Múrinn-vefrit um ţjóđmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um ţjóđmál, pólitík og menningu
 

Rómanska vinstribylgjan heldur áfram

3.3.2005

Tabaré Vázquez var settur í embćtti međ viđhöfn í Montevideo, höfuđborg Uruguay, ţriđjudaginn 1. mars. Vázquez er fyrsti vinstrimađurinn sem kjörinn er forseti Uruguay og sá fjórđi sem nú situr í forsetaembćtti í Suđur-Ameríku.

Vázquez segist leggja höfuđáherslu á ađ upprćta spillingu, skapa ađstćđur fyrir heilbrigt atvinnulíf ţar sem allir landsmenn eigi kost á mannsćmandi vinnu og upplýsa um afdrif fjölda fólks sem hvarf sporlaust í valdatíđ herforingjastjórnarinnar í landinu. Eins og svo mörg önnur ríki álfunnar gekk Uruguay í gegnum „skítugt stríđ“ ţar sem stjórnarherrar gengu milli bols og höfuđs á vinstrisinnum í landinu. Ţađ var gert undir ţví yfirskini ađ eingöngu vćri á ferđinni baráttu gegn skćruliđahreyfingum sem reyndu ađ steypa herforingjastjórninni međ vopnađri baráttu.

Í forsetakosningunum sem fram fóru í Uruguay 1. nóvember á síđasta ári fékk Tabaré Vázquez meirihluta atkvćđa og batt ţar međ enda á 170 ára gamalt tveggjaflokkakerfi í landinu. Jorgé Larranaga, frambjóđandi hćgrimanna, varđ í öđru sćti međ 34% en lestina rak miđjumađurinn Guillermo Stirling međ um 10% atkvćđa. Nöfn gömlu valdaflokkanna tveggja, sem í raun eru báđir íhaldsflokkar eru merkileg í sjálfu sér ţar sem hćgriflokkurinn kallast Blanco og miđflokkurinn Colorado.

Ríkisstjórn Tabaré Vázquez er sérstök sökum ţess ađ margir ráđherrar hennar eru vel viđ aldur og sumir ţeirra máttu dúsa lengi í dýflissum herforingjastjórnarinnar. Ţađ á t.d. viđ um José Mujica sem er án efa einn vinsćlasti liđsmađur Vázquez, forseti ţingsins og tilvonandi ráđherra landbúnađar- og sjávarútvegsmála.

Valdataka vinstrimanna í Uruguay markar enn eitt skrefiđ á vegferđ Suđur-Ameríkuríkja frá nýfrjálshyggjukreddum sem trođiđ hefur veriđ upp á ţau af Alţjóđagjaldeyrissjóđnum, Alţjóđabankanum og öđrum liđsmönnum Chicago-skólans viđ stjórn efnahagsmála. Kreppan sem hlaust af hagstjórnartilraunum Alţjóđagjaldeyrissjóđsins í Argentínu hafđi talsverđ áhrif í Uruguay enda er ţađ efnahagslega nokkuđ háđ hinum stóra granna sínum. Nýr forseti Uruguay segist eigi ađ síđur horfa til frekara samstarfs Suđur-Ameríkuríkja og útvíkkunar á fríverslunarbandalaginu Mercosur.

Tabaré Vázquez bćtist í hóp ţeirra Hugo Chávez í Venezúela, Luis Inacio da Silva í Brasilíu og Nestor Kirchner í Argentínu sem allir voru viđstaddir embćttistöku Vázquez. Fleiri ríki Suđur-Ameríku hafa á undanförnum árum kosiđ fremur vinstrisinnađa forseta ţótt ţar sé ekki á ferđinni einsleitur leiđtogahópur. Má nefna í ţví sambandi Chile, Paraguay og Ecuador.

Ađ viđbćttum stjórnarskiptum á Spáni og í Portúgal verđur ekki framhjá ţví litiđ ađ mikil vinstribylgja fer nú um hinn rómanska heim. Hvađa breytingar ţađ bođar í stćrra samhengi er of snemmt ađ spá um. Vonandi markar kjör Tabaré Vázquez ţó upphafiđ ađ ţví ađ almenningur í Uruguay ţurfi ekki lengur ađ vera fátćk ţjóđ í ríku landi.

sh


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóđ



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíđa   Efst á síđu
Rss straumur