|
| |
Lífið eftir byltingu
7.11.2005
Í tilefni afmælis byltingarinnar í Rússlandi hefur Múrinn ákveðið að grein dagsins verði sjónvarpsrýni. Kannski er það besta vísbendingin um hvað varð um fögur áform byltingarinnar og hugmyndina um betri heim jafnaðar og réttlætis.
Það er margt áhugavert í sjónvarpinu og nánast óhugsandi að fólk hafi einu sinni verið að stússast í samyrkjubúum og byltingu og svoleiðis í stað þess að eyða öllum tíma sínum í að kynna sér dásemdir vestrænnar menningar í sjónvarpinu.
Það er almenn kredda í samfélaginu að allt sem hefur gerst síðan teljist vera framfarir og það er raunar gjarnan sagt af fólki sem talar um framtíðina eins og því hafi tekist að finna upp tímavél og fara fram og til baka án þess að vera étið af litlum grænum mönnum. Og þá er best að víkja að sjónvarpsefni daganna í kringum byltingarafmælið til að kanna á hvaða hátindi mannkynssögunnar við stöndum nú.
Og í sjónvarpinu er:
1. Auglýsingar um blettahreinsi þar sem fram kemur fólk sem getur talað og hreyft munninn í einu. Það getum við raunar öll en þetta fólk getur myndað eina setningu með vörunum og önnur heyrist. Þannig að maður veit ekki einu sinni hvort það er verið að auglýsa blettahreinsiefni eða hvort það er falin myndavél. Eða geimvera að segja: We will assimilate you.
2. Þættir þar sem fólk ferðast um landið, heimsækir skrýtlinga og kemst að því að þeir geyma dauðar kindur undir sófanum. Það er nú annað en í gamla daga þar sem hvorki voru sófar til að geyma dauðu kindurnar undir eða sjónvarp til að sýna skemmtilegheitin í.
3. Amerískir unglingaþættir sem heita eftir smábæ eða úthverfi og fjalla um fallegt fólk sem gerir og segir eitthvað áhugavert sem væri þó líklega ekki mjög áhugavert ef fólkið væri ljótt. Það er nú annað en öll þessi veggspjöld með Stakkanov og öðrum hetjum alþýðunnar sem voru bara lygi og fleipur, annað en Marissa og Ryan.
4. Viðtöl við fólk sem hefur lent í einhverju sem fólk sem horfir á þáttinn Fólk hefur áhuga á, þ.e.a.s. mannlegum harmleik af einhverju tagi. Og sjónvarpsmaðurinn spyr: Hvernig leið þér? Hvað hugsaðirðu?
5. Viðtöl við hryssur sem hafa orðið fyrir ofbeldi stóðhesta. Sjá lið 4.
6. Norskir sjónvarpsþættir um Valdimar Flygenring, með dósahlátri og bröndurum sem eru ekki fyndnir og passa þar að auki jafn illa við dósahláturinn og talið í lið 1.
7. Amerískir raunveruleikaþættir um Valdimar Flygenring og ungt fólk sem fer til útlanda og er sent heim aftur.
8. Kallar í jakkafötum að tjá sig um þjóðmálin viku eftir viku eftir viku eftir viku. Má ég þá biðja um Valdimar Flygenring?
9. Viðtöl við alla prófkjörsframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins fyrir níu á morgnana. Erfitt fyrir meltinguna.
10. Ólafur Sigurðsson að flytja fréttir frá ameríska sjónvarpinu með rammíslenskum botni eftir hann sjálfan um illsku kommúnismans.
11. David Letterman og Jay Leno að leika Johnny Carson og Guðmundur Steingrímsson að leika David Letterman, nei, honum var hent út af dagskránni fyrir Fashion Television.
12. Endursýningar á Vinum. Alltaf sami góði húmorinn þar. Vantar ekkert nema Valdimar Flygenring.
13. Þættir um nornir. Ýmist eina, tvær eða þrjár. Og þær eru umkringdar af myndarlegum karlmönnum sem minna grunsamlega á Valdimar Flygenring.
14. Þættir um drauga. Eða var þetta Björn Bjarnason í viðtali?
15. Spaugstofan. Endursýnd. Sjá lið 14.
kj
|
|
| |