| |
Endalaust blóð fyrir olíu?
18.3.2005
Á morgun verða tvö ár liðin frá því að sameinaður herafli Bandaríkjanna og Bretlands réðst inn í Írak á upplognum forsendum og í trássi við alþjóðalög. Sér til fulltingis höfðu innrásarmenn hóp auðsveipra ríkisstjórna í klappstýrustellingum, bandalag vígfúsra ráðamanna sem töluðu í nafni þjóða þrátt fyrir að þetta árásarstríð ætti sáralítinn hljómgrunn meðal almennings í viðkomandi ríkjum.
Þegar innrásarinnar verður minnst og mótmæli höfð í frammi við hernám Íraks er rétt að hafa meðal annars eftirfarandi atriði í huga:
1. Í aðdraganda innrásarinnar var því haldið fram að tilgangur hennar væri að ná efnavopnum úr höndum Íraka þótt ljóst mætti vera af upplýsingum vopnaeftirlitsmanna og annarra sem best þekktu til að engin slík vopn væri þar að finna. Einu efnavopnin sem hafa fundist í Írak eru þau sem Bandaríkjaher notaði þegar hann lagði Fallúdja í rúst í nóvember á síðasta ári.
2. Þegar hið upphaflega yfirskin hafði gengið sér endanlega til húðar var því haldið fram að tilgangurinn væri að skipta um ríkisstjórn í Írak. Innrásarmenn vitnuðu sérstaklega til brota Íraksstjórnar á samþykktum Sameinuðu þjóðanna en létu ekki trufla sig að samkvæmt stofnsáttmála SÞ er óheimilt að ráðast inn í aðildarríki til að steypa ríkisstjórnum sem eru viðurkenndar af samtökunum.
3. Mörgum í klappliði innrásarhersins hefur orðið tíðrætt um það hversu illa Saddam Hussein hafi farið með þegna sína um áratuga skeið. Þar er enda af nógu að taka. Í ljósi þess að samanlagt mannfall sem sagt hefur verið frá í vestrænum fjömiðlum nálgast óðum töluna 20.000 og rök hafa verið leidd að því að innrásin hafi þegar kostað yfir 100.000 manns lífið má spyrja í hverju umbæturnar séu fólgnar.
4. Annað af seinni tíma markmiðum innrásarríkjanna hefur verið kallað að koma á lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum í Írak. Til þess að ná því takmarki hafa fangar verið pyntaðir í stórum stíl og jafnvel myrtir, þar á meðal voru sex menn sem fyrrum forsætisráðherra hernámsliðsins, Iyad Allawi, skaut með skammbyssu í votta viðurvist til að sanna hollustu sína.
5. Margir stuðningsmenn innrásarinnar vilja trúa því að nú standi yfir mikið uppbyggingarstarf í Írak þegar þar geisar í reynd borgarastyrjöld vegna hernámsins. Ríkisstjórn Íslands hefur þegar lýst vilja sínum til að taka þátt í að ljá hernáminu í Írak blæ einhvers konar hjálparstarfs, á sama hátt og gert hefur verið í Afganistan. Gaman verður þegar Abdul Rashid Dostum verður orðinn yfirmaður hersins þar í landi og íslensku „friðargæsluliðarnir“ hefja samstarf sitt við hann.
6. Tveir menn ákváðu að Ísland skyldi vera á lista hinna vígfúsu ríkja og töldu það eðlilegt. Þeir telja það enn í dag.
Múrinn hvetur lesendur til að taka þátt í boðuðum mótmælafundum vegna hernámsins á morgun. Slíkir fundir verða meðal annars á Ingólfstorgi í Reykjavík og Kaffi Karólínu á Akureyri og hefjast klukkan 14.
sh
|
|