkomlega lögleg samkvæmt NPT-samningnum. Hvaða ríki sem er getur sett slíka vinnu af stað en síðan sagt samningnum upp með hálfs árs fyrirvara og byrjað að smíða kjarnavopn.

Samkvæmisfréttir ríkisins 9.1.2006
RÚV flytur núna fréttir af einkaneyslu íslenska þotuliðsins, landsmönnum til ánægju og eftirbötunar.


Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur