| |
Þingmaður Græningja leggur til að Vanunu fái ríkisborgararétt
29.3.2005
Þrátt fyrir að Mordechai Vanunu hafi verið látinn laus úr fangelsi í apríl 2004 eftir átján ára innilokun er enn ekki hægt að segja að hann sé frjáls maður. Ísraelsk yfirvöld hafa látið í það skína að Vanunu verði í farbanni til æviloka og nýlega báru þau honum það á brýn að hafa brotið sérstakt samskiptabann en honum er óheimilt að ræða við blaðamenn. Auk þess er honum bannað að koma nær erlendum sendiráðum en 100 metra og tjá sig opinberlega um tiltekin mál. Allir símar Vanunus eru hleraðir og leyniþjónustumenn fylgjast með honum hvert sem hann fer. Þetta er refsingin fyrir að ljóstra upp um kjarnorkuvopnabúr Ísraels árið 1986.
Nýlega lagði Keith Locke, þingmaður Græningja á Nýja-Sjálandi, það til að stjórnvöld í Wellington veittu Vanunu ríkisborgararétt til að gera honum kleift að yfirgefa Ísrael. Rökstuðningur Lockes var einkum sá að þannig bæri að viðurkenna það að Vanunu sætti stöðugum ofsóknum af hálfu Ísraelsstjórnar fyrir að gera heimsbyggðinni viðvart um brot ísraelskra yfirvalda á samningnum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Phil Goff, utanríkisráðherra, blés á þessa hugmynd og sagði að nýsjálenskt ríkisfang yrði það síðasta sem kæmi Vanunu að gagni í Ísrael. Það væri pólitískur glannaskapur auk þess sem Vanunu yrði hvort sem er ógerlegt að nýta sér ríkisborgararétt í öðru landi.
Samskipti Ísraels og Nýja-Sjálands hafa verið æði stirð að undanförnu og má rekja það til þess að tveir útsendarar ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad reyndu að komast yfir nýsjálensk vegabréf með ólöglegum hætti í fyrra. Stjórnin í Wellington krafðist skýringa og opinberrar afsökunarbeiðni frá Ísrael en lítið hefur farið fyrir slíku. Leyniþjónustumennirnir tveir játuðu hins vegar brot sín, voru sakfelldir og sendir úr landi. Svo virðist sem enn andi köldu milli ríkjanna því nýlega hafnaði ríkisstjórn Nýja-Sjálands ósk Moshe Katav, forseta Ísraels, um að koma þangað í opinbera heimsókn til að ræða þetta mál.
Vera má að hagur Vanunu hefði ekkert vænkast við að fá nýsjálenskt vegabréf en hitt er víst að það er þakkarvert að halda máli hans vakandi. Ísraelsstjórn kemst nógu oft upp með að sniðganga alþjóðalög í skjóli neitunarvalds Bandaríkjanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þótt hún njóti ekki þegjandi samþykkis í ofsóknum sínum á hendur Mordechai Vanunu. Sá maður vann sér það til óhelgi að greina heimsbyggðinni frá alvarlegu broti á alþjóðlegum afvopnunarsáttmála og ógn við framtíð mannkyns fyrir tæpum tuttugu árum. Á það að teljast refsivert?
sh
|
|