|
| |
Vega velsæmi
14.12.2006
Raddir landsmanna hafa nú sem hæst, hver í kapp við aðra, og heimta allt að tvöföldun allra meginleiða út úr höfuðborginni. Við eigum að vera stórhuga og vilja aðeins það besta. Reykjanesbrautin hefur eftir tvöföldun ekki tekið toll af mannslífum, allavega hefur enginn látist þar enn sem komið er. Fólk ferst unnvörpum á þessum örmjóu vegum þar sem umferð er alltof mikil.
Það er vitað mál að bílum hefur fjölgað gríðarlega á vegum landsins og vegabætur ekki verið í neinum takt við þessa fjölgun, jafnvel þótt við borgum þjóða mest í skatta fyrir bílana okkar. Vissulega má leiðrétta þetta en hitt er annað mál að það er margt fleira sem má laga.
Eftir síðustu banaslys, þá helst það sem varð á Suðurlandsvegi og svo aftur á Vesturlandsvegi, urðu mikil hróp og köll. Vegunum var um að kenna, það þarf að tvöfalda eða bæta við einni akrein. En spurði einhver að því hvernig slysin vildu til?
Það sem hefur alveg vantað inn í alla umræðu er á hvaða stigi íslensk umferðamenning er. Það fullyrði ég að erlendis, þar sem ég hef búið í mörg ár bæði á Bretlandi og í Hollandi, finnst sjaldan það háttaleg sem er daglegt brauð á götum innan höfuðborgarsvæðisins. Eftir að hafa verið mánuðum saman erlendis, ekið þar um allt á þéttskipuðum hraðbrautum kom maður heim á Reykjanesbrautina og varð nánast undantekningarlaust vitni að glæfraskap og tillitsleysi sem maður sá aldrei, ég endurtek, aldrei á vegum erlendis! Inni í borginni tók ekki skárra við og það er þetta sem ég held að fyrst og fremst þurfi að taka á, umferðamenningin. Þar er vissulega Umferðarstofa að vinna þarft og gott starf en ég held að broti af vegabótamilljörðum mætti vel verja til að bæta ökukennslu og auka háttvísi í umferðinni.
Ungir ökumenn, ungir karlmenn, eru jafnan gerðir að blórabögglum og sagt að það sé einhverjum örfáum táningsglönnum að kenna að slysin séu svona mörg og mörg þeirra svona alvarleg. Það sem ég hef sagt að ofan vísar á mun djúpstæðari vanda og langar mig að draga fram annan hóp fólks sem ég tel engu síðri skaðvalda. Miðaldra ráðsettir karlmenn og sennilega einhverjar konur líka. Fólk sem er með sitt á hreinu, karlmenn sem eru húsbændur á sínu heimili og í stjórnunarstöðum í sinni vinnu, ekki sligaðir af skuldum (og tilheyrandi vanmáttartilfinningu gagnvart bákninu). Menn sem stjórna og eru herrar í eigin heimi.
Slíkt fólk á í vanda þegar á vegina er komið þar sem allir bílar eru jafnir og eru í raun óskilgreind eining í valdapíramída sem er ekki til. Við slíkar aðstæður gildir tegund háttvísi sem íslenskum er ókunn: Virðing fyrir hinum óþekkta aðila, það er einhverjum sem er bara manneskja eins og þú og þú veist ekkert um. Engin ættfræði, enginn klæðnaður, enginn svipur, enginn hreimur, bara bíll eins og þinn. Vissulega reynir fólk ýmislegt til aðgreiningar í útlitslegu tilliti og sumir telja valdið felast í krafti og stærð, en þegar öllu er á botninn hvolft gilda sömu reglur fyrir alla á vegunum og það er oft erfitt fyrir suma að kyngja því. Það er svo sem eitt og á sér margar birtingamyndir.
Svo er það óþolinmæðin sem er nokkuð algild hjá fólki. Hraðatakmörk eru hér nokkuð sem fólk á afar erfitt með að kyngja og allir vita hvað það er ömurlegt að vera á eftir flutningabíl sem er bara á 90. Við erum vön að vera ein í stóru húsi, ein í garðinum okkar, ein í bílnum okkar, ein í sveitinni, ein á gangi á Laugaveginum en í þeim umferðarþunga sem nú er orðinn á höfuðborgarsvæðinu er hver fyrir öðrum, óþolandi allt þetta hyski á götunum. Vissulega er óþolinmæðin svo samofin þeim sem eru herrar í sínum heimi og svo einnig hinna sem eru allsstaðar kúgaðir, þeir fá útrás gagnvart kerfinu á vegunum, þar hafa þeir allavega einhvers konar vald.
Hvernig sem á það er litið eru töluverð rannsóknarefni í umferðarmenningu á Íslandi og þar held ég að verulegra úrbóta sé þörf. Við höfum flest öll kosið að hnappast saman á regnbarið nes við Faxaflóa og þar er að myndast stórborg þar sem menn þurfa að takast á við nábýli við hin óþekkta náunga. Það er mikil list sem við erum komin afar stutt á veg með að tileinka okkur eins og sést best á vegum landsins.
ehh
|
|
| |