| |
| |
Minnispunktar fyrir spunameistara |
Hvernig á að berja á umhverfiskommum?
25.4.2007
Það er gaman að vera vinstrigrænn þessi misserin. Frá því í janúar hefur ekki verið talað um neitt annað í pólitíkinni en Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Þar með er ekki sagt að umtalið hafi allt verið gott. Nei, raunar hefur 90% þess verið mjög slæmt enda flestir stjórnmálaflokkar með sæg spunameistara á sínum snærum og fjölmiðlarnir þar að auki mjög hægrisinnaðir og þar af leiðandi ekki mjög vinstrigrænir. Eins og sást vel á kvöldfréttum Stöðvar tvö um daginn:
Fréttamaður (brosandi): Vinstrigrænir þykjast nú breiðir. En Jón Baldvin segir að Steingrímur J. sé ömurlegur. (Klippt yfir á Jón Baldvin, ekki brosandi. Hann segir í MJÖG löngu máli að Steingrímur J. sé ömurlegur).
Fréttamaður (brosandi): Já, þannig er það, Steingrímur J. er ömurlegur.
En þetta illa umtal hefur haft farsæl og góð áhrif, fylgi VG hefur aukist jafnt og þétt um leið og illa umtalið. Þetta gekk svo langt að Ingibjörg Sólrún sendi helstu skósveina sína út af örkinni til að tala um það hversu illa væri talað um hana. En fram að því hafði enginn talað um hana. Þannig reyndi hún að ögra andstæðingunum til að tala svolítið illa um sig líka. „Enginn er rægður jafn mikið og Ingibjörg Sólrún,“ sagði Hallgrímur Helgason, sama dag og Ingvi Hrafn Jónsson sagði að ríkisstjórn með VG þýddi „efnahagslegan kjarnorkuvetur á Íslandi“.
En svo kom svolítið bakslag í gleðina. Það var eins og spunameistararnir hefðu þreyst svo mikið að þeir nenntu ekki lengur að tala illa um VG og fylgið seig svolítið. Og þó að þeir hrykkju fljótt í gír aftur er vissara að minna á nokkrar vinsælustu spunaklisjurnar sem allar hafa verið mikið notaðar og haft mjög jávæð áhrif á fylgi VG. Mikilvægt er að hvetja alla andstæðinga flokksins til að nota þessar klisjur oft og lengi. Því að auðvitað er æskilegt að kosningarnar árið 2007 snúist aðeins um stefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Spunaklisja 1: Steingrímur Joð er karlrembusvín.
Rökin: a) Margrét Frímannsdóttir talar illa um hann. Svo hann hlýtur að hafa verið vondur við hana. Og hún er kona. b) Steingrímur J. er ekki í Samfylkingunni. Formaður hennar er kona. Ergo: Steingrímur J. hatar konur.
Spunaklisja 2: Steingrímur Joð ætlar að mynda stjórn með Geir Haarde.
Rökin: Einhver sagði þetta fullur á Ölstofunni. Hmm, ekki hljómar þetta vel; spunameistarar Nixons hefðu líklega frekar reynt að segja að Steingrímur J. væri í raun þýskur og héti Heinrich Himmelstamm. En þetta var samt notað.
Spunaklisja 3: VG er ekki umhverfisflokkur.
Rökin: Hjörleifur Guttormsson sagði eitt sinn að Kárahnjúkasvæðið væri „fáfarið“. Þar af hlýtur að leiða að VG hljóti að vilja drekkja þessari náttúruperlu í uppistöðulóni og að óvinsæl barátta flokksins gegn virkjuninni hafi verið sniðug brella til að vinna fylgi nokkrum árum síðar.
Spunaklisja 4: VG eru í raun jafn ósamkvæm sjálfum sér og hinir flokkarnir.
Rökin: Hinir og þessir félagar í VG hafa tekið vel í álver og virkjanir hér og þar. Og ef stefna flokksins núna væri að banna öll álver alstaðar og virkja aldrei neitt og leggja aldrei vegi eða neitt (sem hún er raunar ekki) þá væri þetta mikil ósamkvæmni.
Spunaklisja 5: VG er …
Rökin: VG sótti um styrk frá Alcan. Það sannar eitthvað slæmt. Við vitum ekki alveg hvað. En þetta er mjög skuggalegt.
