Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Þegar börn „ákveða“ að selja sig

19.2.2005

Margir kunna að telja Vefþjóðviljamenn til helstu varðhunda vestrænna siða og menningar. Þeir virðast nú á gamals aldri hins vegar hafa snúist mjög gegn vestrænum ríkjum, a.m.k. ef marka má stórmerka umfjöllun þeirra um sænsku kvikmyndina Lilja 4ever sem Lukas Moodyson leikstýrði. Eins og kunnugt er fjallar sú stórgóða kvikmynd um örlög rússnesku stúlkunnar Lilju sem er seld mansali frá Rússlandi til Svíþjóðar.

Aðdragandi þess er hins vegar aðalatriði myndarinnar en þar er því lýst hvernig unglingsstúlkan Lilja þarf að fóta sig þegar móðir hennar yfirgefur hana. Hún á vart til hnífs og skeiðar og býr við ömurlegar aðstæður. Í örvæntingu sinni fer hún að selja sig á skemmtistöðum. Í einni slíkri ferð kynnist hún ungum manni sem hefur uppi fögur fyrirheit en blekkir hana til að fara til Svíþjóðar þar sem hún er neydd til að halda vændinu áfram.

Túlkun Vefþjóðviljans á þessu er hins vegar stórmerk bókmenntafræði svo ekki sé meira sagt:

„Í myndinni Lilja 4ever er sýnt hvar Lilja byrjar að stunda vændi til að sjá fyrir sér áður en hún er blekkt til Svíþjóðarfararinnar. Það er að sönnu ömurlegt líf sem þar er lýst en þrátt fyrir allan ömurleikann þá bliknar hann í samanburði við það víti sem tekur við í Malmö. Áður en hún fer til Svíþjóðar er hún frjáls og ákveður sjálf hvort, hvenær og hverjum hún selur þjónustu sína. Eftir komuna til Svíþjóðar ræður hún engu lengur. Er þetta ekki í hnotskurn munurinn á því leyfa vændi eða banna það?“

Eins og sjá má telja Vefþjóðviljamenn Lilju mun betur borgið í Rússlandi þar sem hún neyðist á barnsaldri til að selja sig til að svelta ekki. Þetta túlka þeir sem svo að hún sé „frjáls“ og ákveði „sjálf hvort, hvenær og hverjum hún selur þjónustu sína“. Svo er því bætt við að mun verr hafi verið fyrir Lilju komið í Svíþjóð og í greininni eru það talin rök gegn vændislöggjöfinni í Svíþjóð: „Það er til dæmis vandséð hvernig nýleg lög í Svíþjóð um bann við kaupum á vændi hefðu komið henni til hjálpar.“

Ályktun Vefþjóðviljamanna virðist vera sú að vændislögin í Svíþjóð séu helsta vandamál Lilju enda sé best að leyfa vændi til að enginn sé neyddur til að stunda það. Þetta eru merkilegar röksemdir og merkilegur skilningur á myndinni enda hlýtur fólk að þurfa að vera fullkomlega skyni skroppið til að telja að Lilja sé hin frjálsasta á meðan hún dvelur í Rússlandi og „ákveður“ sjálf „þjónustuframboð“ sitt.

Þessi aðdáun Vefþjóðviljans á Rússlandi er hins vegar stórmerkileg og furðulegt að þeir telji ástandið þar skárra en í Svíþjóð á þeim einföldu forsendum að vændi sé bannað í Svíþjóð á meðan allt virðist leyft í Rússlandi. Og það er furðuleg túlkun að halda að börn geti ákveðið sjálf að selja sig. Slíkt hlýtur ávallt að spretta upp úr neyð og á ekki að túlka sem frjálst val nokkurs manns.

kj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur