| |
Vinstrisveifla í Portúgal – stríđsstjórn fellur
21.2.2005
Vinstriflokkarnir unnu mikinn sigur í ţingkosningum í Portúgal í gćr. Sósíalistaflokkur (Partido Socialista) fékk 45,1% atkvćđa og 120 sćti á ţingi, en hlaut 37,8% í ţingkosningunum 2002. Bandalag Kommúnistaflokksins og Umhverfisflokksins (Coligaçăo Democrática Unitária) fékk 7,6% og 14 ţingsćti, en hlaut 7,0% í seinustu konsingum. Bandalag vinstrimanna (Bloco de Esquerda) meira en tvöfaldađi fylgi sitt, fékk 6,4% atkvćđa og 8 ţingsćti, en hlaut seinast 2,8%. Hćgriflokkur Sósíaldemókrata (Partido Social Democrata) galt afhrođ en fylgi hans minnkađi úr 40,1% í 28%. Hinn hćgriflokkurinn á ţingi, Alţýđuflokkurinn (Partido Popular), tapađi einnig fylgi og fékk 7,3% í stađ 8,8% áđur.
Vinstriflokkarnir á portúgalska ţinginu hafa nú endurheimt ţá góđu stöđu sem ţeir höfđu 1995-2002 og reyndar hefur Sósíalistaflokkurinn ţar hreinan meirihluta. Fyrir ţví eru auđvitađ ýmsar ástćđur. Ein sú mikilvćgasta hlýtur ţó ađ vera mikil aukning á atvinnuleysi í landinu en skráđ atvinnuleysi er nú meira en 7 prósent. Sú stefna portúgalskra stjórnvalda ađ bjóđa fyrst og fremst upp á ódýrt vinnuafl til ađ draga ađ fjárfesta frá öđrum ađildarríkjum Evrópusambandsins hefur ótvírćtt gengiđ sér til húđar.
Pedro Santana Lopes varđ ekki langlífur í embćtti forsćtisráđherra fremur en hinir sósíaldemókratarnir ţrír sem gegnt hafa ţví frá kosningunum 2002. Santana Lopes tók viđ forsćtisráđherraembćttinu af Manuel Barroso sem yfirgaf stjórnina á síđasta ári til ađ taka viđ forsćti framkvćmdastjórnar Evrópusambandsins. Formađur Sósíalistaflokksins, José Socrates, sem eitt sinn gegndi embćtti umhverfisráđherra, verđur forsćtisráđherra í nćstu ríkisstjórn og má vel una viđ árangur flokksins í ţessum fyrstu kosningum undir forystu hans.
Ţađ verđur seint sagt ađ Socrates sé róttćkur og sjálfur lýsir hann sér sem pragmatista í stjórnmálum. Hann hefur samt sem áđur talađ fyrir samfélagslegum rekstri í velferđarţjónustu og vill ađ stjórnvöld setji markađsöflunum skorđur ţegar ţađ eigi viđ. Helsta baráttumál José Socrates í innanríkismálum er ađ blása nýju lífi í efnahagslíf Portúgala međ áherslu á menntun, nýsköpun í tćkniiđnađi og endurmenntun handa sérfrćđingastéttum.
Ţegar kemur ađ utanríkismálum segist Socrates standa fyrir friđ, réttlćti og framţróun ásamt nánari samvinnu viđ önnur ríki ESB. Socrates var einarđur andstćđingur Íraksstríđsins og veru Portúgals í bandalagi hinna vígfúsu ríkja. Fráfarandi stjórn var hins vegar í hópi ţeirra sem studdu innrásina hvađ dyggilegast og héldu Azor-eyjafundinn á sínum tíma.
sh/sj
|
|