Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
Múrinn-vefrit um þjóðmál, pólitík og menningu
 

   Kjaramál   

V fyrir velferð

23.4.2007

Ísland er ríkt samfélag. Um það erum við öll sammála. Æ fleiri setja hinsvegar spurningarmerki við það hvernig við skiptum hinu mikla ríkidæmi á milli okkar. Raunin er nefnilega sú að í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur misrétti og misskipting aukist verulega. Margir hafa auðgast en á sama tíma er stækkandi hópur settur hjá.

Fátækt á ekki að líðast í íslensku samfélagi. Nauðsynlegt er að auka verulega ráðstöfunartekjur þeirra sem lægstar hafa tekjurnar og taka þarf samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og skattkerfis til gagngerrar endurskoðunar. Eins er grundvallaratriði að hverfa af braut gjaldtöku í heilbrigðis- og menntakerfinu. Slíka þjónustu eigum við að greiða fyrir með sköttunum okkar. Velferð á að vera fyrir alla og hana á fólk ekki að þurfa að kaupa sér sérstaklega.

Það er hinsvegar staðreynd að það er erfiðara að vera tekjulítill nú en það var þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hófu ríkisstjórnarsamstarf árið 1995. Velferðarkerfið virkar ekki lengur sem skyldi fyrir hina efnaminni. Álögur, ásamt óréttlátu skatta- og almannatryggingakerfi hafa gert það að verkum að það er orðið erfiðara að vera tekjulítill og með börn á framfæri. Það er erfiðara að vera tekjulítill og húsnæðislaus og það er erfiðara að vera tekjulítill og veikur. Þessi veruleiki skrifast á reikning sitjandi ríkisstjórnar.

Í komandi Alþingiskosningum verða velferðarmálin eitt af stóru kosningamálunum, því kosið verður um framtíð velferðarsamfélagsins á Íslandi. Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur höfuðáherslu á að bæta og jafna lífskörin, útrýma fátækt og halda velferðarþjónustunni kraftmikilli og aðgengilegri öllum. Meginþorri íslensku þjóðarinnar er á sama máli. Þjóðin vill öflugt velferðarkerfi sem fjármagnað er með almennum sköttum og rekið á vegum samfélagsins.

Biðjum ekki um velferð fyrir alla. Kjósum hana. Merkjum við V fyrir velferðarsamfélag.

sþá


Prenta grein   Senda grein   Tilvísunar slóð



Leit   Eldra efni   Um Múrinn
Forsíða   Efst á síðu
Rss straumur