Spunaklisja 6: VG hefur framið mannréttindabrot og getur því ekki rætt um mannréttindi.
Rökin: Mannréttindabrot flokksmanna felast í því að hafa gagnrýnt Framsóknarflokkinn. Þetta kom fram á netsíðu framsóknarmanns.
Spunaklisja 7: Paul Nikolov er útlendingur.
Rökin: Þó að allir flokkar telji sig vera mjög hlynnta innflytjendum þá er mjög mikilvægt að ræða reglulega a) hvort ekki þurfi að setja lög um að allir tali íslensku á þingi (úps, hvað með táknmálið? æ, best að minnast ekki á það), og b) hvort sumir útlenskir þingframbjóðendur hafi ekki unnið fyrir blaðið Grapevine sem hefur „talað illa um Ísland“ (les: gagnrýnt virkjanir; á útlensku).
Spunaklisja 8: Steingrímur J. er frægur fyrir að vera stóryrtur.
Rökin: Hann hefur gagnrýnt Framsóknarflokkinn.
Spunaklisja 9: VG er í raun ekkert róttækur flokkur.
Rökin: VG hefur ekki lofað að leggja íslenskan landbúnað og krónuna af. Sem er eina raunverulega skilgreiningin á róttækni. Þetta hefur komið fram hjá óháðum aðila, Jóni Baldvin Hannibalssyni.
Spunaklisja 10: VG er ekki kvennaflokkurinn.
Rökin: Þessar konur hjá VG (varaformaðurinn, framkvæmdastjórinn, þingmennirnir og þessar sjö konur sem komast á þing ef flokkurinn fær 12 þingmenn) skipta engu máli af því að þær heita ekki Ingibjörg. Sólrún Gísladóttir. Sem, eins og menn muna, eru þrjár ástæður Oddnýjar Sturludóttur fyrir að taka þátt í stjórnmálum.
Spunaklisja 11: VG aðhyllist forræðishyggju.
Rökin: Jú, árið 1976 töluðu tveir (nú látnir) þingmenn Alþýðubandalagsins illa um litasjónvarp. Ef eitthvað sannar afturhald og forræðishyggju Steingríms J. er það þetta. Enda engir aukvisar sem standa að þessum spuna, því það eru sérfræðingar Sjálfstæðisflokksins í hneykslanlegri fortíð, Eyþór Arnalds fv. oddviti sjálfstæðismanna í Árborg og Guðmundur Magnússon fv. forstöðumaður Þjóðmenningarhússins.
Spunaklisja 12: VG eru kommúnistar.
Rökin: Ómar og Margrét þurftu að bjóða fram sérstakan umhverfisflokk fólks sem er „ekki kommúnistar“.
Spunaklisja 13: Kjarnorkuveturinn.
Rökin: Ef VG kemst í stjórn verður „kjarnorkuvetur í efnahagslífinu“, að mati viðurkennds sérfræðings í kjarnorkuvetri og efnahagslífinu, Ingva Hrafns Jónssonar.
Spunaklisja 14: Steingrímur J. er bara skemmtikraftur.
Rök: Jú, hann er rauðhærður og sköllóttur og íþróttafréttamaður, eins og Ómar Ragnarsson og þess vegna á ekki að kjósa hann heldur Ingibjörgu Sólrúnu. Þessi punktur kom auðvitað frá Samfylkingunni en Framsóknarflokkurinn hefur haldið sig til hlés í ádeilu á íþróttafréttamenn í framboði.
Spunaklisja 15: VG er á móti skógrækt.
Rök: Allir sem berjast gegn loftmengun eða einhverju öðru en skógrækt eru svikarar við málstaðinn og því hatursmenn skógræktar, hvað sem stendur í stefnuskrá þeirra. Það er skárra að vera alfarið á móti náttúrunni en að halda framhjá skógræktinni. Um þetta hafa þrír skógræktaráhugamenn einmitt skrifað sjö greinar á mann.
Spunaklisja 16: VG er á móti framtíðinni.
Rökin: Að gagnrýna Framsóknarflokkinn og virkjunarstefnu hans er sambærilegt við það að vera á móti rafmagninu. Það segja frambjóðendur Framsóknarflokksins og ekki ljúga þeir.
áj
|
|