Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Jafnrétti   

Eitt samfélag fyrir alla

21.4.2006

Um daginn brá vinafólk mitt sér á veitingastað. Staðurinn, sem var nýverið opnaður í Lundúnum, nefnist Dans le Noir og er harla óvenjulegur. Við komuna tekur blindur þjónn á móti gestunum, en flestir starfsmenn Dans le Noir eru raunar blindir. Það kemur þó lítið að sök á veitingahúsinu, því þar er kolniðamyrkur. Gestirnir mega því fálma eftir diskum, glösum og hnífapörum í fullkominni óvissu um hvort kartöflur, grænmeti eða kjöt rata á gaffalinn.

Á Íslandi er ekki að finna neina matstofu eins og hér er lýst. Í tengslum við síðustu Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar gafst almenningi hins vegar færi á að njóta veitinga á „blindu kaffihúsi“ í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og fá leiðsögn um garðinn, með bundið fyrir augun. Tilgangurinn var að gefa fólki kost á að finna á eigin skinni hvernig það er að vera blindur eða alvarlega sjónskertur.

Það voru félagar í ungliðahreyfingu Blindrafélagsins – Ungblind – sem stóðu fyrir þessari frumlegu aðgerð og tókst með þeim hætti að ljúka aftur augum fjölda fólks, ef svo mætti að orði komast. Ungblind er í hópi þeirra öflugu félaga ungs fólks sem glíma við erfiða sjúkdóma eða fötlun, en reka kröftuga starfsemi sem einkennist af bjartsýni og eldmóð.

Annað dæmi um frumlegar baráttuaðferðir ungra öryrkja er að finna í starfi ungmennahreyfingar Sjálfsbjargar, sem nefnist Ný-Ung. Síðasta sumar stóð hópurinn fyrir átakinu „Öryrkinn ósigrandi“ sem hlaut mikla og verðskuldaða athygli. Meðal uppátækjanna má nefna þegar einn í hópnum, sem er í hjólastól, komst á topp Esjunnar fyrir eigin rammleik og öflugra fylgdarmanna.

Segja má að unga fólkið hafi með aðgerðum þessum og öðrum slíkum, gefið tóninn fyrir félaga sína í Öryrkjabandalagi Íslands. Nú um helgina hrindir ÖBÍ af stokkunum átaki sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um það órétti sem fatlaðir þurfa að búa við. Boðskapurinn verður þó ekki settur fram í grátræðum, heldur verður kappkostað að kynna hann á frumlegan og líflegan hátt.

Meðal þess sem aðgerðunum er ætlað að benda á er sú fáránlega mismunun sem á sér stað á hverjum degi vegna þess að fötluðu fólki er í raun meinaður aðgangur að stórum hluta samfélagsins vegna slæms aðgengis, sem birtist meðal annars í formi þröskulda og stiga. Aðrar en þó ekki síður alvarlegar hindranir eru þó þær sem felast í fordómum, vanþekkingu og skilningsleysi. Því miður vantar enn mikið upp á að 65. grein stjórnarskrárinnar um jafnan rétt borgaranna sé virt hér á landi.

Þeir sem eiga leið um verslunarmiðstöðvar og aðra fjölsótta staði um helgina mega eiga von á að hitta vaska öryrkja að kynna málstað sinn – kröfuna um jafnan rétt allra. Þeim sem verða staddir í Lundúnum er hins vegar bent á að fara út að borða á veitingahúsi sem leggur óvenju lítið upp úr skreytingum og útliti. Fasaninn á matseðlinum er víst alveg sérstaklega gómsætur.

sþá


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur