Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

Tekið á umferðarvandanum

15.3.2005

Samkvæmt áætlunum borgaryfirvalda í París mun umferð um miðborgina minnka um 75% á næstu sjö árum. Bernard Delanoe var kjörinn borgarstjóri í París 2001 og er fyrsti sósíalistinn sem gegnt hefur því embætti síðan 1871. Meðal kosningaloforða hans var að draga úr umferð og tilheyrandi mengun í París.

Áætlunin er í þremur liðum og er markmið hennar að loka miðborginni fyrir umferð annarra ökutækja en þeirra sem eru eigu í íbúa, leigubíla auk sjúkrabíla og annarrar nauðsynlegrar umferðar. Aðstoðarborgarstjórinn sem fer með umferðarmál, Denis Baupin, kemur úr flokki Græningja. Hann telur að þessar aðgerðir muni minnka umferð um miðborgina um 75%.

Í fyrstu umferð verður hámarkshraði í miðborginni lækkaður í 30 km og helstu umferðaræðar þrengdar. Síðan verður helstu verslunargötum breytt í göngugötur en lokaskrefið er bann við umferð annarra ökutækja en þeirra sem áður voru tiltekin.

Vissulega hefur þessi áætlun mætt andstöðu ýmissa þrýstihópa og hagsmunaaðila í miðborginni, m.a. kaupmanna sem fullyrða að enginn muni nú koma þangað framar. Hitt er ljóst að mengunin í miðborg Parísar er orðin alvarlegt heilbrigðismál og ekki verður beðið með aðgerðir öllu lengur.

Hinar harkalegu aðgerðir í Parísar eru nauðsynlegar vegna þess að sofið hefur verið á verðinum áratugum saman. Hagsmunir bílaeiganda hafa gengið fyrir öllum öðrum sjónarmiðum. Slík stefna kemur Reykvíkingum óneitanlega kunnuglega fyrir sjónir. Ætlum við að bíða þangað til í óefni er komið?

Í ágætum pistli í DV sl. laugardag segir Egil Helgason:

„ Þetta er ekki flókið dæmi: Við erum að taka eitthvað sem við metum sem lífsgæði að láni frá komandi kynslóðum, börnunum okkar. Við erum líka að taka frá íbúum fátækari landa — í þeim skilningi að ef þeir tækju upp svipaða lífshætti og við myndi fljótlega blasa auðlindaþurrð og óviðráðanleg mengun. Þetta gerum við meðal annars vegna þess að við erum orðin háð bílaflota sem sífellt stækkar og bifreiðum sem verða stærri og stærri.“

Þetta er rétt hjá Agli og við þetta má bæta dæminu frá París, sem sýnir okkur það að fyrr eða síðar verður að taka á vandanum. Frestun á því núna kallar aðeins á róttækari aðgerðir síðar meir.

sj


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur