|
| |
Öðlingar í vesturheimi
1.6.2005
Þeir sem hafa talað máli þróunarríkja geta tekið gleði sína á ný því Evrópuríkin hafa ákveðið að gefa 0,7% af þeirri þjóðarframleiðslu fyrir árið 2015. Að vísu er það 35 árum á eftir þeirra eigin áætlun og einnig er það mun minni peningur en þróunarríkin þurfa að greiða þessum löndum vegna skulda, samt sjá sumir ástæðu til að fagna.
Þeir sem bera eitthvert skynbragð á þarfir þróunarríkjanna, átta sig á að svokölluð þróunaraðstoð bætir ekki upp ósanngjarna viðskiptahætti. Ef hlutur þeirra af heimsútflutningi myndist aukast um svo lítið sem 5%, myndu þróunarríkin græða þrefalt meira en Evrópuríkin gefa þeim árið 2015. Hvaða ríki sem vill aðstoða þróunarlöndin raunverulega myndu setja sanngjarna viðskiptahætti efst á forgangslistann.
Það er þó ekki þar með sagt að frjáls viðskipti í skilningi nýfrjálshyggjumanna muni leysi vanda þessara ríkja. Það að setja þá fátæku og þá ríku á sama viðskiptagrundvöll er eins og að egna saman Doberman hundi og Chihuahua. Ef þróunarríkin fá ekki að byggja upp iðnaðinn sinn innan tollamúra, verður þeim eytt af hinum frjálsa markaði. Hvert einasta auðuga ríki hefur notað þá aðferð, og þá gjarnan beitt þróunarríkin missanngjörnum tollum.
Bretar hafa nú verið að reyna að koma á markaðshagkerfi í Afríku og gjarnan hnýtt fjárframlag sitt til þróunarmála aftan í einkavæðingarhugmyndir sínar á grunnþjónustu. Þeir hafa borgað Adam Smith-stofnuninni 9 milljónir punda ár hvert til að hafa umsjón með einkavæðingarframkvæmdum á þessu svæði. Nú fyrir stuttu drógu Tansaníubúar sig út úr samningum sem Bretar höfðu útbúið fyrir fyrirtæki þar í landi, Biwater, til að einkavæða vatnsbirgðir í Dar es Salaam. Ætla mætti að afleiðingarnar yrðu svipaðar og í Argentínu forðum.
Vesturlönd gera það sem þeim þóknast í þessu máli og reyna hvað þau geta til að halda þróunarríkjunum eins og þau eru í dag. Það er löngu ljóst að grunnþjónusta getur ekki verið rekin með gróðasjónarmið í huga og ekki er hægt að egna saman Afríkuríkjum og Vesturlöndum á hinum frjálsa markaði, því hinn vestræni heimur mundi eigna sér allt kvikt í þessum löndum. Þróunarríkin þurfa meiri aðstoð; skuldir þarf að fella niður og byggja þarf upp almennilegt hagkerfi og tollamúra þarf að brjóta. Svo lengi sem það er ekki gert verða þróunarríkin alltaf háð hinum vestræna heimi.
dss
|
|
| |